Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Side 38
Helgarblað 20.–23. janúar 201730 Menning
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Liggur alltaf talsvert á hjarta
n Jónína Leósdóttir sendir frá sér nýja glæpasögu n Með aðra bók í smíðum n Jóhanna yfirlesari númer eitt
S
túlkan sem enginn saknaði
er ný glæpasaga eftir Jónínu
Leósdóttur. Aðalpersónan
er eftirlaunaþeginn Edda
sem lesendur kynntust fyrst
í bókinni Konan í blokkinni. Jónína
er fyrst spurð hvort henni þyki kon-
ur á sama aldri og Edda ekki nægi-
lega sýnilegar. Blaðamaður vill kalla
Eddu miðaldra og Jónína er ekki
ósátt við það og segir: „Það er fallegt
af þér að kalla hana miðaldra því
hún er 67 ára. En Eddu líður einmitt
sjálfri eins og hún sé bara rétt um
miðjan aldur, enda í fullu fjöri jafnt
andlega sem líkamlega. Þjóðfélag-
ið hefur hins vegar afskrifað hana,
finnst henni, því hún er komin á
eftirlaun eftir að hafa verið verslun-
arstjóri í bókabúð í áratugi. Þar var
hún sem sagt með mannaforráð og
rak stóra búð með glans en svo hef-
ur hún allt í einu ekkert hlutverk,
enginn þarf á henni að halda.
Já, og konur í þeirri stöðu verða
svolítið ósýnilegar í tvennum skiln-
ingi. Í fyrsta lagi renna þær stund-
um saman í eitt mengi hjá þeim
sem yngri eru. Ég kom aðeins inn á
það í fyrstu bókinni, Konan í blokk-
inni, og skrifaði líka um það pistla
á meðan ég var í blaðamennsku. Í
öðru lagi eru þær ekki heldur mjög
sýnilegar í þjóðfélaginu, til dæm-
is í fjölmiðlum. Gráhært fólk með
hrukkur er yfirleitt ekki áberandi á
skjánum, nema í undantekningar-
tilvikum eins og fréttaskýringa-
þættinum „60 mínútum“. Og hér á
Íslandi er Bogi Ágústsson auðvitað
flottur og frambærilegur. En konur
um eða yfir sextugt eru sjaldséðar.“
Þetta er önnur bókin um Eddu –
verða þær fleiri?
„Ég lagði upp með að þetta gæti
orðið sería og mér sýnist stefna í
að svo verði. Sjö, níu, þrettán og
allt það! Ég er með þriðju bókina í
smíðum og við Edda höfum ekki
enn fengið leiða hvor á annarri.“
Margir glæpasagnahöfundar
beina sjónum sínum að ýmiss konar
misrétti í þjóðfélaginu í bókum sín-
um og láta sig þjóðfélagsmál miklu
varða. Ert þú að koma skilaboðum
á framfæri í verkum þinum?
„Mér liggur alltaf talsvert á hjarta
þótt ég reyni að hafa „boðskapinn“
ekki of yfirþyrmandi. Bækur með
predikunum eru svo þreytandi. Ég
lærði þennan línudans við að skrifa
fimm skáldsögur fyrir unglinga. Það
þýðir ekkert að bjóða krökkum upp
á einhverja messu um lífið og tilver-
una. En inn í ungmennabækurn-
ar fléttaði ég samt umfjöllun um
skilnað, átröskun, samkynhneigð,
sambönd fólks af ólíkum kynþætti,
þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og
fleira sem mig langaði að fá lesend-
urna til að íhuga. Allt voru þetta þó
sögur í fremur léttum dúr og með
ákveðinni spennu.
Í bókunum um hana Eddu er
valið á aðalpersónunni til dæmis
hluti af þessari þörf minni fyrir að
beina kastljósi að hlutum sem mér
finnast umhugsunarverðir. Ég vildi
sýna konu á eftirlaunaaldri í já-
kvæðu ljósi og minna þannig á að
fólk er ekki dautt úr öllum æðum
þótt hárið sé farið að grána og
kennitalan þyki ekki lengur boðleg
á vinnumarkaðnum. Í hverri Eddu-
bók tek ég þar að auki fyrir ýmislegt
fleira sem mér finnst áhugavert og
það er oftast tengt sálarlífi fólks og
samskiptum. En ef ég útskýrði það
frekar myndi það spilla spennunni
fyrir þeim sem eiga eftir að lesa
bækurnar.“
Jafnaðarmanneskja til
frambúðar
Ertu pólitísk, og ef svo er deilirðu
stjórnmálaskoðunum með konu
þinni, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem
var áberandi stjórnmálamaður í
áratugi?
„Ég ólst upp við ólíkar stjórn-
málaskoðanir því mamma var mik-
il sjálfstæðismanneskja og pabbi
mikill krati. Í fjölskylduhúsinu sem
ég bjó í var líka föðursystir sem lá
undir grun um að vera kommi, þótt
hún hafi nú aldrei staðfest það svo
ég muni. En þrátt fyrir þetta var
aldrei rifist af neinni hörku um póli-
tík á mínu æskuheimili.
Átján ára gömul trúlofaðist ég
strák af miklum sjálfstæðisættum
og fylgdi honum inn í flokkinn án
þess að vera sérstaklega áhugasöm
um stjórnmál. Áratug síðar sveik ég
lit með því að kjósa Kvennafram-
boðið. Þá fyrst kaus ég af einhverri
sannfæringu.
Árið 1983 lenti ég sjálf, fyrir al-
gjöra tilviljun, á framboðslista hjá
Bandalagi jafnaðarmanna. Vil-
mundur Gylfason hafði alls ekki
verið á höttunum eftir mér heldur
þáverandi eiginmanni mínum, Jóni
Ormi Halldórssyni, sem ekki var til-
kippilegur. Daginn áður en skila átti
framboðslistum gerði Vilmund-
ur lokatilraun og þegar Jón svar-
aði enn neitandi spurði hann í ör-
væntingu: „Jón, þú átt ágæta konu,
er það ekki?“
Þar með færðist pressan yfir á
mig og ég samþykkti að vera aftar-
lega á framboðslistanum með því
skilyrði að ég þyrfti hvergi að koma
fram fyrir kosningarnar. En Vil-
mundur plantaði mér í fjórða sæti
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Ég vildi sýna konu
á eftirlaunaaldri
í jákvæðu ljósi og minna
þannig á að fólk er ekki
dautt úr öllum æðum
þótt hárið sé farið að
grána og kennitalan þyki
ekki lengur boðleg á
vinnumarkaðnum.
Metsölulisti
Eymundsson
11.–17. janúar 2017
Íslenskar bækur
1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn
Michael Mosley
2 Almanak Háskóla Íslands 2017
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
3 AflausnYrsa Sigurðardóttir
4 Hrafnamyrkur Ann Cleeves
5 Stúlkan sem enginn saknaði
Jónína Leósdóttir
6 DrungiRagnar Jónasson
7 PetsamoArnaldur Indriðason
8 HeiðaSteinunn Sigurðardóttir
9 Ómótstæðileg EllaElla Mills Woodward
10 Þín eigin hrollvekjaÆvar Þór Benediktsson
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn
Michael Mosley
2 Almanak Háskóla Íslands 2017
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
3 HeiðaSteinunn Sigurðardóttir
4 Ómótstæðileg EllaElla Mills Woodward
5 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir