Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2017, Blaðsíða 20
Vikublað 25.–27. apríl 2017KYNNINGARBLAÐ2 Heitir pottar og gufuböð Hágæði og hagstætt verð Heitir pottar og saunavörur: Goddi, Auðbrekku 19, kópAvoGi Fyrirtækið Goddi, Auðbrekku 19 kópavogi, er með afar fjölbreytt vöruúrval og er meðal annars framarlega í sölu á heitum pottum, lokum yfir heita potta, infrarauðum saunaklefum og hitaklefum, auk hefð- bundinna gufubaða og ýmiss konar búnaðar þeim tengdum. Goddi selur heita potta af tegundunum Hydro og ocean. Þetta eru afar vandaðir pottar með loki úr sterku leðurlíki og hlífin er gerð fyrir íslenskt veðurfar. verð á potti með loki og tröppu er aðeins 780.000 krónur. einnig eru í boði lok á heita potta í þremur litum og stærðunum 200x200 cm, 208x208 cm og 213x213 cm á aðeins 69.500 krónur – lok sem henta einstaklega vel fyrir íslenska veðráttu. Lokin eru samanbrjótanleg í miðju, með góðum festingum og svuntu, eru létt og meðfærileg. infrarauðir saunaklefar eru áhugaverð uppfinning en Goddi býður þessa klefa á mjög hagstæðu verði, eða frá rúmlega 200 þús- und krónum. Hægt er að fá klefa sem eru frá tveggja manna upp í fjögurra manna. infrarauðir geislar, eða ir-greislar, hafa ýmsa kosti fyrir heilsu manna, til dæmis örva þeir líkamann sem getur brennt allt að 600 hitaeiningum á 30 mínútum og fólk svitnar þrefalt meira en í hefðbundnu saunabaði. ir-geislar örva æðakerfið og auka blóðflæði, víkka æðar, lækka blóðþrýsting og fá hjartað til að slá hraðar, sem styrkir og eflir hjartavöðvann. ir-geislar eru mikið notaðir til lækninga, við tognun, stirðleika í liðum og öðrum vöðvaverkjum, og þeir fjarlægja mjólkursýru og koldíoxíð úr vöðvum. Ítarlegri fróðleik um ir-geisla og ir-saunabaðklefa má finna á heimasíðu Godda, goddi.is Goddi býður líka upp á mikið úrval af hefðbundnum saunaböðum frá finnska gæðaframleiðandanum Harvia. er þar bæði um að ræða heilu gufuböðin og einstaka hluta þeirra og fylgihluti. Gott er að fá ráðgjöf á staðnum um hvað til þarf og hvaða kostir séu hagstæðastir fyrir hvern og einn viðskiptavin. Goddi Auðbrekku 19 200 Kópavogur Símar: 544-5550 / 822-4150 goddi@goddi.is Goddi.is Goddi er á Facebook

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.