Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 6

Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 6
Leiðrétting Í forsíðufrétt blaðsins í gær sagði að Thorsil vilji reka fjóra ljósbogaofna í Keflavík árið 2020. Það rétta er að fyrirtækið stefnir að því að tveir ofnar verði komnir í rekstur á þeim tíma. 21. - 26. ÁGÚST HJÓLAÐU Í SKÓLAN N AFSLÁTTUR AF GÖTUHJÓLU M OG HYBRID HJÓ LUM OG KROSS RE IÐHJÓLAHJÁLMUM TRYGGÐU ÞÉR ALVÖRU HJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI!WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 30% SamféLag Í síðustu viku unnu fjórir Lottóspilarar rúmlega 20 milljónir hver. Vinningshafarnir sem keyptu miðana sína í Happahúsinu og  í Kjarval á Kirkjubæjarklaustri hafa gefið sig fram en enn hafa starfs- menn Getspár ekkert heyrt frá vinningshöfunum sem keyptu sína miða hjá Olís í Álfheimum og Shell í Hveragerði. Vill því Getspá biðja þá sem keyptu sér miða á þessum sölustöð- um að kíkja vel á miðana sína  og kanna hvort þar leynist 20 milljóna króna Lottóvinningur. Tölurnar voru 5-15-28-37-39. – bb Milljónir leita réttra eigenda Minnst 23 látnir í Chandigarh í norðurhluta Indlands Minnst 23 eru látnir eftir að fylgjendur indverska gúrúsins Gurmeet Ram Rahim Singh mótmæltu eftir að hann var fundinn sekur um nauðgun. Yfir tvö hundruð þúsund fylgjendur gúrúsins voru samankomnir í Chandigarh í Indlandi vegna dómsmálsins. Eftir að dómurinn féll brutust út óeirðir. Gúrúinn var fundinn sekur um að hafa nauðgað tveimur konum í safnaðarheimili safnaðarins árið 2002. Fréttablaðið/nordicphotos reykjavík „Við höfum nákvæm- lega engar áhyggjur af því,“ segir Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, aðspurður um ummæli forsvarsmanna Orkuveitu Reykja- víkur (OR)  um hugsanlega máls- höfðun vegna mikilla ra k a s k e m m d a á ve s t u r h ú s i h ö f u ð s t ö ð v a Orkuveitunnar. Þ G Ve r k va r aðalverktaki við byggingu höfuð- st ö ð va O R á sínum tíma. Upplýsingafull- trúi OR lýsti því yfir í fjölmiðlum í gær að til skoðunar væri að höfða mál á hendur verktakanum sem byggði húsið þó engar ákvarðanir hafi verið teknar. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, sagði sömuleiðis að OR muni kanna lagalega stöðu sína og hugsanlegan bótarétt þegar fyrir liggur frá dómkvöddum mats- manni  hvar ábyrgðin er og hvert fjárhagslegt tjón verður. Þorvaldur segir að sér þyki  ein- kennilegt að í öllu ferlinu hafi OR aldrei haft samband við ÞG Verk. OR upplýsti í gær að allir útveggir vesturhúss höfuðstöðvanna væru skemmdir. Orsök rakaskemmda væri fyrst og fremst að rigningarvatn kemst í gegnum veðurhlíf útveggjar og nær að byggingarefnum sem eru viðkvæm fyrir raka. Megnið af byggingarefni útveggja vestur- húss er skemmt af völdum raka en kostnaður við úrbætur gæti numið milljörðum króna. Þorvaldur segir útveggina hafa verið á ábyrgð OR. „Það er ágætt að komi fram að Orkuveitan lét hanna fyrir sig þetta útveggjakerfi. Þeir keyptu útveggja- kerfið og sömdu við framleiðandann án okkar aðkomu og sömdu svo við okkur um uppsetningu á því sam- kvæmt þeirra fyrirmælum. Okkar partur var eingöngu sá að setja upp kerfi sem einhver annar keypti, full- framleitt og fullhannað, samkvæmt þeim fyrirmælum sem okkur voru gefin. Við búumst því ekki við frek- ari eftirmálum.“ Fjórtán árum eftir að höfuð- stöðvarnar voru teknar í notkun er nú ræddur sá möguleiki að rífa hið rakaskemmda hús. Ráðgjafar OR ráðleggja þó að byggð verði glerkápa utan um húsið og útveggir látnir standa. Veggir yrðu síðan endur- byggðir að innanverðu en áætlaður kostnaður við það nemur 1,7 millj- örðum króna. – smj Orkuveitan útvegaði útveggina Forstjóri aðalverktaka við byggingu höfuðstöðva OR segir Orkuveituna bera ábyrgð á hripleku útveggjakerfi höfuðstöðvanna. Hann segist ekki búast við eftirmálum, þó forsvarsmenn OR skoði lagalega stöðu sína. Vesturhús höfuðstöðva or er illa farið. LögregLumáL Fjórir menn voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæslu- varðhald í héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi, grunaðir um innflutning á fíkniefnum. Þetta staðfesti Grímur Grímsson yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir greindi fyrst frá málinu seint í gærkvöldi. Mennirnir voru handteknir af full- trúum deildarinnar í gær og hús- leitir voru framkvæmdar á tveimur stöðum vegna málsins. Hald var lagt á töluvert magn af amfetamínbasa, sem ekki hefur verið magngreint en um einn til tvo lítra gæti verið að ræða, að sögn Gríms. – aá Fjórir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald Grímur Grímsson, yfirmaður hjá lög- reglunni 4 lottóspilarar unnu rúmlega 20 milljónir hver 2 6 . á g ú S t 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 4 -1 C 0 8 1 D 9 4 -1 A C C 1 D 9 4 -1 9 9 0 1 D 9 4 -1 8 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.