Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 44
Helgarblað 17.–20. febrúar 201740 Menning
Verið ávallt velkomin
Almar bakari
Bakarí og kaffihús Sunnumörk
Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17
Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega
og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt
að 18 tíma og því notum við engan viðbættan
sykur, minna salt og minna ger í hvert og
eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau
bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er
súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn
lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er
bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.
Þjáningin skilaði
Óskarsverðlaunum
Leikarar þurfa oft að leggja mikið á sig í krefjandi hlutverkum. Hér eru dæmi um leikara sem þjáðust við tökur á kvik-
myndum en eftir mikið erfiði uppskáru þeir Óskarsverðlaun.
Borðaði hráa lifur Leonardo DiCaprio fékk langþráð Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn í The Revenant. Þar lék hann mann sem er einn í óbyggðum og þarf að berjast
fyrir lífi sínu. Leikarinn lagði mikið á sig til að geta túlkað mann sem er særður og helkaldur.
Hann sagði að í tugum atriða myndarinnar hefði hann gert hluti sem væru með því alerfið-
asta sem hann hefði lent í á ævinni. Meðal annars borðaði hann hráa lifur úr vísundi, lagðist
til sunds í ísköldum ám og svaf í dýrahræi. Hann þjáðist allan tímann af kulda.
Fór ekki úr hjóla-
stólnum Daniel Day Lewis er
þekktur fyrir að lifa sig inn í hlutverk sín.
Árið 1989 lék hann fjölfatlaðan írskan
listamann í myndinni My Left Foot. Til
að setja sig sem mest inn í hlutskipti
persónu sinnar fór leikarinn ekki úr
hjólastólnum allan þann tíma sem unnið
var að myndinni og á matmálstímum
var hann mataður með skeið. Á þessum
tíma rifbeinsbrotnaði leikarinn tvisvar.
Hann fékk fyrstu Óskarsverðlaun sín af
þremur fyrir frábæran leik í myndinni.
Nærðist á salati
og haframjöli Anne
Hathaway lagði ýmislegt á sig til að vera
sannfærandi Fantine í Vesalingunum. Sítt
hár sitt lét hún klippa stutt og hún léttist
um 13 kíló með því að nærast á salati og
haframjöli. Fyrir vikið varð hún svo mögur og
viðkvæm að hún handleggsbrotnaði þegar
hún féll af reiðhjóli. Hún segir það hafa tekið
margar vikur að jafna sig eftir að tökum var
lokið. Hún átti sannarlega skilið Óskarinn
sem hún fékk fyrir leik sinn í myndinni.
Hélt að hún
myndi deyja
Natalie Portman missti 10
kíló og æfði ballet minnst
átta tíma á dag fyrir hlutverk
sitt í The Black Swan. Hún
segist varla hafa bragðað mat
á þeim tíma. Álagið var svo
mikið að hún missti táneglur
og brákaði rif. „Stundum hélt
ég að ég myndi bókstaflega
deyja,“ sagði hún. Það hljóta
að hafa verið sárabætur fyrir
allt erfiðið að hún skyldi vinna
til Óskarsverðlauna.
Var tvo mánuði að
jafna sig Árið 2008 lék Kate
Winslet í myndinni The Reader og lék þar
fangavörð í útrýmingarbúðum nasista.
Hlutverkið tók mjög á leikkonuna sem var
tvo mánuði að jafna sig eftir að kvikmynda-
tökum var lokið. „Það var eins og ég hefði
sloppið lifandi frá alvarlegu bílslysi og hefði
þörf fyrir að skilja hvað hefði gerst,“ sagði
hún. Leikkonan fékk bæði Golden Globe og
Óskarsverðlaun fyrir frammistöðuna.
Óttaðist um
geðheilsu sína Til að
setja sig inn í hlutverk píanóleikara á
ógnartímum nasista æfði Adrien Brody sig
í fjóra tíma á dag á píanó. Persóna hans
í myndinni var maður sem svalt og til að
skilja hvernig tilfinning það er fór leikarinn
í stranga megrun og missti 15 kíló á sex
vikum. Brody sagði að hann hefði lifað
sig svo mjög inn í persónuna að stundum
hefði hann óttast um geðheilsu sína.