Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Qupperneq 36
Helgarblað 20.–23. janúar 201728 Heilsa Bílahitari Við einföldum líf bíleigandans Termini 1700 bílahitarinn er tilvalin lausn. Hann er lítill og nettur og auðvelt að koma honum fyrir t.d. undir mælaborði bílsins. Allur tengibúnaður fylgir ásamt tímarofa sem ræsir hitarann t.d. klukkutíma áður en þú leggur af stað. Verð kr. 39.000 Væri ekki dásamlegt að sleppa við að skafa glugga og geta sest inn í heitan og notalegan bílinn á köldum vetrarmorgni? Láttu verkstæðið sjá um ísetninguna. Verð frá kr. 49.900 með ísetningu. 11.0 52 n Grátur er stundum eina vísbendingin n Sjúklingar eru misþægilegir S em læknir þá verður maður alla jafna að reiða sig á það að sjúklingurinn segi manni hvað það er sem hrjáir hann, hvar honum er illt, og hvers kyns einkennin eru. Það gefur vís- bendingar um það í hverju vandinn liggur og þrengir verulega fjölda mis- munagreininganna sem fljúga í gegn- um hugann. Augljóst er að lýsingarn- ar geta verið mismunandi og það sem einum finnst vera verkur getur öðrum þótt vera óþægindi, kláði getur verið túlkaður sem sviði og þannig mætti lengi telja. Allt frá upphafi læknisfræði hefur það að taka sögu sjúklings verið að- alatriðið og þrátt fyrir alla heimsins tækni er erfitt að ímynda sér að það muni breytast. Í nútímanum er það þó svo að læknar og heilbrigðisstarfs- fólk reiðir sig æ meir á rannsóknir af ýmsu tagi og treystir tækjum og tólum oft betur en frásögn og skoðun. Sjúklingi stungið í samband Það er auðvitað öfugsnúið að tæknin sem stuðningur sé farin að hafa jafn mikil áhrif á læknislistina og raun ber vitni, tímaskortur og aukið álag get- ur líka verið hluti af vandanum. Öll- um er þó ljóst hversu mikilvæg tækni er og þróun nýrra aðferða í greiningu og meðferð hefur skilað okkur gífur- legum framförum á undanförnum áratugum. Þá er deginum ljósara að framhald verður á þessari þróun og mögulega kemur að því á einhverj- um tímapunkti að læknar geti stungið sjúklingi í samband við einhvers kon- ar tölvu sem spýtir út úr sér greiningu og tillögu að meðferð. Það mun breyta læknisstarfinu umtalsvert og ég er ekki viss um að það sé eins spennandi og það hljómar. Mistökin gerast Í dag eru gerðar miklar og vaxandi kröfur til fagfólks, ekki bara lækna, um að það viti hvað það er að fást við. Það er skiljanlegt, ég tala nú ekki um þegar hætta steðjar að lífi og limum viðkomandi sjúklings og ákvarðanir eru teknar með hraði og lítill tími gefst til umhugsunar. Mistök eiga sér stað í læknisþjónustu líkt og í annarri þjón- ustu, en það er lítið svigrúm fyrir slíkt og sömuleiðis lítið umburðarlyndi að teknu tilliti til viðfangsefnisins. Það má hins vegar ekki koma í veg fyrir að um það sé rætt, það tilkynnt og unnið fyrir opnum tjöldum eða notað til að betrumbæta þjálfun, færni og skiln- ing. Góð samskipti eru þarna lykilatriði og oft eru það smáatriðin sem skipta mestu máli, tæki og tól gagnast þarna iðulega lítið. Sérfróðir sjúklingar Það er hægt að flokka sjúklinga nið- ur í mismunandi hópa ef kalla má og sumir eru þægilegri að eiga við en aðrir. Sá sem hefur sjaldan eða aldrei leitað læknis og hefur litla innsýn í eigin líkamstarfsemi getur verið jafn flókinn að annast og sá sem er nán- ast orðinn sérfróður sjálfur vegna krónísks krankleika síns. Sumir koma og segja manni hvað er að þeim og hafa oft á tíðum rétt fyrir sér, aðrir eru á kolrangri leið og þarfnast veru- lega að láta vísa sér veginn. Svo eru þeir sem geta ekki komið sér beint að efninu og þurfa að fara í marga hringi áður en hið eiginlega vandamál er til- greint. Eðli málsins samkvæmt eru mis- munandi ástæður og aðstæður hjá hverjum og einum og þarf maður því að setja sig í þær stellingar svo viðtalið gangi upp. Oftast veit maður ekki um hvað viðtalið snýst fyrr en sjúklingur- inn er sestur inn á stofu. Lausn á vanda þess mállausa Ein sérstök tegund sjúklings er sá mál- lausi, en eins og kom fram að ofan er afar mikilvægt að eiga samskipti til að nálgast greiningu og þá mögulega meðferð. Sá mállausi getur verið á öll- um aldri, en er oftast í yngri kantinum, hann getur verið meðvitundarlaus og ófær um að tala þess vegna, eða sök- um veikinda, áfalls eða viðlíka. Í flest- um tilvikum er sá mállausi hins vegar barn sem foreldrar koma með til lækn- is og eina merkið sem sá sjúklingur tjá- ir um vanlíðan sína er grátur. Í öllum tilvikum verður læknirinn að koma með einhvers konar lausn á vandanum, sem getur orðið býsna snúið, en að sama skapi það sem ger- ir starfið jafn skemmtilegt og raun ber vitni. Það er líklega þess vegna sem talað er um læknislist og má svo sem bera hana saman við leiklist að því marki að nauðsynlegt er að setja sig „Kemur að því á einhverjum tíma- punkti að læknar geti stungið sjúklingi í sam- band við einhvers konar tölvu Mállausi sjúklingurinn Teitur Guðmundsson læknir Hálsbólga og streptókokkar H álsbólga er sýking í háls- kirtlum og umhverfis þá. Bæði veirur og bakteríur geta valdið hálsbólgu. Háls- bólga getur komið fram ein og sér en fylgir oft öðrum sýkingum til dæmis flensu og einkirningasótt. Hálsbólga leggst á alla aldurshópa en helstu einkenni hennar eru sær- indi í hálsi og eymsli við að kyngja. Ef

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.