Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 16
vikublað 7.–9. mars 201716 Fréttir Erlent K ínverskir karlmenn sem eru komnir yfir þrítugt og eru enn ókvæntir eru í Kína kall- aðir „afgangs-menn“. Ástæð- una má rekja til þess að árið 1979 var tekin upp svokölluð eins barns stefna en allt fram til ársins 2015 máttu flestar konur í landinu aðeins eignast eitt barn. Af stefnunni leiddi mikil kynjaskekkja en töluvert fleiri karlmenn eru í Kína en konur. Þrátt fyrir að stefnunni hafi verið kastað fyrir róða árið 2015 mun áhrifa hennar gæta næstu áratugi, hið minnsta. Kynjaskekkjan hefur orðið til þess að mörgum kínverskum karl- mönnum hefur reynst erfitt að kynn- ast konum sem þeir hafa hug á að verja lífinu með. Afleiðingar eins barns stefnunnar Þá er talið er að kynjabilið eigi enn eftir að stækka. Talið er að árið 2020 verði 30 milljónum fleiri karlmenn en konur sem eru að leita sér að lífsföru- naut í Kína. Bandaríski hagfræðingur- inn Nicholas Eberstadt spáir því að meira en fjórðungur kínverskra karl- manna verði ókvæntir árið 2030. Þar sem vandamálið er nú þegar orðið stórt í Kína og margir karlmenn eiga í mestu vandræðum með að finna sér maka þá hafa fjölmargir tekið upp á því að eyða gríðarlega miklum tíma og peningum í að keppast um athygli kvenna. Til dæmis hugsa þeir einstak- lega vel um útlitið og klæðnað sinn. Þá hefur það færst í vöxt að kínversk- ir karlmenn leigi sér kærustur til að fá frið frá uppáþrengjandi ættingjum. Árið 2015 kærði kínverskur við- skiptajöfur á fertugsaldri fyrirtæki í Sjanghaí sem sérhæfir sig í að finna maka fyrir ólofaða karlmenn. Hann var einstaklega ósáttur við að starfs- fólki fyrirtækisins tókst ekki að finna eiginkonu fyrir hann þrátt fyrir að hann hefði borgað sem samsvar- ar tæplega sjö milljónum íslenskra króna fyrir þjónustuna. Þá hafa stefnumótahefðir Kínverja einnig breyst töluvert síðustu ár. Æ fleiri Kínverjar finna ástina á spjall- síðum. „Þetta er orðið allt annað. Fólk er orðið miklu opnara og vestræn gildi eru orðin töluvert meira við lýði nú en áður. Þá er ungt fólk að mestu leyti hætt að gifta sig einstaklingum sem foreldrar telja ákjósanlega heldur fylgja þess í stað hjartanu,“ segir Jun Li, sem er tvítug, einhleyp kona frá Suzhou í Jiangsu-héraði í Kína. Vilja yngri konur Hong Yang, sem er gift kona á þrítugs- aldri, segir að svokölluð tengda- mömmuhagfræði sé vel þekkt fyrir- bæri í Kína. „Ef menn vilja kvænast dætrum þessara kvenna þá þurfa þeir að vera búnir að kaupa hús áður en hægt er að ræða næstu skref í ferlinu. Þetta er ein ástæða þess að húsnæðis- verð hefur hækkað svo ört í Kína síð- ustu ár.“ Þessi fjárhagslega byrði á karl- menn hefur einnig gert kínverskum konum erfitt um vik að finna sér maka. Þar sem karlmenn þurfa að vera fjárhagslega vel stæðir til þess að eiga möguleika á því að kvænast þá eru þeir orðnir töluvert eldri þegar þeir loks ganga í hjónaband. Þá velja mennirnir yfirleitt kon- ur sem eru yngri en þeir sjálfir þegar þeir eru loks orðnir nógu fjárhags- lega sterkir til að stofna fjölskyldu en það er mjög algengt í Kína að aldurs- bil hjóna sé 10 til 20 ár. Því eru ekki aðeins karlmenn sem sitja í súpunni sökum eins barns stefnu Kínverja heldur milljónir fjölskyldna um allt land. n hörð barátta um hylli kvenna Afdrifaríkar afleiðingar eins barns stefnunnar í Kína Eins barns stefna Kínverja Stefna Kína um eitt barn á sér langa sögu. Undir stjórn Maó Zedong á 7. áratug síðustu aldar var kínverska þjóðin hvött til að eignast eins mörg börn og mögulegt var þar sem Maó taldi fólksfjölgun undirstöðu vaxtar. Á árunum 1949 til 1976 fjölgaði Kínverjum úr 540 í 940 milljónir. Í upphafi 8. áratugarins mæltust stjórnvöld til þess að fólk léti tvö börn duga. Í lok 8. áratugarins, þegar Deng Xiaoping hafði tekið við völdum, reiknaði hópur stærð- fræðinga sig niður á þá lausn að 700 milljónir væri kjöríbúafjöldi landsins. Hófust stjórnvöld þá handa við að draga úr fólksfjölgun og árið 1979 var hin svokallaða eins barns stefna tekin upp og var markmiðið að árið 2080 yrði íbúafjöldinn kominn í 700 milljónir. Talið er að stefnan hafi hindrað fæðingu um 400 milljóna barna síðan hún var tekin upp. Eins barns stefnunni hefur þó ekki verið fylgt út í hörgul. Kínversk yfirvöld veita margar undanþágur og þjóðarbrot sem heyra til minni- hlutahópa eru ekki undir hana sett. Þannig náði stefnan einungis til 36 prósenta þjóðarinnar árið 2007 og 53 prósent til viðbótar máttu eign- ast annað barn ef frumburðurinn var stúlka. Með afnámi eins barns stefnunnar vilja kín- versk stjórnvöld ná fram hægari en stöðugum vexti til framtíðar. Þá eru þetta einnig viðbrögð við þeirri staðreynd að vinnuafl í Kína hefur elst á undan- förnum árum. Samhliða auknum lífslíkum og lækkandi fæðingartíðni fækkaði vinnufærum Kínverjum í fyrsta skipti í tvo áratugi í fyrra. Fréttirnar af stefnubreytingu stjórnvalda í Peking höfðu umsvifalaust áhrif á markaði því verð hlutabréfa í Danone, einu stærsta framleiðanda heims á sviði barnamatvæla, hækkuðu um þrjú prósent og hefur ekki verið hærra síðan í apríl. Kínverjar verja árlega 19 milljörðum króna í barnamat og er Kína orðinn stærsti mark- aðurinn fyrir barnamat en veltan þar hefur tvöfaldast undanfarin fimm ár. Kristín Clausen kristin@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.