Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 34
Helgarblað 17.–20. febrúar 201730 Sport
n Leikmennirnir sem náðu sér aldrei á strik á Englandi n Slá í gegn annars staðar
S
tundum er því haldið fram
að enska úrvalsdeildin sé
erfiðasta deildarkeppni
heims á sviði fótbolta, og það
er líklega engum ofsögum
sagt. Tímabilið er langt og strangt,
dagskráin er þétt yfir jólin og veðrið
getur gert mönnum lífið leitt yfir
köldustu vetrarmánuðina. Margir
frábærir leikmenn hafa átt erfitt upp-
dráttar á Englandi, einhverra hluta
vegna, en síðan slegið í gegn í öðr-
um deildum. Hér er yfirlit yfir nokkra
slíka leikmenn. n
Iago Aspas
Spilaði með: Liverpool
Spilar í dag með: Celta Vigo
Forráðamenn Liverpool
bundu miklar vonir
við Spánverjann Iago
Aspas þegar hann var
keyptur frá Celta Vigo
árið 2013. Aspas hafði
enda raðað inn mörkum
fyrir félagið. Hjá Liverpool náði Aspas sér
þó aldrei á strik og varð hann hálfgert að-
hlátursefni hjá stuðningsmönnum annarra
liða. Aspas spilaði 15 leiki í það heila fyrir
Liverpool og skoraði í þeim eitt mark. Hann
var lánaður til Sevilla tímabilið 2014/15 áður
en hann var seldur aftur til Celta sumarið
2015. Þar hefur hann slegið rækilega í gegn
og skorað 33 mörk í 65 leikjum síðan.
Andrej Kramaric
Spilaði með: Leicester
Spilar í dag með: Hoffenheim
Kramaric varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Leicest-
er þegar hann var keyptur frá Rijeka í Króatíu
á 7,5 milljónir punda árið 2014. Kramaric gekk
bölvanlega á Englandi og náði sér engan veginn
á strik í úrvalsdeildinni. Hann skoraði tvö mörk í
deildinni fyrir Leicester áður en hann var lánaður
til Hoffenheim í Þýskalandi sumarið 2015. Þar hef-
ur Kramaric fundið fjöl sína og er nú mikilvægur
hlekkur í toppbaráttuliði Hoffenheim.
Suso
Spilaði með: Liverpool
Spilar í dag með: AC Milan
Suso var aðeins 16 ára gamall þegar landi
hans, Spánverjinn Rafael Benitez, fékk
hann til Liverpool. Suso náði þó aldrei að
sýna sitt rétta andlit hjá Liverpool en hon-
um til varnar verður að segja að hann var
mjög ungur þegar hann fékk sín fyrstu tæki-
færi á Anfield. Hann lék 20 leiki í það heila
fyrir Liverpool og skoraði eitt mark. Hann var
lánaður til Almeria á Spáni tímabilið 2013/14.
Samningur hans við Liverpool rann út sumarið
2015 og þá gekk hann í raðir AC Milan á
Ítalíu. Í fyrra lék Suso sem lánsmaður
hjá Genoa þar sem hann stóð sig
vel en í vetur hefur hann verið
fastamaður í liði Milan og
skorað sex mörk í deildinni
til þessa. Þrátt fyrir nokk-
uð langan feril er Suso
enn aðeins 23 ára.
Serge Gnabry
Spilaði með: Arsenal
Spilar í dag með: Werder Bremen
Það voru margir sem
spáðu Þjóðverjanum
Serge Gnabry mikilli
velgengni hjá Arsenal.
Hann var aðeins 16
ára þegar hann gekk til
liðs við félagið og hann
byrjaði ágætlega. Tímabilið 2013/14 spilaði
Gnabry reglulega en hnémeiðsli héldu hon-
um frá keppni nánast allt tímabilið 2014/5.
