Fréttablaðið - 26.08.2017, Síða 94

Fréttablaðið - 26.08.2017, Síða 94
2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R42 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð tímamót H ið íslenzka reðasafn fagnar tuttugu ára afmæli sínu í dag með hátíðarhöldum í hús-næði safnsins. Safnið var formlega stofnað þann 23. ágúst 1997 af Sigurði Hjartar- syni. Hann verður heiðraður af þessu til- efni í kvöld en sonur hans, Hjörtur Gísli Sigurðsson, tók við rekstri árið 2011. Einnig verður af tilefninu gefin út bókin Mythical Members, tekin saman af Þórði Ólafi Þórðarsyni aðstoðarreða- safnstjóra, sem fjallar um þær kynja- skepnur sem eiga fulltrúa í þjóðfræði- deild safnsins. Safnið var opnað á Laugavegi 24 árið 1997, en fluttist svo á Húsavík 2004 og var þar til 2011, og flutti svo á Hverfis- götu þar sem áformað er að hafa það um ókominn tíma. „Þetta eru 99,5 prósent erlendir ferðamenn eins og staðan er eftir sumarið,“ segir Hjörtur. „Þegar pabbi var með þetta fyrir norð- an skiptist til helminga að Íslendingar og erlendir ferðamenn kæmu. Það er bara eins og Íslendingar skoði ekki söfn nema þeir séu í fríi og helst einhvers staðar annars staðar en heima hjá sér,“ segir Hjörtur. „Við fáum aðalleg skólahópa og óvissuferðir, það er aðallega þannig sem Íslendingar koma til okkar,“ segir Hjörtur. Að sögn Hjartar er misjafnt á hverju gestir hafa mestan áhuga innan safnsins. Þó standi nokkrir limir upp úr. „Stærsti limurinn er af búrhval og er ansi stór, mannhæðarhár og 70 kíló og hann vekur mikla athygli, og svo er það mannslim- urinn. Við fengum hann í febrúar 2011. Við þurftum að bíða eftir honum í mörg ár þótt gefandinn hafi verið háaldraður þegar hann gaf loforðið um lim sinn.“ Hjörtur segir að reksturinn gangi vel. „Þetta helst í hendur við fjölgun erlendra ferðamanna má segja. Eftir því sem þeim fjölgar því meira höfum við fengið. Við fáum mjög mikla athygli. Við erum stanslaust að fá blaðagreinar og sjón- varps- og útvarpsviðtöl erlendis. Við erum mjög vel kynnt í útlöndum.“ „Þar sem þetta er reðurstofa Íslands líka, fræðasetur, þá erum við að gefa út bók í tilefni dagsins sem er tileinkuð gamla manninum sem fjallar um þjóð- fræðideildina okkar sem útlending- unum finnst mjög merkileg líka; typpin á þessum kynjaverum sem við eigum en enginn annar,“ segir Hjörtur. Í dag starfa fimm manns hjá reða- safninu og hefur fjölgað mikið frá því að Sigurður stóð vaktina einn fyrir tuttugu árum. saeunn@frettabladid.is Búrhvalstyppið stendur upp úr meðal safngripa Hið íslenzka reðasafn varð tuttugu ára í vikunni. Safnið er alltaf jafn vinsælt, sérstaklega meðal útlendinga. Limurinn af búrhval og mannslimurinn vekja einna mestu athygli. Sigurður Hjartarson stofnaði safnið en sonur hans, Hjörtur Gísli, tók við árið 2011. Hjörtur Gísli Sigurðsson tók við rekstri safnsins árið 2011. Hann segir búrhvalsliminn einn þann vinsælasta. Fréttablaðið/anton brink Við fáum mjög mikla athygli. Við erum stanslaust að fá blaðagreinar og sjónvarps- og útvarpsviðtöl erlendis. Við erum mjög vel kynnt erlendis. Hjörtur Gísli Sigurðsson, safnstjóri Hins íslenzka reðasafns 1896 Suðurlandsskjálfti hinn fyrri. Fjöldi bæja í Rangár- vallasýslu hrynur til grunna. 1929 Vélbáturinn Gotta kemur til Reykjavíkur með fimm sauðnautskálfa frá Grænlandi. 1967 Bítlarnir, Mick Jagger og Marianne Faithfull fara saman á fund Maharishi Mahesh yoga. 1979 Átta alda afmælis Snorra Sturlusonar minnst með Snorrahátíð í Reykholti. 1991 Ísland tekur formlega upp stjórnmálasamband við Eistland, Lettland og Litháen. Merkisatburðir Elskulegur faðir minn, afi, sonur, bróðir, mágur og frændi, Jóhann Halldórs lést í Houston, Texas, þriðjudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Berglaug Dís Jóhannsdóttir Sigfús Halldórs Victoria Anna Berglaugardóttir Helgi Halldórs Halldór Halldórs Hallmar Halldórs Sigríður Jóhannsdóttir og fjölskyldur. Bróðir okkar og mágur, Gunnar Jens Þorsteinsson Sambýlinu Siglufirði, áður til heimilis að Norðurgötu 9, er látinn. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. september kl. 15. Páll Þorsteinsson Ragna Pálsdóttir Kristín Björg Þorsteinsdóttir Gunnlaugur Þór Pálsson Hannes Þorsteinsson Sigrún Harðardóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigrún Björnsdóttir Skálateigi 5, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð þann 21. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 1. september kl. 13.30. Valgeir Þór Stefánsson Arnar Valgeirsson Elena Zaytseva Ingvar Valgeirsson Helga Olsen Viðar Valgeirsson Ragna Björg Ársælsdóttir og barnabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Ásbjörn Guðmundsson pípulagningarmeistari, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 21. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 31. ágúst kl. 13.00. Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýju. Guðrún Sigurðardóttir Sigurður Valur Ásbjarnarson Hulda Stefánsdóttir Guðmundur Ásbjörn Ásbjörnsson Svanhildur Benediktsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Páll Hannesson barnabörn, langafabörn og langalangafabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar Elíasar Ólafs Guðmundssonar fyrrverandi eiganda Nylonhúðunar. Sérstakar þakkir til starfsfólks B-2, taugalækningadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Bryndís Guðmundsdóttir Sesselja Svansdóttir Kristín Svansdóttir Tryggvi Svansson og frændfólk. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Agnes Guðnadóttir Skálatúni 10, Akureyri, lést á heimili sínu umvafin fjölskyldu sinni 22. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 4. september kl. 13.30. Konráð Alfreðsson Guðni Konráðsson Linda Ólafsdóttir Lára Steina Konráðsdóttir Friðjón Sigurðsson Valdís Konráðsdóttir Ellert Jón Þórarinsson og barnabörn. Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Hinsti vilji Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu- lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 4 -2 5 E 8 1 D 9 4 -2 4 A C 1 D 9 4 -2 3 7 0 1 D 9 4 -2 2 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.