Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Síða 17
Helgarblað 20.–23. janúar 2017 Fréttir Erlent 17
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Sönglaði lady gaga og hlóð niður gögnum
n Chelsea Manning náðuð af Bandaríkjaforseta n Einn mikilvægasti uppljóstrari sögunnar losnar úr fangelsi í vor n Lak gögnunum til að reyna að bæta heiminn
„Mikil
gleðitíðindi“
Kristinn Hrafnsson, fyrrverandi talsmaður
Wikileaks, sagði í Morgunútvarpi Rásar
2 að hann væri afar ánægður með að
dómurinn hafi verið mildaður. Manning sé
einn mikilvægasti uppljóstrari síðari tíma.
Málið hljóti að fela í sér að sakamálið gegn
Wikileaks verði látið falla niður.
„Þetta eru mikil gleðitíðindi og sigur
fyrir réttlætið að búið sé að milda þennan
dóm yfir henni og að hún sé að losna eftir
nokkrar vikur. Hún er mikilvægasti upp-
ljóstrari síðari tíma sem sýndi gríðarlegt
hugrekki með því að miðla upplýsing-
um um mjög mikilvæg málefni,“ sagði
Kristinn í Morgunútvarpinu að morgni
miðvikudags.
rísku leyniþjónustunnar. Hún var
þrátt fyrir það lágt sett innan leyni-
þjónustunnar og var sögð á rýrum
launum.
Leiddist í hernum
Að sögn vina hennar gramdist
henni að ferill hennar virtist staðn-
aður. Hún var send til Írak árið 2009
en af Facebook-færslum að dæma
leið henni ekki vel. Í maí 2010 sagð-
ist hún vera í meira lagi frústreruð
á fólki og samfélaginu í heild.
Skömmu áður hafði hún skrifað:
„Bradley Manning situr uppi með
þá þrúgandi tilfinningu að hann hafi
glatað öllu.“ Sumar færslurnar virð-
ast benda til þess að hún hafi átt í
ástarsambandi sem liðið hafði und-
ir lok.
Nokkrum vikum síðar var hún
handtekin af innra eftirliti hersins,
fyrir meintan þjófnað á leynileg-
um upplýsingum. Fram steig tölvu-
hakkarinn Adrian Lamo sem viður-
kenndi að hafa sagt til Chelsea. Hún
hafi viðurkennt fyrir honum að hafa
stolið gögnum. „Hlustaði á og söng
Telephone með Lady Gaga á með-
an ég framkvæmdi líklega stærsta
gagnaleka í sögu Bandaríkjanna,“
skrifaði hún honum í skilaboðum á
netinu, samkvæmt Wired.com. Þá
skrifaði hún einnig að öryggi væri
stórkostlega ábótavant og gaf í skyn
að þetta væri auðvelt. Með þessi
skilaboð fór Lamo til yfirvalda.
Vildi bæta heiminn
Fyrir dómi var Chelsea Manning
fundin sek um að hafa sótt og lekið
720 þúsund leynilegum skjölum og
hernaðargögnum. Þar á meðal var
myndband sem sýndi Apache-her-
þyrlu drepa 12 óbreytta borgara í
Bagdad árið 2007. Málið vakti mikla
athygli heimspressunnar. WikiLeaks
birti tugþúsunda viðkvæmra skila-
boða, skrifuðum af bandarísk-
um diplómötum og aðilum innan
hersins, vegna stríðsins í Írak. Þau
komu sér mjög illa og þóttu vand-
ræðaleg fyrir bandarísk stjórnvöld.
Chelsea Manning baðst fyr-
ir dómi afsökunar á að hafa skað-
að Bandaríkin og að hún hefði ver-
ið svo einföld að halda að hún gæti
gert heiminn að betri stað.
Daginn eftir að hún var dæmd
til 35 ára fangelsisvistar, árið 2013,
greindi hún frá því að hún hygð-
ist lifa lífi sínu sem kona. „Ég heiti
Chelsea Manning og ég er kona,“
sagði hún í tilkynningu til NBC.
Henni hefði fundist hún vera kona
frá barnæsku og hún myndi vilja
hefja hormónameðferð. Herdóm-
stóll heimilaði árið 2014 að nafni
hennar yrði breytt úr Bradley Ed-
ward Manning í Chelsea Elizabeth
Manning.
Reyndi að svipta sig lífi
Fangelsisvistin, sem og baráttan fyr-
ir því að fá að gangast undir kynleið-
réttingarferlið, hefur fengið mjög á
Chelsea. Hún reyndi að svipta sig lífi
í fyrra, í Leavenworth-fangelsinu í
Kansas. Um mánuði síðar fór hún í
hungurverkfall. Því lauk með því að
herinn féllst á að sjá til þess að hún
færi í aðgerð. Það var svo á þriðju-
daginn sem til tíðinda dró þegar
Barack Obama tilkynnti að Chelsea
yrði látin laus í maí. Hún hefur setið
inni frá árinu 2010 en til stóð að hún
sæti inni til ársins 2045. n
„
Ég heiti
Chelsea
Manning
og ég er
kona