Fréttablaðið - 04.10.2017, Síða 26
Af hverju krosslímt tré?
• Umhverfisvæn og sjálfbær framleiðsla
• Léttari en steypa
• Frábær einangrun
• Engar kuldabrýr sem bjóða heim raka
og myglu
• Mjög fljótlegt að reisa
• Einstakir burðareiginleikar
• Jarðskjálftaþol eins og best getur orðið
• Þynnri veggir - meira innra rými
• Notalegt og heilsusamlegt innra umhverfi
Smiðjuvegi 3 - 200 Kópavogur - Sími 412 1700
idex@idex.is - www.idex.is
idex.is - sím 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
Álgluggar
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Byggðu umhverfisvænt hús
-úr krosslímdu tré
Byggðu til framtíðar
með lausnum frá IDEX
ALLT FYRIR
HEIMILIÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Sýningin heitir Stofublóm Inniblóm Pottablóm. Ég hef mikið skoðað þessa tilteknu
Facebook-grúppu, bæði sótt mér
ráð þangað, lesið mér til og einnig
gefið ráð. Hópurinn er fallegur
vettvangur samskipta því hann
snýst einungis um velvild fólks
í garð pottaplantna,“ útskýrir
Kristín Dóra Ólafsdóttir mynd-
listarmaður en hún opnar sýningu
á föstudag á málverkum af stofu-
blómum. Sjálf hefur hún dálæti á
pottaplöntum og eftir að hún flutti
úr foreldrahúsum hefur hún komið
sér upp ágætu safni.
„Ég vann í Garðheimum í nokkur
ár og hef sankað að mér í plöntum
og sérstaklega síðasta árið en þá
flutti ég að heiman. Ég er með um
það bil níu tegundir heima. Ég er í
rúmgóðu húsnæði og búin að fylla
öll horn af plöntum. Þetta er hluti
af því að verða fullorðin,“ segir
Kristín. „Ég á ekki börn og ber ekki
ábyrgð á neinu nema sjálfri mér.
Plöntur eru góð leið til þess að
æfa ábyrgðartilfinninguna. Ég er
reyndar líka gulrótabóndi og rækta
gulræturnar bæði í Reykjavík og
í sumarbústaðarlandi foreldra
minna. Úr uppskerunni bý ég svo
til góða gulrótarsúpu sem ég á í
frysti allan veturinn, eða baka gul-
rótarkökur. Ég ólst upp í Breiðholti
í nálægð við Elliðaárdalinn og var
virk í Skólagörðunum. Einu verð-
launin sem ég hef fengið í lífinu
voru fyrir flottasta garðinn í Skóla-
görðunum,“ segir Kristín. Enda
langi hana í stóran garð til að geta
ræktað bæði matjurtir og annan
gróður. Garðrækt sé henni eins og
hugleiðsla, líkt og myndlistin.
„Þetta er allt saman leið til betri
sjálfsvitundar. Ég er í leit að sjálfri
mér og að einhverjum sannleika.
Það má segja að með þessari sýn-
ingu ég sé að vinna með unglinga-
vitundina, hvernig maður er enn
þá unglingur búandi heima hjá
mömmu og pabba en fullorðnast
við að flytja að heiman. Sýningin
mín samanstendur af málverkum
af plöntum. Til að byrja með
málaði ég plönturnar mínar og
fór svo að vinna með þær plöntur
sem mig langar í. Mér finnast
plöntur segja mikið um eigendur
sína,“ segir Kristín. Hvernig planta
væri lýsandi fyrir þig? „Vonandi
ekki gerviblóm,“ segir hún sposk.
„Sennilega er það bergflétta. Hún
er skemmtilegt blóm og fer út um
allt.“
Kristín útskrifaðist úr Listahá-
skólanum síðasta vor. Stofublóm
Inniblóm Pottablóm er hennar
fjórða einkasýning og sú fyrsta eftir
útskrift. Sýningin verður opnuð
föstudaginn 6. október í Bryggj-
unni Brugghúsi klukkan 16. Nánar
má forvitnast um verk Kristínar á
www.kristindora.com.
Hollt fyrir ábyrgðartilfinninguna
Kristín Dóra Ólafsdóttir myndlistarmaður hefur dálæti á pottaplöntum. Þær virki með
henni ábyrgðartilfinninguna svo hún fullorðnist. Hún opnar sýningu á föstudaginn á
málverkum af plöntum og sækir titil sýningarinnar í Facebook-hóp blómaáhugafólks.
Kristín Dóra Ólafsdóttir myndlistarmaður hefur dálæti á pottaplöntum. Hún opnar sýningu með málverkum af stofu-
blómum á föstudaginn. mynD/EyþÓr
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
4 KynnInGArBLAÐ FÓLK 4 . o K tÓ B E r 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
7
-0
5
1
C
1
D
E
7
-0
3
E
0
1
D
E
7
-0
2
A
4
1
D
E
7
-0
1
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K