Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 20
vikublað 7.–9. mars 20172 Gæðakaffi - Kynningarblað Kaffihúsið sem alltaf vantaði í Breiðholtið Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík G amla kaffihúsið er hlý- legur staður í Drafnar- felli í Breiðholti. Unnur Arna Sigurðardóttir, einn eigenda þess, er ákaflega ánægð með frábærar móttökur við- skiptavina. „Það var brýn þörf á að fá gott kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið og rólegt svæði. Hér býr margt fólk og alls ekki allir sem vilja fara niður í bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla og finnst nota- legt að setjast inn hjá okkur,“ segir hún. „Það hefur vakið mikla lukku að við bjóðum einnig upp á mat og við erum t.d. alltaf með tvær mis- munandi gerðir af súpum í hádeg- inu og rétt dagsins. Þannig að það má segja að við séum nokkur konar bistró. Hádegismatartíminn stend- ur yfir frá kl. 12.00–14.00.“ Ljúffengar steikur Unnur segir að matseðillinn sé ekki stór en sætur og með sérvöldum, bragðgóðum réttum. „Gestir hafa verið afar hrifnir af eðalbrauðun- um okkar en þau er tvisvar sinnum stærri en hefðbundin rúnstykki og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða mínútusteik. Allan daginn eru síðan á boðstólum ljúffengar steikur; nautasteik með bearnaise- eða piparsósu og fær fólk sér þá gjarn- an rauðvínsglas með máltíðinni og röltir svo satt og sátt heim til sín, í göngufæri. Gamla kaffihúsið okkar er heim- ilislegt og fólki finnst þægilegt að setjast niður hér og lesa eða spjalla við vinalegan þjóninn. Við erum með bókahillu sem fólk getur seilst í og lesið. Fólk getur bæði tekið bækur og gefið þær sem það hefur lesið og vill að aðrir njóti.“ Kökuhlaðborð á sunnudögum „Á sunnudögum er alltaf kökuhlað- borð hjá okkur upp á gamla móð- inn á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar aðeins 2.000 krónur og er kaffi þá innifalið. Þetta er nokkuð sem fólk hefur saknað og þykir dá- samlegt að geta tekið upp þenn- an skemmtilega gamla sið að fara í kaffihlaðborð á sunnudagseftir- miðdögum,“ segir Unnur og brosir hlýlega um leið og hún kemur því á framfæri að hún þakki innilega fyrir frábærar móttökur gesta. Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík. Sími: 511-1180.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.