Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Blaðsíða 32
vikublað 7.–9. mars 201728 Menning Litabreytingar í húð Ör / húðslit Húð með lélega blóðrás / föl húð Öldrun og sólarskemmdir í húð / tegjanleiki húðar Blandaða og feita húð / stíflaðir fitukirtlar Hin upphaflega JURTA HÚÐENDURNÝJUN Árangur um allan heim í yfir 50 ár. Máttur náttúrulegrar fegurðar www.vilja.is M enningarverðlaun DV fyrir árið 2016 verða veitt miðvikudaginn 15. mars næstkomandi klukkan 17.00 í Iðnó. 45 verk- efni, hópar og einstaklingar eru til- nefndir til verðlaunanna í ár í níu flokkum; kvikmyndum, leiklist, dansi, tónlist, myndlist, arkitektúr, hönnun, bókmenntum og fræð- um, en auk þess veitir forseti Ís- lands sérstök heiðursverðlaun og lesendaverðlaun dv.is verða afhent. Nú stendur yfir netkosning á dv. is þar sem lesendum gefst tækifæri til að kjósa þá tilnefningu sem þeim líst best á – sú tilnefning sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni sem lýkur á miðnætti 14. mars hreppir lesendaverðlaun dv.is. Hægt er að skoða allar tilnefningarnar og taka þátt í kosningunni á http://www.dv. is/fbkosning/menningarverdlaun- dv-2016/ Þegar fréttin er skrifuð eru eftir- farandi tilnefningar í efstu sætunum. n Græni hatturinn, tónleikastaður, sem tilnefndur er í flokki tónlistar. n Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur og stelpurnar sem dansa í verkinu Grrrrrls, en þær eru tilnefndar í flokki danslistar. n Helena Jónsdóttir, dans- og kvikmynda- gerðarkona, sem er tilnefnd fyrir brautryðj- endastarf í dansmyndagerð á Íslandi. n Katie Buckley hörpuleikari sem tilnefnd er í flokki tónlistar. n Sólveig Guðmundsdóttir leikkona sem er tilnefnd fyrir leik sinn í Illsku og Sóley Rós ræstitækni. n Saxhóll, viðkomu- og útsýnisstaður hannaður af landslagsarkitektastof- unni Landslag, sem tilnefndur er í flokki byggingarlistar. n Fangelsið Hólmsheiði,sem er hannað af Arkís og tilnefnt í flokki byggingarlistar. Taktu þátt í netkosningunni Menningarverðlaun DV 2016 verða veitt í næstu viku Stríð Ragnars og Kjartans sett upp í Þjóðleikhúsinu Klukkutíma langt dauðastríð prússnesks hermanns við undirleik Sinfóníunnar E inþáttungsóperan Stríð eftir Ragnar Kjartansson verður sett upp í samstarfi við Sin- fóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu vorið 2018. Í verkinu, sem var upphaflega sýnt í Volksbühne-leikhúsinu í Berlín í mars 2016 undir nafninu Krieg, fá áhorfendur að fylgjast með til- finningaþrungnu og yfirgengi- legu dauðastríði prússnesks 18. aldar hermanns í klukkustund, í rómantískri handmálaðri sviðsmynd og undir dramatískri óperutónlist eftir Kjartan Sveinsson. Stríð er annað sviðsverkið sem Ragnar og Kjartan vinna í sam- einingu. Síðast gerðu þeir Kraft- birtingarhljóm guðdómsins sem er byggt á Heimsljósi eftir Halldór Laxness. Verkið var einnig unnið fyrir Volksbühne-leikhúsið en síðar sett upp í Borgarleikhúsinu. Kraft- birtingarhljómur guðdómsins var leikaralaus óður til sviðsmyndarinn- ar, þess hluta leikhússins sem alltaf stendur í bakgrunni á bak við leik- arana. En í Stríði er leikarinn stiginn inn í sviðsmyndina og sviðsljósinu er beint að honum, hinum klass- íska leikara og leiknum. Í viðtali við DV í apríl í fyrra sagðist Ragnar vera að gera „myndlistarverk fyrir leikhús […] um leikhúsið í leikhúsinu.“ Í uppfærslunni á Stríði í Berlín var frumsamin tónlist Kjartans að- eins leikin í hljómflutningstækjum en í Þjóðleikhúsinu munu hljóð- færaleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika undir dauðastríðinu. „Við Kjartan vorum að vinna með óperuformið, vorum að gera þessa melódramatísku óperu. Það var því smá synd að hafa tónlistina bara á bandi. Kjartan samdi náttúrlega alla músíkina sérstaklega fyrir þetta. Svo kannski verður þetta einhvern tím- ann sett upp sem ópera með hljóm- sveit og öllu. Það væri svo skemmti- leg andstæða, þessi svakalega tilfinningaþrungna samda tónlist og svo er gaurinn á sviðinu bara að emja yfir: „aaaaaahhhhhhhhhh.“ Mér finnst það mjög áhugavert,“ sagðir Ragnar í fyrra. Og nú er ljóst að ósk Ragnars mun verða að veruleika. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Dauðastríð Stríð er ósungið óperuverk eftir Ragnar Kjartansson þar sem áhorfend- ur fylgjast með leikara leika klukkustundar langt dauðastríð 18. aldar prússnesks hermanns. Semur tónlistina Kjartan Sveinsson, tónskáld og fyrrverandi meðlimur Sigur Rósar, semur tónlistina við óperuna Stríð. MynD Helen WooD Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048 jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is Gervigras og sparkvellir Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“ Sími 565 1048 - 820 8096 jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is Útileiktæki: Rólur, vegasölt, gormatæki, rennibrautir, leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum framleiðendum eins og Lappset, Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck ofl. Járnrimlagirðingar fyrir skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli, fjölbýlishús og ein alóð r. Þýsk gæði frá Legi. Hjólabrettapallar frá Rhino Ramps í Belgíu, komnir upp víða um land við frábærar undirtektir notenda. Fallvarnarefni: Gúmmíhellur frá Þýskalandi og gúmmímottur á gras, þar sem grasið vex upp í gegn um motturnar og motturnar hlífa grasinu og virka sem fallvörn. Leikföng, húsgögn og búnaður fyrir leikskóla frá stærsta dreifingaraðila Danmörku, Lekolar (áður Rabo - Brio). Mörk og körfur, útiþrektæki og ýmsar gerðir af sparkvöllum frá viðurkenndum framleiðendum eins og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed og Saysu. Bekkir, ruslafötur, stubbahús, skýli, reiðhjólagrindur, trjágrindur, pollar, ljósastaurar, blómaker ofl. f á GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril Vestre o.fl. Bændur og hestamenn: Nótuð plastborð, fjárhúsgólf, búgarðagirðingar (Dallas), gerði og girðingarstaurar. úr plasti, básamottur og fóðurgangamottur. BJóðuM HeiLdarLausnir á LeiksvæðuM. uppsetning, viðHaLd og þJónusta Leitið tiLBoða w w w .jo ha nn he lg i.i s Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33 M yn di r f rá F er ða þj ón us tu nn i V at ns ho lti w w w .s ta yi ni ce la nd .is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.