Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 34
Helgarblað 17.–20. febrúar 201730 Sport n Leikmennirnir sem náðu sér aldrei á strik á Englandi n Slá í gegn annars staðar S tundum er því haldið fram að enska úrvalsdeildin sé erfiðasta deildarkeppni heims á sviði fótbolta, og það er líklega engum ofsögum sagt. Tímabilið er langt og strangt, dagskráin er þétt yfir jólin og veðrið getur gert mönnum lífið leitt yfir köldustu vetrarmánuðina. Margir frábærir leikmenn hafa átt erfitt upp- dráttar á Englandi, einhverra hluta vegna, en síðan slegið í gegn í öðr- um deildum. Hér er yfirlit yfir nokkra slíka leikmenn. n Iago Aspas Spilaði með: Liverpool Spilar í dag með: Celta Vigo Forráðamenn Liverpool bundu miklar vonir við Spánverjann Iago Aspas þegar hann var keyptur frá Celta Vigo árið 2013. Aspas hafði enda raðað inn mörkum fyrir félagið. Hjá Liverpool náði Aspas sér þó aldrei á strik og varð hann hálfgert að- hlátursefni hjá stuðningsmönnum annarra liða. Aspas spilaði 15 leiki í það heila fyrir Liverpool og skoraði í þeim eitt mark. Hann var lánaður til Sevilla tímabilið 2014/15 áður en hann var seldur aftur til Celta sumarið 2015. Þar hefur hann slegið rækilega í gegn og skorað 33 mörk í 65 leikjum síðan. Andrej Kramaric Spilaði með: Leicester Spilar í dag með: Hoffenheim Kramaric varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Leicest- er þegar hann var keyptur frá Rijeka í Króatíu á 7,5 milljónir punda árið 2014. Kramaric gekk bölvanlega á Englandi og náði sér engan veginn á strik í úrvalsdeildinni. Hann skoraði tvö mörk í deildinni fyrir Leicester áður en hann var lánaður til Hoffenheim í Þýskalandi sumarið 2015. Þar hef- ur Kramaric fundið fjöl sína og er nú mikilvægur hlekkur í toppbaráttuliði Hoffenheim. Suso Spilaði með: Liverpool Spilar í dag með: AC Milan Suso var aðeins 16 ára gamall þegar landi hans, Spánverjinn Rafael Benitez, fékk hann til Liverpool. Suso náði þó aldrei að sýna sitt rétta andlit hjá Liverpool en hon- um til varnar verður að segja að hann var mjög ungur þegar hann fékk sín fyrstu tæki- færi á Anfield. Hann lék 20 leiki í það heila fyrir Liverpool og skoraði eitt mark. Hann var lánaður til Almeria á Spáni tímabilið 2013/14. Samningur hans við Liverpool rann út sumarið 2015 og þá gekk hann í raðir AC Milan á Ítalíu. Í fyrra lék Suso sem lánsmaður hjá Genoa þar sem hann stóð sig vel en í vetur hefur hann verið fastamaður í liði Milan og skorað sex mörk í deildinni til þessa. Þrátt fyrir nokk- uð langan feril er Suso enn aðeins 23 ára. Serge Gnabry Spilaði með: Arsenal Spilar í dag með: Werder Bremen Það voru margir sem spáðu Þjóðverjanum Serge Gnabry mikilli velgengni hjá Arsenal. Hann var aðeins 16 ára þegar hann gekk til liðs við félagið og hann byrjaði ágætlega. Tímabilið 2013/14 spilaði Gnabry reglulega en hnémeiðsli héldu hon- um frá keppni nánast allt tímabilið 2014/5. Í kjölfarið fylgdi martraðardvöl á láni hjá WBA á síðasta tímabili þar sem Gnabry lék lítið sem ekkert. Í sumar fékk hann sig lausan frá Arsenal og samdi við Werder Bremen í Þýskalandi. Þar hefur Gnabry látið til sín taka og skorað sjö mörk í 17 leikjum. Mohammed Salah Spilaði með: Chelsea Spilar í dag með: Roma Þessi eldfljóti Egypti var keyptur til Chelsea í janúarglugganum 2014. Salah byrjaði sæmilega en gekk illa að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Chelsea. Ári eftir að hann gekk til liðs við Chelsea var hann lánaður til Fiorentina og nokkrum mánuðum síðar, sumarið 2015, var hann lánaður til Roma. Ítalski boltinn virtist henta Salah ágætlega enda skoraði hann mikið, bæði með Fiorentina og Roma. Það var svo í fyrrasumar að Roma festi kaup á Salah og hefur hann þakkað traustið með frábærri spilamennsku. Salah hefur skorað 24 mörk í 63 leikjum og er í hópi bestu leikmanna ítölsku deildarinnar. Nabil Bentaleb Spilaði með: Tottenham Spilar í dag með: Schalke Alsíringurinn Nabil Bentaleb var ungur að árum þegar hann var farinn að spila reglulega fyrir Tottenham. Hann braust inn í aðalliðið tímabilið 2013/14 og spilaði í það heila 66 leiki fyrir Tottenham. Tækifærum hans fór þó fækkandi eftir að hann varð fyrir meiðslum og í fyrrasumar var hann lánaður til Schalke í Þýskalandi. Þar hefur Bentaleb látið til sín taka og er einn af lykilmönnum liðsins. Það er þó aldrei að vita nema Bentaleb fái aftur tækifæri hjá Tottenham þegar lánsdvölinni hjá Schalke lýkur. Anthony Modeste Spilaði með: Blackburn Spilar í dag með: Köln Modeste lék sem lánsmaður hjá Blackburn frá Bordeaux eftir að hafa komið í janúarglugganum 2012. Ekki var um neina frægðarför að ræða þar sem allt gekk á afturfótunum hjá Modeste – og raunar Blackburn-liðinu. Liðið féll í síðustu umferðinni eftir 3-0 tap í leik þar sem Modeste fékk að líta rauða spjaldið. Allt í allt spilaði hann níu leiki fyrir Blackburn án þess að skora. Í dag er Modeste þó annar leikmaður. Hann spilar með Köln í Þýskalandi og getur varla hætt að skora. Á þessu tímabili er hann kominn með 18 mörk í 23 leikjum, þar af 16 í deild. Hann hefur skorað meira en Robert Lewandowski í deildinni og aðeins einu marki minna en markamaskínan Pierre-Emerick Aubameyang. Peter Gulacsi Spilaði með: Liverpool Spilar í dag með: RB Leipzig Markvarðarvandamál Liverpool hafa verið talsvert í um- ræðunni á tímabilinu. Gulacsi er 26 ára Ungverji sem var á mála hjá Liverpool árin 2008 til 2013. Hann spilaði aldrei fyrir félagið heldur var hann lánaður milli ýmissa liða í neðri deildum Englands. Árið 2013 samdi hann við Red Bull Salzburg og árið 2015 samdi hann við systurfélagið RB Leipzig. Leipzig hefur komið allra liða mest á óvart í Þýskalandi í vetur þar sem liðið er í 2. sæti á eftir Bayern München. Gulacsi er lykilmaður í liðinu. Suso Var ungur að árum þegar hann gekk til liðs við Liverpool. Þar náði hann ekki að festa sig í sessi en er í dag lykilmaður í liði AC Milan. Mynd EPA Það er líf eftir úrvalsdeildina Mynd EPA Mynd EPA Mynd EPA Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.