Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 17.–20. febrúar 20172 Málning - Kynningarblað
Málning, múrviðgerðir,
gluggaviðgerðir og fleira
Alhliða málningar-
þjónusta í Skagafirði
Lítið Mál ehf.
Doddi málari:
L
ítið Mál ehf. er lítið málningar-
og viðhaldsþjónustufyrirtæki
í eigu Sigurðar H. Engilberts-
sonar, sem starfar á höfuð-
borgarsvæðinu. Fyrirtækið
leggur áherslu á toppþjónustu og
fagleg vinnubrögð sem uppfylla þarf-
ir viðskiptavina. Til að tryggja góða
endingu eru eingöngu notuð gæða-
efni og þá helst íslensk framleiðsla,
en einnig erlend ef svo ber undir.
Lítið Mál ehf. sinnir jafnt litlum
breytingum sem stórum viðhalds-
verkefnum. Fyrirtækið býður upp á
alla almenna málningarþjónustu og
gerir alhliða tilboð vegna viðhalds
og endurnýjunar jafnt utanhúss
sem innan. Þannig veitir Lítið Mál
ehf. fullkomna þjónustu varðandi
viðhald eigna, sinnir endurmálun
íbúða, lökkun glugga, niðurrifi og
uppsetningu eldhúsinnréttinga
Í málningarvinnu og viðhalds-
vinnu býr Lítið Mál að áratuga
reynslu Sigurðar H. Engilberts-
sonar framkvæmdastjóra og löngu
samstarfi hans við aðra verktaka og
birgja. Fyrirtækið hefur skapað sér
sérstöðu fyrir vönduð vinnubrögð
sem tryggja endingu verka. Lítið Mál
kappkostar að nota alltaf bestu fáan-
legu efni sem til eru á markaðnum og
bjóða upp á toppvinnu á samkeppn-
ishæfu verði.
Þegar unnið er að endurbótum
á húsnæði er lögð mikil áhersla á
stundvísi, fagleg vinnubrögð og góða
umgengni. Verkefni eru unnin í sam-
starfi við verkkaupa og miða að því
að uppfylla þarfir hans og óskir. Lítið
Mál tekur að sér tilboðsgerð fyrir al-
menna málningarvinnu, múrvið-
gerðir, gluggaviðgerðir og ástands-
mat að innan sem utan.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður í síma 896-5758 og upplýs-
ingar eru einnig á vefsíðunni www.
litidmal.com. n
Fyrir
Fyrir
Eftir
Eftir
D
oddi málari er öflugt
málningarþjónustufyrir-
tæki sem staðsett er á
Sauðárkróki, að Rafta-
hlíð 73. Fyrirtækið var
stofnað þann 1. júní árið 1997
en var breytt eignarhaldsfélag
árið 1998. Eigendur eru Þórarinn
Sveinn Thorlacius og Hólmfríður
Jóhannsdóttir. Gæða- og fram-
kvæmdastjóri er Magnús Þórar-
inn Thorlacius. Fastir starfs-
menn á ársgrundvelli eru 4–6
en á sumrin er bætt við 6–10
starfsmönnum eftir verkefna-
stöðu hverju sinni en verkefni
færast mjög í vöxt á sumrin. Frá
stofnun fyrirtækisins hafa um
140 manns unnið hjá Dodda
málara ehf.
Doddi málari sinnir ýmiss
konar verkefnum, meðal
annars viðhaldi á gömlum hús-
um og kirkjum, málun togara
og báta, málun virkjana, sem
og viðhaldi á venjulegum hús-
um. Doddi málari starfar að
mest leyti innan Skagafjarðar
og veitir þar fjölmörgum íbúum
og fyrirtækjum góða og faglega
þjónustu. Stundum er þó farið
út fyrir héraðið og árið 2009
héldu nokkrir starfsmenn Dodda
málara til Færeyja og máluðu þar
skólabyggingu. Verkið tók um þrjá
mánuði. Færeyingar tóku vel á móti
starfsmönnum Dodda málara og
samstarfið gekk í einu og öllu vel.
Doddi málari hefur frá upphafi
stutt vel við íþróttastarf í héraðinu,
aðallega við knattspyrnu- og körfu-
boltadeildir Tindastóls, með styrkj-
um og með því að útvega leikmönn-
um liðsins sumarvinnu.
Þeir sem hafa áhuga á að nýta
sér þjónustu Dodda málara eða fá
nánari upplýsingar geta sent fyrir-
spurn á netfangið doddimalari@
simnet.is eða hringt í síma 869-8101.