Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 40
Helgarblað 17.–20. febrúar 201736 Heilsa
Þ
ú ert úti að ganga í skóg
inum og átt þér einskis ills
von, sallaróleg/ur og nýtur
góða veðursins og sólarinn
ar þar sem þú ert í sumar
leyfi í fjarlægu landi. Skyndilega
staðnæmist þú og það hvolfist yfir
þig gífurleg hræðsla og spenna þar
sem þú stendur augliti til auglits við
ljón sem sér þig líka og býst til árásar.
Hjartað berst á fullum krafti, vöðva
rnir spennast upp og sjáöldrin víkka
út, þú svitnar og ferð að anda ótt og
títt. Allt gerist þetta mjög hratt þar
sem þú ert að undirbúa flóttann frá
ljóninu.
Lífeðlis og efnafræðilega eiga
sér stað mjög margir hlutir á sama
tíma, líkaminn tekur stjórn hálfpart
inn og það hellast út streituhormón
og sömuleiðis adrenalín auk fjölda
annarra ferla. Þú ert tilbúin/nn í
hvað sem er og þú þarft alla þína
orku á svipstundu eigir þú að eiga
möguleika á að lifa af.
Kvíðakast
Þarna er um að ræða eðlileg við
brögð við lífshættu sem við getum
öll tengt okkur við og myndum lík
lega flest finna sömu líðan undir
sömu kringumstæðum. En hvað ef
öll þessi líðan kemur skyndilega og
fyrirvaralaust þegar þú stendur í röð
inni, bíðandi eftir að borga í versl
un, þú ert á fundi eða í prófi, jafnvel
bara steinsofandi heima uppi í rúmi.
Á sama tíma er engin ástæða er fyrir
því að reyna að bjarga lífi og limum á
núll einni?
Ef svo er þá ertu að öllum líkind
um að upplifa kvíðakast. Einkennin
geta verið svæsin og einnig staðið
í einhvern tíma svo þeir sem aldrei
hafa upplifað slíkt geta talið sig vera
að fá hjartaáfall eða viðlíka og þurfa
oft og tíðum að leita sér aðstoðar á
sjúkrahúsi.
Lamandi ótti
Ofsakvíði eða kvíðaköst sem koma
með þessum hætti fram ná yfirleitt
hámarki á nokkrum mínútum og
ganga svo niður með eða án með
ferðar. Það sem einkennir þá sem
fá slík köst er að það myndast mikill
kvíði og hræðsla fyrir því að fá aftur
kast. Sérstaklega þegar það liggur
fyrir að ekki sé um annan sjúkdóm
að ræða og þessi lamandi ótti geti
komið án fyrirvara nánast hvar sem
er upp að nýju. Margir þróa með sér
kvíðasjúkdóm vegna þessa, enn aðrir
fá aldrei aftur köst. Ekki er vitað með
vissu hvað veldur en það er fjölþætt.
Að einhverju leyti spila erfðir þarna
inn í og ytri aðstæður eins og streita,
álag, áföll sem jafnvel áttu sér stað
fyrir löngu, breytingar á lífsháttum,
missir ástvina og þannig mætti telja
áfram. Þá er einnig lýst slíku ástandi
undir áhrifum áfengis og vímuefna.
Mjög mikilvægt er að greina
þennan sjúkdóm og átta sig á honum
þar sem hann getur haft veruleg áhrif
á líf viðkomandi. Hann getur leitt til
félagsfælni, vandamála í skóla eða
vinnu, þunglyndis, fjárhagsvanda,
áfengis og vímuefnavanda og jafn
vel sjálfsvígs í verstu tilfellum. Það er
því mikilvægt að leita sér aðstoðar og
í samvinnu við fagaðila átta sig á eðli
vandans og mögulegum meðferðar
úrræðum. Þeir sem upplifa kvíðaköst
ættu helst að reyna að taka saman
undir hvaða kringumstæðum slíkt á
sér stað, hversu oft og hve lengi ein
kennin vörðu. Þá er gott að hafa í
huga fyrri áföll og ytri aðstæður sem
gætu hafa leitt til slíks og vera reiðu
búin/nn að ræða það.
Margvísleg úrræði
Sem betur fer eru til margvísleg úr
ræði sem virka oft og tíðum mjög vel
svo það er engin ástæða til að burð
ast með ofsakvíða og kvíðaköst og vil
ég hvetja þá sem glíma við þennan
vanda að leita sér hjálpar. Greiningin
fer að vissu leyti fram með því að úti
loka líkamlegar ástæður og til þess
getur þurft einhverjar rannsóknir,
en hin eiginlega greining er fyrst og
fremst bundin við samtal og lýsingu
einstaklings á einkennum sínum auk
spurningalista í völdum tilvikum.
Blönduð meðferð algengust
Helstu meðferðarúrræði eru
samtalsmeðferð og hugræn
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Teitur Guðmundsson
læknir
Ofsakvíði:
Lamandi ótti
án fyrirvara
n Einkenni kvíðakasts n Hjartað berst á fullum krafti, vöðvarnir spennast upp