Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Qupperneq 6
Helgarblað 20.–23. janúar 20176 Fréttir
Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum
iP
one í úrvali
Erum flutt á Grensásveg 14
Allskyns
aukahlutir
Grensásvegur 14
s: 534 1400
Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast
Reynslulitlir stjórnarþingmenn
n Aðeins 9 almennir þingmenn meirihlutans með þingreynslu n Naumur meirihluti meira áhyggjuefni
A
f þeim þingmönnum
stjórnarflokkanna sem
ekki sitja á ráðherrastóli
hafa aðeins níu setið áður
á Alþingi. Enginn óbreyttur
þingmaður Viðreisnar eða Bjartrar
framtíðar hefur þingreynslu. Þing-
mennirnir níu sem áður hafa setið á
þingi koma allir úr Sjálfstæðisflokki
og af þeim voru sex kjörnir á þing
í kosningunum 2013, hafa aðeins
setið eitt kjörtímabil.
Bent hefur verið á þessa stað-
reynd og þetta talið veikleiki hjá rík-
isstjórn Bjarna Benediktssonar. Þeir
sem DV ræddi við telja þó fremur að
naumur þingmeirihluti, aðeins eins
þingmanns meirihluti, muni hafa
meiri áhrif.
Birgir Ármannsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir
ekki sjálfgefið að reynsluleysi þing-
manna stjórnarmeirihlutans verði
ríkisstjórninni fjötur um fót. „Ekkert
endilega, það á auðvitað bara eftir
að koma í ljós. Staðan er sú að það er
mikið af nýjum þingmönnum bæði
í stjórn og stjórnarandstöðu og það
er auðvitað líklegt að það hafi áhrif á
þingstörfin. Við getum ekki útilokað
að einhverjir hnökrar verði á í upp-
hafi á meðan fólk er að læra og það
á við um bæði þingmenn stjórnar og
stjórnarandstöðu.“
Birgir segir að nú sem endranær
skipti máli að samstarf milli
stjórnar og stjórnarand-
stöðu verði með góðum
hætti. Einkum sé mik-
ilvægt að samkomu-
lag náist um vinnu-
lag en ágreiningur
rísi fremur um
málefni heldur
en málsmeð-
ferð.
Byrjunin ekki
góð
Katrín Jak-
obsdóttir,
formaður
Vinstri
grænna, segir að henni þyki líklegra
að naumur meirihluti ríkisstjórn-
arflokkanna muni hafa meiri áhrif
á þingstörfin en reynsluleysi
þingmanna. „Það er augljós
staðreynd að það er erfitt
að vera með eins manns
meirihluta. Almennt er
það umhugsunarefni
hversu lítil reynsla er
á Alþingi. Ég er ekki
viss um að þetta
styrki endilega stöðu
stjórnarandstöð-
unnar en stað-
reyndin er bara
sú að þetta
hefur veruleg
áhrif á þingstörf-
in. Þetta getur auð-
vitað haft bæði já-
kvæð og neikvæð
áhrif á þingstörfin
en það má samt
benda á að þrátt
fyrir þessa miklu
endurnýjun frá
kosningunum
2007 hefur ver-
ið kvartað yfir
því að vinnu-
brögð á Al-
þingi hafi
ekki breyst til
batnaðar.“
Katrín bendir á að þótt almennt
hafi þingstörfin gengið vel fyrir ára-
mót, þegar ekki var búið að mynda
nýja ríkisstjórn, sé ekki endilega
ástæða til bjartsýni nú. „Það er ekki
góð byrjun hjá meirihlutanum að
koma skilaboðum á framfæri við
minnihlutann í fjölmiðlum,“ segir
Katrín og tiltekur þar meðal annars
að meirihlutinn hafi ákveðið án sam-
ráðs hverjir taki við formennsku í
nefndum.
Reynsluleysi mun setja mark á
þingstörf
Einar Kristinn Guðfinnsson sat á
þingi í aldarfjórðung fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og gegndi embætti for-
seta Alþingis á síðasta kjörtímabili.
