Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 90

Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 90
Vo r i ð 1 8 1 5 va r ð sprengigos í eld-fjallinu Tambora á eyjunni Sumbawa í Hollensku Austur-Indíum (í dag Indó- nesíu). Eldsumbrotin urðu einhver þau mestu frá því að sögur hófust. Tugþúsundir létu lífið á nálægum eyjum, ýmist í gosinu sjálfu eða vegna uppskerubrests í kjölfarið. Áhrifanna gætti raunar miklu víðar. Gosaskan í lofthjúpnum varð til þess að hiti féll á jörðinni allri. Í Evrópu var 1816 kallað „árið þegar sumarið kom ekki“. Bændur voru grátt leiknir í ótíðinni 1816, en veðráttan átti líka eftir að setja mark sitt á bókmenntasöguna. Hópur enskra rithöfunda og bóhema, hafði tekið á leigu herra- garð í grennd við Genfarvatn um miðjan maí þetta sama ár, þar sem ætlunin var að njóta lífsins í hreinu loftinu, fjarri kolaryki og skarkala stórborgarinnar. Leiðtogi hópsins var skáldið Byron lávarður en einnig voru í för einkalæknir hans John William Polidori, sem einnig var skáld, og þriðja skáldið: Percy Shelley ásamt kornungri eiginkonu sinni, Mary. Draumar um ljúfar lautarferðir og hástemmdar sam- ræður yfir vínglasi í kvöldsvalanum fóru fyrir lítið. Vinirnir máttu hírast innandyra og berjast við að halda á sér hita. Til að stytta sér stundir tóku félag- arnir að segja draugasögur og ein- hvern veginn spratt sú hugmynd að þau myndu hvert semja sína hroll- vekjuna. Að sögn voru þær allar afar óhugnanlegar, en hvorki Byron né Percy Shelley hirtu þó um að festa sínar sögur á blað og eru þær því með öllu glataðar. Polidori, sem var einungis nítján ára gamall þrátt fyrir að hafa lokið læknisprófi, hafði vit á að hripa hjá sér minnispunkta. Þremur árum síðar sendi hann frá sér smásöguna „Vampýran“, sem varð hans langfrægasta verk og lagði í raun grunninn að nýrri bók- menntagrein: sögum um fólk sem nærist á blóði samferðamanna sinna. Saga sem allir þekkja Það var þó Mary Shelley, sem enn var einungis átján ára gömul, sem lét eftir sig þrekvirki ferðarinnar. Að sögn fékk hún skelfilega mar- tröð eftir eitt draugasögukvöldið og sýnin úr draumnum hélt áfram að sækja á hana. Tæpum tveimur árum síðar birti hún söguna á prenti og sló hún þegar í gegn. Í karlrembu- samfélagi þeirrar tíðar áttu margir bágt með að trúa því að stúlka um tvítugt gæti ritað slíkt þrekvirki og reyndu ýmsir ranglega að eigna manni hennar verkið. Sagan nefnd- ist Frankenstein. Flestir þekkja meginatriði sög- unnar um Frankenstein þótt oft og tíðum sé sú vitneskja fengin úr mis- góðum kvikmyndagerðum eða jafn- vel skopstælingum. Í þeim útgáfum er dregin upp mynd af doktor Fran- kenstein sem sturluðum vísinda- manni í skuggalegri höll, sem skapar lifandi veru – skrímsli – með aðstoð kroppinbaks. Skáldsaga hinnar ungu Shelley ristir þó öllu dýpra. Vísindamaður- inn ungi, Viktor Frankenstein, er enginn vitfirringur heldur ungur læknanemi sem heillast af nýjustu kenningum á sviði lífvísinda og rafmagnsfræði, sem og skrifum gamalla gullgerðarmanna. Rekinn áfram af fræðilegum áhuga ein- setur hann sér að skapa lífveru, öllu heldur manneskju, úr líkamsleifum úr nálægum kirkjugarði. Þegar tilraunin heppnast taka tvær grímur að renna á Franken- stein. Veran reynist meiri óskapnað- ur í útliti en vísindamaðurinn gerði sér í hugarlund og í raun hafði hann ekki hugsað málið til enda. Ákefðin við að framkvæma tilraunina var slík að hann leiddi aldrei hugann að því hvað því næst tæki við. Skepnan flýr á braut og Frankenstein fær taugaáfall, enda útkeyrður eftir stanslausar vökur og störf. Glæpur Frankensteins í sögunni er því ekki að skapa lifandi veru, heldur að taka ekki ábyrgð á upp- götvun sinni. Skepnan, sem reynist góðum gáfum gædd, leitar skapara sinn uppi og grátbiður hann um að gerast herra sinn og koma sér inn í mannlegt samfélag. Frankenstein neitar, en þá biður skepnan hann um að skapa sér lífsförunaut og saman myndu þau flytjast óralangt í burtu, á sléttur Suður-Ameríku. Vísindamaðurinn tekur ágætlega í hugmyndina og hefst handa við að skapa konu, en skiptir um skoðun í miðju kafi þegar hann áttar sig á hættunni á að veröldin muni fyll- ast af afkomendum sköpunarverka hans. Við það rennur æði á skepn- una sem drepur ástvini Franken- steins einn af öðrum. Sögunni lýkur á að vísindamaðurinn eltir skrímsli sitt alla leið til norðurpólsins þar sem hann drepur það eftir mikil átök. Frankenstein deyr því næst af sárum sínum, en þó ekki fyrr en eftir að hafa sagt ferðalangi sögu sína, sem festir hana á blað. Vin á norðurpólnum Sagan um Frankenstein hefur verið kölluð fyrsta nútímavísindaskáld- sagan, í þeim skilningi að hún tekst á við stórar siðferðislegar spurn- ingar tengdar vísindum. Annað einkenni