Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 31
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31 L augardalshöllin fagnaði 50 ára afmæli sínu þann 4. desember sl. Fyrsti íþróttaleikurinn fór fram á þeim degi árið 1965 þar sem handknattleiksmenn Reykjavíkurúrvalsins unnu verðskuldaðan sigur 23-20, gegn tékkneska liðinu Baník Karvina. Þess má geta að allir leikmenn Reykja- víkurúrvalsins eru enn á lífi. Laugardals- höllin var teiknuð af Gísla Halldórssyni og Skarphéðni Jóhannssyni arkitektum árið 1959 og reist af Reykjavíkurborg og Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Bygg- ing Laugardalshallarinnar tók sinn tíma og margar hindranir voru í veginum þar til hún var opnuð. Fyrsta viðbygging við upprunalegu Laugardalshöllina var reist austan megin hússins til að fjölga áhorfendastæðum vegna Heimsmeistaramóts í handknatt- leik sem fram fór 1995. Eftir mótið var viðbyggingunni breytt í lítinn æfingasal fyrir körfuknattleik. Nú hýsir þessi við- bygging ráðstefnusali og geymslur. Árið 2005 var hafist handa við að reisa 9.500 m2 fjölnota sal til að koma upp frjálsíþrótta- og sýningaraðstöðu auk ráðstefnuaðstöðu sem tengdist við Laugardalshöllina. Í þessum nýja frjáls- íþróttasal er besta innanhússaðstaða landsins en þar eru einnig haldnir stærri tónleikar og sýningar. Í Laugar- dalshöll eru nú alls fimm salir: Höllin (A-salur), frjálsíþróttahús (B-salur), salir 1-2-3-4-5-6, golf- og lyftingasalur og danssalur. Sigurgeir Guðmannsson var fram- kvæmdastjóri ÍBR og fyrsti starfsmaður Laugardalshallarinnar en hann starfaði á árunum 1965–1969. Á eftir honum tók við Höskuldur Goði Karlsson og starf- aði á árunum 1969–1971. Árin 1971– 1997 var Gunnar Guðmannsson (Nunni) framkvæmdastjóri Hallarinnar. Við hlut- verki hans tók Jónas Kristinsson og var hann framkvæmdastjóri til ársins 2006 þegar Óli Öder, núverandi framkvæmda- stjóri, tók við. Hugmynd að veglegu samkomuhúsi fyrir Reykvíkinga hafði oft verið rædd manna á milli áður en skriður komst á byggingu íþróttahallar í Laugardalnum. Bæjarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum 1. nóvember 1956 tillögu um að byggt skyldi „sýninga- og íþróttahús“ í Reykjavík. Skipuð var byggingarnefnd og boltinn fór af stað. Menn gerðu sér miklar væntingar vegna mannvirkisins og sagði Gísli Halldórsson arkitekt m.a. á ársþingi ÍBR í mars 1959: „Með bygg- ingu þessa húss í Laugardalnum verður mynduð miðstöð alls íþróttalífs í höfuð- staðnum og vonandi verða nú ekki mörg ár þar til því verki verði lokið, þar sem vonir standa til að hafist verði handa nú í sumar. En þegar því verki er lokið hefur myndast aðstaða fyrir allar íþróttir, jafnt úti sem inni. Þarna rætist draumur Sig- urðar málara. Háborg íslenskrar æsku er að rísa af grunni í Laugardalnum.“ Þann 29. ágúst 1959 hófust fram- kvæmdir við Laugardalshöllina. Fram- kvæmdir lögðust að mestu niður eftir að búið var að grafa fyrir grunninum vegna fjárskorts. Bygging Laugardals- hallar var síðan boðin út vorið 1961. Að undangengnu útboði var samið við Almenna byggingarfélagið um verkið. Hafist var handa í ágúst 1961. Verkföll hjá ýmsum stéttarfélögum settu strik í reikninginn við framkvæmdirnar og þak Laugardalshallarinnar var m.a. ekki steypt fyrr en haustið 1963. Verkið tafð- ist einnig vegna viðræðna Reykjavíkur- borgar við Sýningarsamtökin sem áttu hlut í húsinu – og var ekkert framkvæmt á þeim tíma eða í tvö ár. Haustið 1964 var farið að hilla undir að húsið yrði not- hæft fyrir íþróttaleiki. Kostnaðurinn var þá kominn verulega fram úr áætlun og enn vantaði talsvert til að klára verkefnið. Bygging Laugardalshallar var mikið þrekvirki á sínum tíma og margir lögðu hönd á plóginn. Íþróttafólk Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaga hljóp undir bagga við lokafráganginn og var unnið jafnt daga sem nætur síðustu vikurnar fyrir opnun hússins. Erfiðlega gekk að fá trésmiði til þess að leggja gólfið og gerðu þá nokkrir trésmiðir innan raða handknattleiksmanna tilboð í verkið og unnu sleitulaust við það