Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 40
Helgarblað 17.–20. febrúar 201736 Heilsa Þ ú ert úti að ganga í skóg­ inum og átt þér einskis ills von, sallaróleg/ur og nýtur góða veðursins og sólarinn­ ar þar sem þú ert í sumar­ leyfi í fjarlægu landi. Skyndilega staðnæmist þú og það hvolfist yfir þig gífurleg hræðsla og spenna þar sem þú stendur augliti til auglits við ljón sem sér þig líka og býst til árásar. Hjartað berst á fullum krafti, vöðva­ rnir spennast upp og sjáöldrin víkka út, þú svitnar og ferð að anda ótt og títt. Allt gerist þetta mjög hratt þar sem þú ert að undirbúa flóttann frá ljóninu. Lífeðlis­ og efnafræðilega eiga sér stað mjög margir hlutir á sama tíma, líkaminn tekur stjórn hálfpart­ inn og það hellast út streituhormón og sömuleiðis adrenalín auk fjölda annarra ferla. Þú ert tilbúin/nn í hvað sem er og þú þarft alla þína orku á svipstundu eigir þú að eiga möguleika á að lifa af. Kvíðakast Þarna er um að ræða eðlileg við­ brögð við lífshættu sem við getum öll tengt okkur við og myndum lík­ lega flest finna sömu líðan undir sömu kringumstæðum. En hvað ef öll þessi líðan kemur skyndilega og fyrirvaralaust þegar þú stendur í röð­ inni, bíðandi eftir að borga í versl­ un, þú ert á fundi eða í prófi, jafnvel bara steinsofandi heima uppi í rúmi. Á sama tíma er engin ástæða er fyrir því að reyna að bjarga lífi og limum á núll einni? Ef svo er þá ertu að öllum líkind­ um að upplifa kvíðakast. Einkennin geta verið svæsin og einnig staðið í einhvern tíma svo þeir sem aldrei hafa upplifað slíkt geta talið sig vera að fá hjartaáfall eða viðlíka og þurfa oft og tíðum að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi. Lamandi ótti Ofsakvíði eða kvíðaköst sem koma með þessum hætti fram ná yfirleitt hámarki á nokkrum mínútum og ganga svo niður með eða án með­ ferðar. Það sem einkennir þá sem fá slík köst er að það myndast mikill kvíði og hræðsla fyrir því að fá aftur kast. Sérstaklega þegar það liggur fyrir að ekki sé um annan sjúkdóm að ræða og þessi lamandi ótti geti komið án fyrirvara nánast hvar sem er upp að nýju. Margir þróa með sér kvíðasjúkdóm vegna þessa, enn aðrir fá aldrei aftur köst. Ekki er vitað með vissu hvað veldur en það er fjölþætt. Að einhverju leyti spila erfðir þarna inn í og ytri aðstæður eins og streita, álag, áföll sem jafnvel áttu sér stað fyrir löngu, breytingar á lífsháttum, missir ástvina og þannig mætti telja áfram. Þá er einnig lýst slíku ástandi undir áhrifum áfengis og vímuefna. Mjög mikilvægt er að greina þennan sjúkdóm og átta sig á honum þar sem hann getur haft veruleg áhrif á líf viðkomandi. Hann getur leitt til félagsfælni, vandamála í skóla eða vinnu, þunglyndis, fjárhagsvanda, áfengis og vímuefnavanda og jafn­ vel sjálfsvígs í verstu tilfellum. Það er því mikilvægt að leita sér aðstoðar og í samvinnu við fagaðila átta sig á eðli vandans og mögulegum meðferðar­ úrræðum. Þeir sem upplifa kvíðaköst ættu helst að reyna að taka saman undir hvaða kringumstæðum slíkt á sér stað, hversu oft og hve lengi ein­ kennin vörðu. Þá er gott að hafa í huga fyrri áföll og ytri aðstæður sem gætu hafa leitt til slíks og vera reiðu­ búin/nn að ræða það. Margvísleg úrræði Sem betur fer eru til margvísleg úr­ ræði sem virka oft og tíðum mjög vel svo það er engin ástæða til að burð­ ast með ofsakvíða og kvíðaköst og vil ég hvetja þá sem glíma við þennan vanda að leita sér hjálpar. Greiningin fer að vissu leyti fram með því að úti­ loka líkamlegar ástæður og til þess getur þurft einhverjar rannsóknir, en hin eiginlega greining er fyrst og fremst bundin við samtal og lýsingu einstaklings á einkennum sínum auk spurningalista í völdum tilvikum. Blönduð meðferð algengust Helstu meðferðarúrræði eru samtalsmeðferð og hugræn FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun Teitur Guðmundsson læknir Ofsakvíði: Lamandi ótti án fyrirvara n Einkenni kvíðakasts n Hjartað berst á fullum krafti, vöðvarnir spennast upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.