Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Page 48
Helgarblað 20.–23. janúar 2017 5. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Ég veðja á Hollywood! Fyrir neðan allar hellur n Frétt um að nokkrir Græn- lendingar hafi verið vísað úr versl- un í Reykjavík og ekki fengið þar afgreiðslu hefur reitt fjölmarga Íslendinga til reiði. Útgerðin sem mennirnir vinna hjá ákvað að senda þá heim vegna fordóma í þeirra garð. Illugi Jökulsson segir á Facebook: „Er sumt fólk algjör- lega fyrir neðan allar hellur?! Sex grænlenskir sjómenn, meira að segja af allt öðru skipi en Polar Nanoq, verða að hrökklast héðan undan ofsókn- um Íslendinga? Getur þetta verið satt?“ Hollywood veðjar á Þórönnu n Þóranna Sigurðardóttir er ein af 25 kvenleikstjórum sem hafa verið valdir til að taka þátt í námskeiði á vegum Americ- an Film Institute og Twentieth Century Fox kvikmyndaverinu. Markmiðið með námskeiðinu, sem nefnist AFI Conservatory Directing Workshop for Women, er að auka fjölda kvenleik- stjóra sem koma að stórmynd- um í Hollywood. Konurnar 25 munu fá tækifæri til að leik- stýra stutt- myndum sem byggja á þekktum kvik- myndum eða vörumerkjum í eigu Twentieth Century Fox, svo sem Alien, Die Hard, The Fly, Maze Runner, Planet og the Apes og Predator. Brotnaði niður á Djúpavogi n Söngkonan Salka Sól Eyfeld varð fyrir áralöngu og erfiðu ein- elti á æskuárum sínum í Kópa- vogi. Þessu greindi hún frá í við- tali við Sigmund Erni Rúnarsson á Hringbraut. Hún var meðal annars send til fjölskyldumeð- lima á Djúpavogi til þess að fá hvíld frá andlega ofbeldinu. Mörgum árum síðar stóð hún á sviði Hammond-hátíðarinn- ar á Djúpavogi og bjó sig undir að syngja áhrifamikið lag þegar tilfinningarnar helltust yfir hana og hún fór að hágráta. Þurfti söngkonan að hverfa af sviði til þess að jafna sig. „Stundum þarf maður einfaldlega að leyfa sér að vera mann- eskja,“ sagði söngkonan. COSTA DEL SOL – Benalmádena COSTA DEL SOL – Fuengirola COSTA DEL SOL – Torremolinos COSTA DEL SOL – Benalmádena COSTA DEL SOL – Benalmádena COSTA DEL SOL – Benalmádena Frá kr. 100.945 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 100.945 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í svítu. Netverð á mann frá kr. 139.695 m.v. 2 fullorðna í svítu. 28. maí í 7 nætur. Holiday World Polynesia Frá kr. 97.045 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 97.045 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjórbýli. Netverð á mann frá kr. 117.895 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 25. júní í 7 nætur. Hotel Los Patos Park Frá kr. 57.795 m/ekkert fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 57.795 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 70.895 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 4. júní í 7 nætur. Aguamarina Apartments Frá kr. 75.945 m/ekkert fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 75.945 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 107.095 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 2. júlí í 7 nætur. Hotel & Apartments Myramar Frá kr. 95.845 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 95.845 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herb. Netverð á mann frá kr. 116.295 m.v. 2 fullorðna í herb. 9. júlí í 7 nætur. Hotel Best Siroco VINSÆLL VALKOSTUR GÓÐUR SUNDLAUGARGARÐURÆVINTÝRALEGUR VALKOSTUR Frá kr. 91.245 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 91.245 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herb. Netverð á mann frá kr. 111.795 m.v. 2 fullorðna í herb. 27. ágúst í 7 nætur. Hotel Best Benalmádena NÝR GISTIVALKOSTUR NÝR GISTIVALKOSTURFJÖLSKYLDUVÆNT B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 79 54 1 1992-2017 25 ÁRASumarið 2017 er komið Taska, handfarangur og íslensk fararstjórn innifalið. BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN Sólarferðir frá kr. 57.795 m/afslætti* Allt að 100.000 kr. afsláttur fyrir fjögurra manna fjölskyldu Allt að 25.000 kr. afsláttur á mann í janúar *Öll verð eru með afslætti, allar sólarbrottfarir til 31/10 nema um páska. 25 ára afmælisafsláttur í janúar Mesta úrvalið! 12 sólarferðir í boði Jóhanna hættir í Borgarleikhúsinu Byrjuð hjá Samtökum iðnaðarins og fer í ársleyfi eftir að sýningum á Mamma Mia lýkur M ig langaði að prófa eitt- hvað nýtt,“ segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir, sem var nýverið ráðin til Samtaka iðnaðarins. Jóhanna, sem er ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar, kveðst þó ekki búin að yfirgefa leik- húsið að fullu. Hún ætlar að klára Mamma Mia og tekur í framhaldinu launalaust leyfi frá Borgarleikhúsinu í eitt ár. Jóhanna hefur heldur betur skipt um gír en hún tók í vikunni við stöðu verkefnastjóra á menntasviði Samtaka iðnaðarins. Til að byrja með verður hún í 50 prósent starfi. Innt svara af hverju hún hafi ákveðið að taka sér pásu frá leik- húsinu svarar Jóhanna því að hún hafi áhuga á svo mörgu og hafi ein- faldlega langað að breyta til. Starf verkefnastjóra hjá samtökunum sé krefjandi og skemmtilegt í senn „Ég er enn að læra og koma mér inn í hlutina og verð í hálfu starfi þar til sýningum á Mamma Mia lýkur.“ Jóhanna er útskrifuð leik- kona frá Leiklistarskóla Íslands og hefur í fjölda ára starfað í faginu. Þá er hún með BA-gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands og MBA- gráðu frá Háskólan- um í Reykjavík. Viðtökurnar við leikritinu Mamma Mia hafa farið fram úr björtustu von- um en sýningin hefur gengið fyrir fullu húsi í tæpt ár. Jóhanna segir að ekkert lát verði á sýningunum á næstunni þar sem aðsóknin sé enn gríðarlega mikil. n kristin@dv.is Mynd GRIMUR BJARnASOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.