haustið 1965. Síðustu dagana var hið íslenska verklag í hávegum haft. Á miðvikudagskvöld og fimmtudagsnótt var salargólfið lakk- að, handknattleiksvöllur merktur aðfara- nótt laugardags, mörk sett upp um morg- uninn og leikurinn við Tékka hófst síð- degis sama dag. Í Morgunblaðinu var sagt frá fyrsta viðburðinum í Laugardalshöll með eftir- farandi hætti: „Fjögur til fimm þúsund manns, sem sáu tvo fyrstu kappleikina Laugardalshöllin 50 ára: Iðkendur og áhorfendur orðnir um 8 milljónir í nýju íþróttahöllinni í Laugardal, sann- færðust um, hver bylting hefur orðið í íþróttalífi hér við tilkomu hallarinnar. Að koma inn í höllina og sjá leiki þar er sem að koma inn í annan heim frá því sem verið hefur á kappleikjum hér. Fólk- ið naut fagurrar húsagerðarlistar og þægilegrar innréttingar salarins og víst mun flestum hafa farið svo að þykja höll- in helmingi stærri og tignarlegri er inn var komið, en utan frá varð séð. Það er ekki ofsögum sagt að langþráður draum- ur hafi ræst og að Reykvíkingum finn- ist að bær þeirra sé meiri og stærri eftir tilkomu þessarar hallar en áður.“ Jónas B. Jónsson, formaður bygging- arnefndar hússins, ávarpaði um 1800 gesti við opnun Hallarinnar. Hann baðst velvirðingar á að boðið væri til keppni í húsinu þó að það væri ekki alveg full- byggt en vonir stæðu til að framkvæmd- um lyki fyrir næsta haust. Hann lét í ljósi vonir um að húsið yrði lyftistöng atvinnu-, íþrótta- og félagslífs og bað borgarstjóra að opna íþrótta- og sýning- arhöllina í Reykjavík. Geir Hallgrímsson borgarstjóri sagði við þetta tækifæri að hann óskaði þess að í framtíðinni yrði húsið lyftistöng íþrótta fyrir æsku Reykjavíkur og raunar landsins alls. Í máli Geirs kom einnig fram að Höllin var frá upphafi ætluð til sýningahalds auk íþróttastarfsemi, en Sýningarsamtök atvinnuveganna áttu rúmlega 40% hlut í húsinu í upphafi. Til gamans hefur verið lauslega áætlað að á þeim 50 árum sem liðin eru séu gestir Laugardalshallar (iðkendur og áhorfendur) orðnir um 8 milljónir. Gríðarlega margir stórviðburðir hafa farið fram í Laugardalshöllinni, í íþrótt- um, listum og menningu á síðustu 50 ár- um. Auk þess hafa oft verið haldnar stórar ráðstefnur og vöru-, heimilis– og atvinnuvegasýningar af ýmsu tagi. Þar má nefna ráðherrafund NATO, Reykja- vik Arts Festival, CCP Fan Fest, Ferða- sýningu Icelandair, Golf á Íslandi, sjávar- útvegssýningar, Odair Art Fest, lands- fundi stjórnmálaflokka, Sumarhúsið og garðinn, Verk og vit, Tækni og Tölvur. Skákeinvígi Bobbys Fischers og Boris Spasskys um heimsmeistaratitilinn árið 1972 er án efa einn stærsti viðburður- inn í Laugardalshöll. Mikið var einnig lagt í heimsmeistarakeppni í handknatt- leik karla árið 1995 en þá var m.a. byggt við Laugardalshöllina til þess að koma að fleiri áhorfendum. Stórhljómsveitin Led Zeppelin hélt eftirminnilega tón- leika árið 1970 sem markaði upphafið að komu margra þekktra listamanna í höllina. Meðal þeirra eru: A-ha, Bjork, Blow Monkeys, Birgit Nilsson, Björgvin Halldórsson, Boris Christoff, Blur, Bubbi Morthens, Bob Dylan, Benny Goodman, Boney M, Buena Vista Social Club, Cleo Laine, Cesaria Evora, Coldplay,David Bowie, Dubliners, Deep Purple, Diana Krall, Eagles, Europe, Foo Fighters, HAM, Human League, Henry Fox, Iceland Airwaves Music Festival, Nýdönsk, Incubus, Iron Maiden, Jethro Tull, Jose Carreras, Josh Groban, Katie Melua, Korn, Kris Kristofferson, Led Zeppelin, Leonard Cohen, Lou Reed, Meat Loaf, Miriam Makeba, Madness, Muse, Nick Cave, Nigel Kennedy, Norah Jones, Pink, Pavarotti, Placebo, Prodigy, Pulp, Rammstein, Reykjavik Arts Festival, Richard Clyderman, Robbie Williams, Stranglers, Sting, Sugarcubes, Sigurrós, Simply Red, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stuðmenn,Sykurmolarnir, Toto, The Blow Monkeys, The Christians, Travis, World Choir, Madness, Kings of Leon, Jessie James, Fine Young Cannibals, Loyd Cole, Slash, Neil Diamond, Yehudi Menuhin, Vladimar Ashkenazy, Writing on the Wall, 50 Cent.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.