Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 100

Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 100
Krakkaappið: Lestrarhestur vikunnar Stefán Arnar Gunnarsson Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Á bókasafninu skrifa þau nafn á áhuga- verðri bók sem þau hafa lesið á bókarkjöl ásamt nafni, aldri og síma- númeri. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur. Hvað ertu búinn að gera í sumar? Ég er búinn að fara út á land og gera fullt skemmtilegt. Hefurðu farið eitthvað til útlanda? Já, hef farið til Ítalíu, Kanaríeyja og Krítar. Ferðu oft til útlanda? Nei, en mamma og pabbi fara oftast. Hvað er skemmtilegast við það að fara til útlanda? Fá vatnsbyssur og fara í sundlaugargarð og borða fullt af ís. Ertu búinn að vera mikið í fót- bolta í sumar? Já, er búinn að fara á tvö fótboltamót og spila fótbolta í allt sumar. „Áfram Valur!!“ Hver er uppáhalds fótboltamað- urinn þinn? Christiano Ronaldo og Gylfi Sigurðsson. Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór? Fótboltamaður. Við hvað viltu vinna? Atvinnu- maður hjá Liverpool eða Barcelona. Ertu að flytja? Já, var að flytja í rosa flott hús með stórum garði. Hvor er duglegri að flytja, mamma eða pabbi? Mamma og pabbi voru alveg jafn dugleg að flytja. Ert þú eitthvað að hjálpa til? Nei, ég leyfði mömmu og pabba alveg að sjá um þetta. Gaman að fara til útlanda og borða fullt af ís Loki Þórsson er að verða sjö ára gamall og hefur mikinn áhuga á fótbolta. Honum finnst gaman að ferðast og hefur átt fjörugt og gott sumar. Loki flutti einnig í nýtt hús í sumar. Loki hefur átt gott sumar, fjörugt og viðburðaríkt. FréttabLaðið/Eyþór Fá vatnsbyssur oG Fara í sundlauGar- Garð oG borða Fullt aF ís. „Þetta er nú meira vegg- skriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún við með fyrir- litningu. „En hann er nú bara orðinn gamall,“ sagði Konráð á ferð og flugi og félagar 264 Getur þú hjálpað þeim að telja hvað va ntar marga steina í vegginn? ? ? ? Konráð. „Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. „En við verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast eitthvað áfram,“ sagði Kata. „Spurning hvort það vanti það marga steina að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við glottandi. Enda augljóst að auðvelt væri að komast í gegnum svona stórt gat án þess að þurfa að troða sér. lausnin á þrautinni Í vegginn vantar níutíu og fjóra steina ? Hvað er skemmtilegast við bækur? Mér finnst gott að vera einn inni í herbergi að lesa. Auk þess er alltaf hægt að verða betri og betri í lestri eftir því sem maður les meira. Hvað bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég var að klára Risaeðlur í Reykjavík sem ég er búinn að lesa svo oft að ég hef ekki tölu á því. Hún er uppá- haldsbókin mín. Mér finnst allar bækurnar eftir Ævar Þór skemmtilegar. Hún er skemmti- leg því það eru risaeðlur í henni. Hvernig bækur þykja þér skemmtilegastar? Ævintýra- bækur eins og Harry Potter og Risaeðlur í Reykavík. Í hvaða skóla gengur þú? Ingunnarskóla í Grafarholti. Ferðu oft á bókasafnið? Já, mjög oft. Einu sinni í mánuði fer ég í Spöngina, við förum um leið og við förum að versla. Síðan fer ég líka á bókasafnið í skólanum. Hver eru þín helstu áhugamál? Fótbolti, að lesa, stærðfræði og að spila á píanó. Leikjaappinu Sago Mini Friends er hægt að hlaða niður án þess að borga fyrir það. Leikurinn er skemmtilegur og litríkur, þeir sem spila hann velja sér söguhetju og fara um hverfi þar sem þrautir eru á hverju strái. Í leiknum er sérstak- lega hvatt til hjálpsemi, umburðar- lyndis og samkenndar. Söguhetjur þurfa að laga, deila með sér og hjálpa til að leysa þrautir. Leikur sem hvetur til samkenndar Stefán arnar Sago mini friends 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R48 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð krakkar 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 4 -2 0 F 8 1 D 9 4 -1 F B C 1 D 9 4 -1 E 8 0 1 D 9 4 -1 D 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.