Fréttablaðið - 26.08.2017, Síða 116
MENNINGARLANDIÐ
2017
Ráðstefna um barnamenningu þar sem áhersla er lögð á
menningu fyrir börn og menningu með börnum.
13.–14. september í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík
Aðalfyrirlesarar Tamsin Ace og Shân Maclennan frá
Southbank Centre London.
Vinsamlegast skráðu þig fyrir 7. september nk.
Þáttökugjald 5.500 kr. (hádegismatur báða daga og kvöldverður 13. september).
Skráning og frekari upplýsingar hér:
www.menntamalaraduneyti.is
www.facebook.com/menningBarna/
Morgnar
Hádegi
Hádegið er mjög auðvelt viðureignar enda bjóða flestir veitingastaðir
upp á einhvers konar hádegistilboð. Þægilegasta leiðin til að ramba
á gott tilboð er Nova appið þar sem er boðið upp á 2 fyrir 1 tilboð
sem gilda gjarnan í hádeginu. Líka gott fyrir svanga að fá sér tvöfaldan
skammt á verði einfalds.Það er gríðarlega dýrt að lifa á Íslandi og þá sérstaklega á höfuð-borgarsvæðinu. Nánast daglega koma fréttir um að húsnæðisverð hækki,
matur er fokdýr og ef fólk vill endi-
lega stunda þann hræðilega ósið
að drekka áfengi þá þarf nánast að
taka bankalán til þess, bara svo örfá
dæmi séu tekin. En ef maður leggur
dálítið á sig er mögulega hægt að
auðvelda róðurinn eilítið þannig að
það sparist nokkrir aurar aukalega
sem er hægt að eiga upp í til dæmis
fokdýra húsaleigu eða eitthvert
eilífðarlánið. Lífið fór á stúfana og
skoðaði hvernig og hvar er best að
spara í mat og drykk.
Stefán Þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Á síðustu og verstu er dýrt að lifa enda kosta
hlutir almennt frekar mikið. Sumir hafa þó
ákveðna unun af því að spara og nýta sér
tilboð, sem er hið besta mál. Lífið bendir hér
á nokkrar leiðir til að iðka tilboðslífsstílinn.
Þessir feðgar sanna að bíó er stór-
kostleg afþreying.
Pylsur eru kannski ekki besta næringin en þær eru betri en ekkert.
Tilboðslífsstíllinn þýðir það að pitsa er oft kvöldmaturinn og ekkert
nema gott um það að segja.
Afþreying
l Afþreying snýst mest um hug-
myndaflug. Á sumrin er hellingur í
boði. Sumar líkamsræktarstöðvar
eru tengdar sundlaugum og þar er
hægt að fá ákveðið tveir fyrir einn
tilboð í afþreyingu/líkamsrækt.
l Almenningsgarðar geta talist
ákveðin afþreying – þar eru oft
styttur og annað sem hægt er að
skoða.
l Alls kyns útivist er í boði víðs
vegar um borgina. Á veturna er
þetta þó aðeins erfiðara. Smára-
og Háskólabíó bjóða upp á
þriðjudagstilboð. Síðan eru það
auðvitað bókasöfn – þar er hægt
að sitja án þess að borga krónu
og lesa bækur, en það er besta
afþreying allra tíma.
Guði sé lof fyrir happy hour.
Morgnar eru erfiður tími til matar-
kaupa, kaffi er augun úr og réttir
eins og ristað brauð með avacado
eru ástæðan fyrir því að unga
kynslóðin á ekki fyrir
húsnæði (það hefur
ekkert með nýfrjáls-
hyggjuna að gera).
Það eru margir sem vilja meina
að morgunmatur sé í raun ekki
eins nauðsynlegur og oft er talað
um, að „mikilvægasta máltíð
dagsins“ sé bara frasi búinn til til
þess að selja morgunkorn.
Hér verður ekkert rætt um
sannleiksgildi þessara full-
yrðinga, en ein góð lausn á
morgunmatarvandamálinu
er að stoppa í næsta banka-
útibúi á leiðinni í vinnuna og
fá sér einn frían kaffibolla.
Morgunmatur meistarans!
Lífið í
tilboðum
Kvöldverður
Hér kemur dæmi um matseðil fyrir vikuna:
MánudAGur
Mánudagstilboð
Pizzunnar.
ÞriðjudAGur
Þriðjudagstilboð
Hraðlestarinnar.
MiðviKu-
dAGur
Miðvikudags-
tilboð Eldsmiðj-
unnar.
FiMMTudAGur
Culiacan er með
valda rétti á til-
boði alla daga.
FösTudAGur
Subway bátur
dagsins, hefur
komið ýmsum í
gegnum nám.
LAuGArdAGur
Pylsutilboðið
í 10-11
hefur mögulega
bjargað lífum.
sunnudAGur
Latin sunnu-
dagur á Burro
– heilir þrír réttir
ásamt drykk.
Nammi
Hér er langbest að fara
á nammibar á laugar-
degi og troðfylla einn
poka og láta hann duga
út vikuna, það eru
langbestu kaupin.
drykkir
Drykkja er mikill ósiður. En fyrir þá
sem endilega vilja stunda drykkju
er fyrirbærið happy hour himna-
sending. Flestir barir og veitinga-
staðir eru með einhvers konar
útgáfu af happy hour – það er
kannski best að velja sér einn
bar, leggja á minnið á hvaða tíma
er boðið upp á happy hour þar
og mæta alltaf þá og fara svo
snemma heim þegar hamingju-
stundin er liðin. Appið Appy Hour
er góð leið til að finna út hvenær
þessar hamingjustundir eru.
Önnur leið er að skoða hvenær
listasýningar eru opnaðar og
mæta – bæði fær maður að njóta
listar en einnig eru oftast ein-
hverjar veigar í boði. Tvær flugur í
einu höggi.
2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R64 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
4
-1
7
1
8
1
D
9
4
-1
5
D
C
1
D
9
4
-1
4
A
0
1
D
9
4
-1
3
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K