Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 4
FRUMSÝNUM
NÝJAN
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
Í DAG 26. ÁGÚST
OPIÐ FRÁ 12 - 17
tölur vikunar 20.08.2017 til 26.08.2017
98
þúsund
dísilbílar
voru skráðir
á Íslandi í
árslok 2016.
Hefur þeim
fjölgað um
36 þúsund
frá 2009.
30%
var aukning kortanotkunar Íslend-
inga á erlendri grund í fyrra, meðal
annars vegna aukinnar netverslunar.
33,2 milljörðum króna
nam erlend greiðslukortavelta í júlí.
Mestur vöxtur kortaveltu í júlí var í
flokki farþegaflutninga eða 29,5%.
54%
örorkuþega á þessu ári eru karlar á
aldrinum 20 til 24 ára.
400
kvartanir vegna mengun-
ar frá kísilverinu United
Silicon hafa borist
Umhverfis-
stofnun í
ágúst.
Samgöngur „Þeir áttu ekki von á
þessum fjölda hraðahindrana,“ segir
Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda
stjóri Strætó bs., en afhending á
fjórum fyrstu af níu rafmagnsstrætis
vögnum sem Strætó hefur keypt
hefur dregist um nokkra mánuði.
Óljóst er hvenær formleg afhending
verður. Ástæðan er breytingar sem
kínverskir framleiðendur vagnanna
þurfa að gera á þeim til að mæta
fjölda hraðahindrana í Reykjavík.
Nokkuð sem vagnarnir voru ekki
hannaðir fyrir.
Upphaflega stóðu vonir til að fá
fyrstu vagnana í júní en þegar það
gekk ekki eftir var stefnan sett á
mánaðamótin ágúst/september.
Jóhannes segir nú ljóst að afhending
in muni dragast enn frekar og engin
ákveðin dagsetning hefur fengist frá
kínverska bílaframleiðandanum
Yutong.
„Það kom upp þetta hönnunar
vandamál sem tengist styrkingum
sem þurfti að fara út í vegna þessa
fjölda hraðahindrana sem hér eru
á flestum leiðum og henta ekki fyrir
rafmagnsvagnana.“
Að sögn Jóhannesar þurfti að
hanna nýja og betri styrkingu í topp
stykki vagnanna sem hefði burð til
að þola högg frá hraðahindrunum
borgarinnar. Topphluti vagnanna er
úr áli og þar liggur hluti af stórum og
þungum rafhlöðum þeirra en hinn
hlutinn er aftan í þeim. Afhending
hefur því tafist meðan Kínverjarnir
glíma við þetta vandamál enda vilja
þeir ekki senda vagnana frá sér nema
að vera vissir um að hafa leyst það.
Í byrjun árs var greint frá því að
Strætó hefði fjárfest í níu rafmagns
knúnum vögnum frá Yutong en
kostnaðurinn við hvern og einn
nemur um 66 milljónum króna en
aðspurður segir Jóhannes að tafirnar
hafi ekki áhrif á kaupverðið.
Vagnarnir níu munu spara yfir
þúsund tonn af mengandi útblæstri
á ári og því spennandi verkefni á
tímum aukinnar vitundar fólks um
mikilvægi þess að skipta út jarðefna
eldsneyti. Uppgefið drægi vagnanna
er 320 kílómetrar, sem í sjálfu sér
þykir ekki mikið í dag, en ljóst var
að leggjast þyrfti í yfirlegu af hálfu
Strætó um hvaða leiðir hentuðu best
fyrir vagnana. Meðal annars með til
liti til hleðslumöguleika.
„Við erum tilbúnir að tefla fram
ákveðnum leiðum í þessu tilrauna
verkefni. Við vorum að gæla við að
þetta yrðu leiðir 4 eða 6 sem yrðu
með þessa vagna. Síðan ætlum við að
setja eina hleðslustöð á Hlemmi þar
sem báðar þessar leiðir koma við og
stoppa í ákveðinn tíma sem dugir til
að hlaða inn á þá. Þeir þurfa nokkrar
hleðslur á dag til að endast í 17 tíma
eins og þjónustutíminn er. Þó kíló
metrafjöldinn sé innan við uppgefið
kílómetradrægi.“
Jóhannes segir að starfsfólk Strætó
sé spennt fyrir þessu verkefni og bíði
því með óþreyju eftir vögnunum.
Hann sé þó hættur að treysta sér til
að nefna dagsetningar.
„En þetta kemur vonandi á næstu
mánuðum.“
mikael@frettabladid.is
Reykvískar hraðahindranir í
vegi rafmagnsvagna Strætó
Afhending rafmagnsstrætisvagna hefur dregist og óljóst hvenær Strætó fær fjóra fyrstu vagnana frá kín-
verska bílaframleiðandanum Yutong. Tafirnar má rekja til styrkinga sem gera þurfti á vögnunum til að ráða
við hraðahindranirnar í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Strætó vonast til að fá þá á næstu mánuðum.
Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. segir að mikil eftirvænting ríki fyrir komu rafmagnsvagnanna.
Það kom upp þetta
hönnunarvandamál
sem tengist styrkingum sem
þurfti að fara út í vegna þessa
fjölda hraðahindrana sem
hér eru á flestum leiðum.
Jóhannes Rúnarsson
Eiríkur Rögnvaldsson
prófessor í íslenskri
málfræði,
sagði hinn
flennistóra
H&Mpoka sem
komið var fyrir
á Lækjartorgi
vera dæmigerðan
fyrir það andvaraleysi
sem ríkti gagnvart tungumálinu.
Samkvæmt lögum eiga auglýsingar
sem höfða eiga til íslenskra neyt
enda að vera á íslenskri tungu.
Taldi Eiríkur augljóst að pokinn
væri ætlaður íslenskum viðskipta
vinum verslunarinnar. Borgin gæti
ekki þóst vera stikkfrí.
Svein björg Birna
Svein björns dótt ir
odd viti Fram sóknar
og flug vall ar vina í
Reykja vík,
hefur sagt
skilið við Fram
sóknar flokk inn.
Hún sagði flokks
menn raga við að
tjá skoð anir sínar um málefni
hælisleitenda. Sveinbjörg Birna
hafði verið gagnrýnd fyrir að tala
um sokkinn kostnað hjá borginni
vegna barna hælisleitenda.
Gylfi Þór Sigurðsson
knattspyrnumaður
skaut sér inn í
hjörtu stuðnings
manna Everton
þegar hann
skoraði af um
45 metra færi í
leik Everton og
jafnaði gegn Haj
duk Split. Ronald Koeman, stjóri
Everton, var nánast orðlaus yfir
tilþrifum Gylfa Þórs. Knattspyrnu
áhugamenn víða um heim tala
nú vart um annað en fyrsta mark
Gylfa Sigurðssonar fyrir Everton.
Markið kom Everton í Evrópu
deildina.
Þrjú í fréttum
Íslenska, pólítík
og undramark
2.200
íbúðir er áætlað að þurfi að byggja
í Reykjanesbæ til ársins 2030.
2 6 . á g ú S t 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
4
-0
8
4
8
1
D
9
4
-0
7
0
C
1
D
9
4
-0
5
D
0
1
D
9
4
-0
4
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K