á vísindaskáldskap er að þar leika höfundar sér með fregnir af nýjum vísindauppgötvunum og spinna þráð um hvaða áhrif þær kunni að hafa í framtíðinni. Þótt við fyrstu sýn beri lítið á slíkum vísunum í Frankenstein má þær þó finna ef vel er að gáð. Fyrst má nefna það atriði sög- unnar sem nútímalesendum kann að þykja skringilegast, það er bar- dagi Frankensteins og skepnunnar á norðurpólnum. Þau átök gerast ekki á miðri ísbreiðunni, heldur á grasi grónu landi. Hafa ber í huga að árið 1816 var norðurheimskautssvæðið að mestu ókannað. Hugmyndin um að á norðurpólnum sjálfum væri fast land að finna var gamalgróin. Forngrikkir sáu fyrir sér blómlegt ævintýraland, sem byggt væri risum og þakið gróðri enda nyti þar sólar í sífellu. Á sextándu öld gerði korta- gerðarmaðurinn Mercator ráð fyrir ógnarstóru fjalli úr járni á norður- pólnum miðjum, sem skýrt gæti hvers vegna áttavitar virkuðu eins og raun ber vitni. Þegar komið var fram á nítjándu öld var hugmyndin um stórt íslaust svæði á norðurpólnum klædd í vísindalegan búning. Var hún ein forsenda þess að stjórnvöld ýmissa ríkja voru jafn reiðubúin og raun ber vitni að fjármagna leiðangra til að leita norðvestur- og norðaustur- siglingaleiðanna til Asíu. Sam- kvæmt kenningunni mátti búast við íslausu hafsvæði fyrir norðan 80. breiddargráðu, þar sem sjórinn væri jafnvel hlýr. Ef einhverjar eyjar eða jafnvel meginland væri þar að finna, myndi umhverfið fremur minna á sólrík suðurlönd en norðurhjara. Lífsandinn fangaður Þegar kemur að sköpun skepnu Frankensteins, skautar Mary Shelley hratt yfir sögu varðandi tæknileg atriði. Hún gerir enga til- raun til að sannfæra lesandann um að unnt sé að framkalla líf með því að slá um sig með vísindalegum hugtökum. Þó er margt sem bendir til þess að höfundurinn hafi sótt innblástur í nýjustu vísindakenn- ingar sinnar tíðar. Shelley nefnir í skrifum sínum sérstaklega rannsóknir Erasmusar Darwins, afa náttúrufræðingsins kunna. Darwin eldri var fjölfræð- ingur og setti fram óljósar kenn- ingar um þróun lífvera sem nutu lít- illar hylli en höfðu væntanlega þeim mun meiri áhrif á barnabarnið. Líkt og aðrir náttúruvísindamenn síns tíma freistaði Erasmus Darwin þess að svara spurningunni um hvort líf gæti kviknað í dauðu efni án utan- aðkomandi afskipta. Spurningin hafði gríðarlega mikið að segja og lá að margra mati ekki síður á sviði guðfræði en raunvísinda. Darwin eldri skrifaði um tilraun sína þar sem honum tókst að vekja til lífsins lindýr sem legið hafði hreyfingarlaust, líkt og dáið, um nokkurra daga skeið. Shelley frétti af tilrauninni og túlkaði fregnina, líkt og svo margir, á þá leið að vísinda- manninum hefði tekist að endur- lífga dauða lífveru. Ekki þurfti mikið ímyndunarafl til að yfirfæra þessa fregn yfir í að vísindunum tækist senn að vekja upp mannslík. Aðrir vísindamenn voru farnir að prófa sig áfram með öllu stærri lífverur en smásæ lindýr. Ítalski vísindamaðurinn Galvani gerða fræga uppgötvun árið 1780 þegar honum tókst með hjálp rafmagns að framkalla kippi í afskornum froska- löppum. Galvani dró kolranga ályktun af uppgötvun sinni og taldi sig hafa fundið nýja gerð rafmagns, svokallað dýrarafmagn. Ítalski eðlisfræðingurinn Aless- andro Volta áttaði sig þegar á misskilningi landa síns og nýtti uppgötvunina til að finna upp raf- hlöðuna. Galvani sat þó við sinn keip og eignaðist fjölda fylgjenda, Galvanista, sem trúðu því að frek- ari rannsóknir á þessu skrítna raf- magnsfyrirbæri gætu leitt til mikilla framfara og jafnvel unnið sigur á dauðanum. Enginn gekk þó lengra en ungur frændi Galvanis, Giovanni Aldini, sem fékk árið 1803 leyfi breskra yfir- valda til að gera tilraunir á dæmdum morðingja rétt að lokinni aftöku. Maðurinn var hengdur fyrir morð á konu sinni og dóttur. Meðan líkið hékk enn í snörunni, hleypti Aldini í það rafstraumi með þeim afleiðing- um að hendur þess og fætur sveifl- uðust til og frá, andlit hins líflátna morðingja afmyndaðist í grettu og annað augað opnaðist. Fólk sem viðstatt var sýninguna sturlaðist af hræðslu og var skelfingunni kennt um að böðullinn dó skömmu síðar. Ef til vill var þessi groddalega vís- indasýning kveikjan að sögu Mary Shelley fáeinum árum síðar. Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem veru- leikinn tæki skáldskapnum fram í hryllingi. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um skáldsögu með fortíð. & vísindinFrankenstein  … einhvern veginn SPratt Sú hugmynd að þau myndu hvert Semja Sína hrollvekjuna. 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R38 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 3 -F E 6 8 1 D 9 3 -F D 2 C 1 D 9 3 -F B F 0 1 D 9 3 -F A B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.