Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 17.–20. febrúar 2017 Heimilisfang Kringlan 4-12 4. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 24 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Hér hefur ekki dropi lekið Sigurður Guðjónsson hafnar því að Hafró hafi lekið upplýsingum um loðnukvóta. – mbl.is Dugnaður Ásmundar Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi, ræðir um dugnað sinn í færslu á Facebook. „Ég vinn alla daga, kvöld og helgar. Svara öll- um tölvupóstum, helst sama dag og þeir berast og svara símanum hvar og hvenær sem er, á jólum og áramótum,“ skrifar Ásmundur en í færslu sinni er hann að gagn- rýna Ólafíu B. Rafnsdóttur, for- mann VR, sem Ásmundur segir að noti öll tækifæri til að krefjast þess að laun þingmanna verði lækkuð. Sé horft á þingmannsferil Ásmundar má velta fyrir sér hvort dugnaður hans sé umtalsverður. Á síðasta þingi lagði Ásmundur fram þrjár þingsályktunartillög- ur, var fyrsti flutningsmaður að einu endurfluttu frumvarpi og bar upp þrjár fyrirspurnir. Ekki er sér- stakur dugnaður í því. Hann tók sjötíu og sjö sinnum til máls og talaði alls í fjórar klukkustundir úr ræðustól Alþingis. Ekki er það nema í meðallagi miðað við hinn almenna þingmann og langt frá því sem mestu ræðuskörungar þingsins afreka. Óvænt forsjárhyggja Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki verið kenndur við forræðis- hyggju. Það kom því verulega á óvart þegar Ás- dís Halla Braga- dóttir, sem lengi var áhrifakona innan flokks- ins, lýsti skoðun sinni á verslun með áfengi og tóbak. „Ég vil tóbakið aftur inn í ÁTVR, fækka útibúunum, stytta opnunartímann, hafa allt lokað um helgar og líka á sumrin þegar börnin vafra um göturnar,“ sagði hún. Víst er að einhverjum Sjálf- stæðismönnum hefur brugðið við að heyra af þessum tillögum. Þ egar sex af hverjum tíu Ís- lendingum fá bók í jólagjöf má segja að þjóðin standi undir því að kallast bókaþjóð. Þjóð- in stendur líka undir því nafni þegar hún tekur þátt í hinum árlega landsleik Allir lesa, sem senn lýkur. Á þeim tíma sem lestrarátakið hefur staðið hafa Ís- lensku bókmenntaverðlaunin verið veitt og sömuleiðis Íslensku þýðingar- verðlaunin. Bóklestur er gefandi og þroskandi. Allir eru sammála um mikilvægi þess að halda bókum að börnum og meðal gleðilegra tíðinda í nýliðnu jólabóka- flóði var hversu vel barna- og ung- lingabækur seldust. Um leið er vitað að lesskilningur barna og unglinga mætti vera svo miklu betri. Með öllum til- tækum ráðum þarf að stuðla að því að börn og unglingar hafi greiðan aðgang að lesefni við hæfi. Börn nenna ein- faldlega ekki að lesa bækur sem þeim þykja leiðinlegar, lái þeim hver sem vill. Þau þurfa að hafa aðgang að bókum sem vekja áhuga þeirra og þar skipta bókasöfn máli. Formaður Félags ís- lenskra bókaútgefenda, Egill Jóhanns- son, nefndi í ræðu sinni við afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna að þess finnist mörg dæmi að skóla- bókasöfn hafi ekki árum saman haft fjármuni til að kaupa nýjar bækur. Það er sitthvað að ef barn sem fer á skóla- bókasafn getur ekki fundið þar vinsæl- ar nýútkomnar bækur. Það fer sannar- lega ekki saman við metnaðarfulla menningarstefnu að skólabókasöfn séu fjársvelt. Í ræðu sinni furðaði formaður bóka- útgefenda sig á því að hér á landi skuli enn vera ríkisrekin námsbókaútgáfa en erlendis sjá almennir útgefendur um slíka útgáfu. Auðvitað vekur þetta furðu og er ekki í samræmi við þrótt- mikla menningarstefnu. Ríkis rekin kennslubókaútgáfa er tímaskekkja á árinu 2017 – nema í Norður-Kóreu. Al- mennum útgefendum er sannarlega treystandi fyrir því að gefa út þroskandi og skemmtilegar kennslubækur og ekki er að efa að fjölbreytnin yrði mikil. Sjálfsagt er verið að bera í bakka- fullan lækinn þegar því er svo velt upp hvort ekki sé tímabært að lækka virð- isaukaskatt á bækur, sem er hærri hér á landi en víðast hvar annars staðar, eða hreinlega bara fella hann niður. Stjórnmálamenn hafa víst engan áhuga á því, þótt þeir þreytist ekki á að vitna í skáld og skáldskap á tylli- dögum. Þannig eru stjórnmálin of oft – mikið er talað en ekki nægilega að- hafst. n Hvar er hin metnaðarfulla menningarstefna? » Loftsíur » Smurolíusíur » Eldsneytissíur » Kælivatnssíur » Glussasíur Túrbínur Bætir ehf. býður upp á viðgerðarþjónustu fyrir flestar gerðir túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá: Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel® Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation. MynD SiGtryGGur Ari „Ríkisrekin kennslu- bókaútgáfa er tímaskekkja á ár- inu 2017 – nema í Norður-Kóreu. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Myndin Það er milt Veturinn hefur verið mildur jafnvel þótt lægðir hafi heimsótt okkur. Síðustu daga hefur reyndar bæði verið bjart og lygnt svo minnir á vor um miðjan febrúar. MynD SiGtryGGur Ari Við munum prófa það eitthvað áfram Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari um leikkerfið 3-5-2. – ruv.is Kast ljós inu hef ur loks ins verið beint að „skít seiðis-lek ur un um!“ Donald trump vegna Mike Flynn-málsins. – Twitter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.