Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 2

Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 2
Veður Suðaustan 5-13 m/s í dag, en 10-18 suðvestanlands, hvassast við suður- ströndina. Víða rigning, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hægari seinnipartinn. sjá síðu 50 Fullur salur klappaði fyrir Yeonmi Park Yeonmi Park flutti í gær erindi um ástandið í Norður-Kóreu sem hún sagði erfitt að lýsa fyrir þeim sem aldrei hafi fengið að upplifa sambærilegar aðstæður. Hún sagði Íslendinga geta verið þakkláta fyrir að hafa forsætisráðherra eins og þann sem bauð hana velkomna í pontu í Hátíðasal HÍ í stað guðlegra leiðtoga á borð við þá sem halda um stjórnartaumana í Norður-Kóreu. Sjá nánar síðu 34. Fréttablaðið/gva KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SELESTE umgjarðir á: 990 kr. Reykjavík „Í dag hætti ég að keyra á milli fjögur og fimm þegar leiðin- lega fólkið kemur. Af því að eftir klukkan fimm er þetta eins og villta vestrið. Þá eru menn að lenda í því að það er verið að hoppa upp á bílana þeirra. Það er verið að slást um bílana,“ segir Kristján Róbert Walsh leigubílstjóri. „Og þá spyr maður hvar öryggið sé sem er verið að bjóða upp á í þessari borg fyrir ferðamanninn, borgarana og bíl- stjórana sem sinna þessu,“ bætir hann við. Kristján Róbert segir að fyrir nokkrum árum hafi verið skýli í Lækjargötunni. „Svo kom Gnarr- stjórnin og henti þessu skýli út í hafsauga og bjó til asnalegt plan og skýli við hliðina á pylsuvagninum í Tryggvagötu. Það var svo asnalegt að það hálfa væri nóg,“ segir Krist- ján. Nú telur Kristján að það væri lag að setja upphitað skýli aftur þar sem það gamla var í Lækjar- götunni og annað á gatnamótum Sæbrautar og Lækjargötu, við Hörp- una. „Þannig að hægt sé að komast fljótt og óhindrað að bænum bæði Sæbrautarmegin og Lækjargötu- megin og haft aðgengi til að snúa við og fara í burtu,“ segir hann. Hann telur eðlilegt að í slíkum biðskýlum séu verðir sem myndu mæta milli tvö og þrjú á nóttunni um helgar. Þá geti bílstjórar keyrt niður í bæ og sótt farþega í skýlið og farþegar geti vænst þess að fá aðstoð frá vörðunum ef dólgar vaða uppi með læti í röðinni. Eins og staðan er í dag eru Hreyf- ill og BSR með sérmerkt stæði í miðbænum, auk þess sem það er Verðir vakti biðskýlin í borginni um helgar Leigubílstjórar lenda í því að hoppað er á bílunum þeirra og slegist er um þá seint á nóttunni. Útvega þurfi farþegum vöktuð skýli til að passa upp á ferða- menn, borgara og bílstjóra. Farþegar þurfi að geta beðið óáreittir. Kristján róbert Walsh segir mjög mikilvægt að koma upp sameiginlegum bið- skýlum sem séu vöktuð eftir klukkan tvö á nóttunni. Fréttablaðið/anton Þá eru menn að lenda í því að það er verið að hoppa upp á bílana þeirra. Það er verið að slást um bílana. Kristján Róbert Walsh leigubílstjóri HeilbRigðismál Ungur maður svipti sig lífi á geðdeild Landspítalans (LSH) í fyrradag. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Þetta er í annað sinn á tíu dögum sem maður fellur fyrir eigin hendi á geðdeild spítalans. Maðurinn var á þrítugsaldri. H a n n v a r l a g ð u r i n n á bráðageðdeild á mánudag og var talinn í sjálfsvígshættu. Degi síðar, á þriðjudeginum, var hann færður á almenna deild. Hann fannst látinn í herbergi sínu á spítalanum í fyrradag. Lögregla og Embætti landlæknis rannsaka málið. – ósk Tvö sjálfsvíg á tíu dögum geðdeild lSH samfélag Dagmæður sem hafa aðstöðu í húsi á róluvelli við Rauðalæk fundu fíkniefni og umbúðir utan af sprautunálum á leikvellinum í gær. Íbúar í hverfinu voru í kjölfarið varaðir við á Facebook-síðu íbúa hverfisins og foreldrar hvattir til að skoða leikvöllinn vel áður en leikur hefst. „Börnin sváfu öll þegar við fund- um þessar umbúðir og efnin þannig að við gátum þrifið þetta upp. Svo sótthreinsuðum við svæðið hátt og lágt leituðum bara af okkur allan grun í garðinum,“ sagði Dagmar Ósk Harðardóttir, önnur dagmæðr- anna. Þær hafa aldrei orðið varar við neitt þessu líkt á leiksvæðinu áður. Aðspurð sagðist Dagmar engar leið- beiningar hafa fengið frá borginni eða öðrum um viðbrögð við fundi fíkniefna eða sprautunála. Aðrir dagforeldrar sem Fréttablaðið ræddi við sögðust hafa heyrt af sprautunálafundum dagforeldra í borginni en ekki fengið sérstakar leiðbeiningar um hvernig bregðast eigi við í slíkum tilvikum. – aá. Fíkniefni fundust á róluvelli Dagmæður fundu umbúðir utan af nálum. Fréttablaðið/norDicPHotoS Börnin sváfu öll þegar við fundum þessar umbúðir og efnin þannig að við gátum þrifið þetta upp eitt almennt stæði fyrir leigubíla á Hverfisgötu. Hreyfill er með stæði við Ingólfstorg og BSR í Lækjargöt- unni. „En við höfum fengið þau svör að það séu ekki til nein stæði fyrir hinar stöðvarnar,“ segir Kristján sem tilheyrir City Taxi. Hann vill að ef gerð yrðu ný stæði í Lækjar- götu og Sæbraut yrði öllum leigu- bílastöðvum boðin afnot af þeim. Guðmundur Börkur Thoraren- sen, framkvæmdastjóri BSR, segir að íbúar í nágrenni við skýlið hafi kvartað undan ónæði vegna skýlis- ins og á þá hafi verið hlustað. „En ef það á að vera sameiginlegt stæði sem á að vera opið á nóttunni þá hefur það alltaf verið okkar skoð- un að það ætti að vera í þessa átt,“ segir Guðmundur og vísar til þess að skýlið þurfi að vera MR-megin við Lækjargötuna. Eftir að gamla skýlinu hafi verið lokað hafi verið opnað skýli hinum megin við göt- una. „Það vissu það allir að það yrði aldrei neitt notað vegna þess að það er óþægilegt fyrir bílstjórana að koma þeim megin að þessu,“ segir hann. jonhakon@frettabladid.is 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 l a u g a R D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 3 -F 4 8 8 1 D 9 3 -F 3 4 C 1 D 9 3 -F 2 1 0 1 D 9 3 -F 0 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.