Einar Kristinn segir engan vafa á að
reynsluleysi þingmanna muni hafa
áhrif á þingstörf, einkum í upphafi
kjörtímabilsins. „Ég hef áður sagt að
það hefur verið einn vandi þingsins
hversu miklar breytingar hafa orðið
á þingliðinu í hverjum kosningun-
um á fætur öðrum, allt frá og með
kosningunum árið 2007. Þetta slær
öll met og vissulega má búast við
því að svona mikil endurnýjun muni
setja svip sinn á störf Alþingis. Það er
auðvitað sérhæft verkefni að taka til
starfa sem þingmaður en ég geri nú
ráð fyrir að þeir nýju þingmenn sem
kjörnir voru muni bara ná tökum á
verkefnunum fljótt.“
Einar Kristinn bendir hins vegar
á að frá því síðastliðið vor hafi störf
þingsins verið með mjög góðum
brag. Alþingi hafi tekist á við erf-
iða stöðu með miklum myndarskap.
Hið sama hafi gerst nú eftir síðustu
kosningar, á meðan ekki hafði tek-
ist að mynda nýja ríkisstjórn. „Mér
fyndist undarlegt ef það yrði skyndi-
leg stefnubreyting á því,“ segir Einar
Kristinn.
Hvað varðar það hvort þetta
reynsluleysi muni hafa áhrif á stöðu
stjórnarmeirihlutans segir Einar
Kristinn að það gæti vel haft einhver
áhrif. Hann bendir þó á að naum-
ur þingmeirihluti ríkisstjórnarinn-
ar muni hafa enn meiri áhrif. „Ég tel
að þetta gæti ýtt undir að það verði
meira samtal milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu, ég hef raunar tekið eft-
ir því að ýmsir nýir þingmenn hafa
talað fyrir því. Ég vil þó ítreka að það
hefur alltaf verið slíkt samtal milli
flokka í þinginu en í ljósi þess að
þingmeirihlutinn er þetta naumur
tel ég að það gæti orðið í enn frekara
mæli nú en verið hefur.“ n
Margir nýir þingmenn Mikil endurnýjun varð á þingheimi í síðustu kosningum. Það hefur verið raunin síðustu fernar kosningar.Mynd SigtRygguR ARi„Það er ekki
góð byrjun hjá
meirihlutanum að koma
skilaboðum á framfæri
við minnihlutann í fjöl-
miðlum
Stjórnarþingmenn
með þingreynslu
Tólf eru nýir
Ásmundur Friðriksson
n Kjörinn á þing árið 2013
n Sat í atvinnuveganefnd og vel-
ferðarnefnd.
Brynjar níelsson
n Kjörinn á þing árið 2013
n Sat í stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd, umhverfis- og samgöngunefnd,
velferðarnefnd og efnahags- og
viðskiptanefnd.
Haraldur Benediktsson
n Kjörinn á þing árið 2013
n Sat í atvinnuveganefnd og fjár-
laganefnd.
Valgerður gunnarsdóttir
n Kjörin á þing árið 2013
n Sat í fjárlaganefnd og forsætisnefnd.
Vilhjálmur Árnason
n Kjörinn á þing árið 2013
n Sat í allsherjar- og mennta-
málanefnd og umhverfis- og sam-
göngunefnd.
Vilhjálmur Bjarnason
n Kjörinn á þing árið 2013
n Sat í efnahags- og viðskiptanefnd og
utanríkismálanefnd.
Ólöf nordal
n Sat á þingi frá 2007 til 2013
n Var innanríkisráðherra á árunum
2014 til 2016. Hefur setið í flestum
fastanefndum Alþingis.
*Er í veikindaleyfi.
unnur Brá Konráðsdóttir
n Kjörin á þing árið 2009
n Hefur setið í flestum fastanefndum
Alþingis og var formaður í allsherj-
arnefnd á síðast kjörtímabili.
*Verður forseti Alþingis.
Birgir Ármannsson
n Kjörinn á þing
árið 2003
n Hefur setið
í flestum
fastanefnd-
um Alþingis
og verið for-
maður bæði
allsherjarnefnd-
ar og utanríkis-
málanefndar.
*Er þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Mynd SigtRygguR ARi
Mynd KRiStinn MAgnúSSon
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is