Í kjölfarið fylgdi martraðardvöl á láni hjá
WBA á síðasta tímabili þar sem Gnabry
lék lítið sem ekkert. Í sumar fékk hann sig
lausan frá Arsenal og samdi við Werder
Bremen í Þýskalandi. Þar hefur Gnabry látið
til sín taka og skorað sjö mörk í 17 leikjum.
Mohammed
Salah
Spilaði með: Chelsea
Spilar í dag með: Roma
Þessi eldfljóti Egypti var keyptur til
Chelsea í janúarglugganum 2014.
Salah byrjaði sæmilega en gekk illa
að brjóta sér leið inn í byrjunarlið
Chelsea. Ári eftir að hann gekk til
liðs við Chelsea var hann lánaður til
Fiorentina og nokkrum mánuðum
síðar, sumarið 2015, var hann lánaður
til Roma. Ítalski boltinn virtist henta
Salah ágætlega enda skoraði hann
mikið, bæði með Fiorentina og
Roma. Það var svo í fyrrasumar að
Roma festi kaup á Salah og hefur
hann þakkað traustið með frábærri
spilamennsku. Salah hefur skorað 24
mörk í 63 leikjum og er í hópi bestu
leikmanna ítölsku deildarinnar.
Nabil Bentaleb
Spilaði með: Tottenham
Spilar í dag með: Schalke
Alsíringurinn Nabil Bentaleb var ungur að árum
þegar hann var farinn að spila reglulega fyrir
Tottenham. Hann braust inn í aðalliðið tímabilið
2013/14 og spilaði í það heila 66 leiki fyrir Tottenham. Tækifærum hans fór
þó fækkandi eftir að hann varð fyrir meiðslum og í fyrrasumar var hann
lánaður til Schalke í Þýskalandi. Þar hefur Bentaleb látið til sín taka og er
einn af lykilmönnum liðsins. Það er þó aldrei að vita nema Bentaleb fái
aftur tækifæri hjá Tottenham þegar lánsdvölinni hjá Schalke lýkur.
Anthony Modeste
Spilaði með: Blackburn
Spilar í dag með: Köln
Modeste lék sem lánsmaður hjá Blackburn frá
Bordeaux eftir að hafa komið í janúarglugganum
2012. Ekki var um neina frægðarför að ræða þar
sem allt gekk á afturfótunum hjá Modeste – og
raunar Blackburn-liðinu. Liðið féll í síðustu umferðinni
eftir 3-0 tap í leik þar sem Modeste fékk að líta rauða spjaldið. Allt í allt
spilaði hann níu leiki fyrir Blackburn án þess að skora. Í dag er Modeste þó
annar leikmaður. Hann spilar með Köln í Þýskalandi og getur varla hætt
að skora. Á þessu tímabili er hann kominn með 18 mörk í 23 leikjum, þar af
16 í deild. Hann hefur skorað meira en Robert Lewandowski í deildinni og
aðeins einu marki minna en markamaskínan Pierre-Emerick Aubameyang.
Peter Gulacsi
Spilaði með: Liverpool
Spilar í dag með: RB Leipzig
Markvarðarvandamál Liverpool hafa verið talsvert í um-
ræðunni á tímabilinu. Gulacsi er 26 ára Ungverji sem var á
mála hjá Liverpool árin 2008 til 2013. Hann spilaði aldrei
fyrir félagið heldur var hann lánaður milli ýmissa liða í
neðri deildum Englands. Árið 2013 samdi hann við Red
Bull Salzburg og árið 2015 samdi hann við systurfélagið
RB Leipzig. Leipzig hefur komið allra liða mest á óvart í
Þýskalandi í vetur þar sem liðið er í 2. sæti á eftir Bayern
München. Gulacsi er lykilmaður í liðinu.
Suso Var ungur að árum
þegar hann gekk til liðs við
Liverpool. Þar náði hann
ekki að festa sig í sessi en
er í dag lykilmaður í liði AC
Milan. Mynd EPA
Það er líf eftir úrvalsdeildina
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is