Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 18. ágúst 2017fréttir
F
asteignamat hlunninda sem
fylgja jörðum í eigu Þjóðkirkj-
unnar nemur 230 milljónum
króna. Jarðir í eigu kirkjunnar,
sem Kirkjumálasjóður fer með, eru
41 talsins og fylgja hlunnindi 29
þeirra. Um er að ræða veiðirétt, jarð-
hita, reka, æðarvarp og önnur óskil-
greind hlunnindi. Langmest vegur
hlutur jarðarinnar Hofs í Vopna-
firði en veiðihlunnindi jarðarinn-
ar eru metin á 83,5 milljónir króna í
fasteignamati. Um er að ræða veiði-
hlunnindi í Hofsá, einni helstu lax-
veiðiá landsins, og Sunnudalsá.
Arður af veiðirétti í Hofsá nemur um
níu milljónum króna á ári.
Þeir prestar sem sitja jarðir í eigu
kirkjunnar, prestsetursjarðir, hafa
frá fornu fari fengið jarðirnar til
ábúðar og nytja, með þeim hlunn-
indum sem þeim fylgja. Það þýðir
í raun að prestar hafa getað stund-
að búskap samhliða prestsstörfum
en jafnframt sinnt dúntekju, nýtt
reka, stundað selveiðar, leigt út
veiðirétt eða nýtt hver þau hlunn-
indi sem hverri jörð fylgja. Í upp-
hafi tuttugustu aldar hóf hið opin-
bera að greiða prestum laun fyrir
störf sín en hlunnindi fylgdu engu
að síður prestsetrum áfram.
Kirkjan vill undanskilja hlunnindi
Árið 2015 skilaði ráðgjafahópur
biskupi Íslands greinargerð um
hlunnindi presta þar sem meðal
annars kemur fram að arður sem
prestar fái af hlunnindum, án þess
að þurfa að inna af hendi sérstakt
vinnuframlag, skekki stöðu stétt-
arinnar innbyrðis og sé úrelt fyrir-
komulag sem ætti að afnema. Ekki
væri þó rétt að svipta sitjandi presta
umræddum hlunnindum þar eð
ekki væri hafið yfir vafa að slíkur
gjörningur stæðist lög. Því var lagt
til að hlunnindi af umræddum toga
yrðu undanskilin þegar brauð yrðu
auglýst og veitt nýjum prestum í
framtíðinni.
Sú hefur orðið raunin í tveimur
tilfellum síðan þá, fyrst í fyrra þegar
Reynivellir í Kjós voru auglýstir
lausir. Reynivellir eiga veiðirétt í
Laxá í Kjós sem metinn er á tæpar
25 milljónir króna í fasteignamati.
Þau hlunnindi voru undanskilin og
rennur arður af veiðiréttinum nú í
Kirkjumálasjóð. Nú fyrir skemmstu
var jörðin Hof í Vopnafirði, sem
nefnd er hér að framan, auglýst laus
og þá tók Kirkjuráð einnig ákvörðun
um að umræddur veiðiréttur yrði
undanskilinn.
Hafa staðið í dómsmálum
Sem fyrr segir á Þjóðkirkjan eða
Kirkjumálasjóður 41 jarðeign í 29
sveitarfélögum. Hlunnindi fylgja
29 þessara jarða en um er að ræða
nýtingu jarðhita, reka, selveiði,
æðarvarp, veiðihlunnindi og
önnur hlunnindi, óskilgreind.
Alls er verðmæti umræddra
hlunninda metið á 230 milljón-
ir króna í fasteignamati jarðanna
29. Þó er rétt að geta þess að í
yfir liti yfir fasteignamat prestset-
ursins Staðastaðar á Snæfellsnesi
eru hlunnindi í æðarvarpi metin
upp á rúmar fjórar milljónir
króna. Hins vegar staðfesti Hæsti-
réttur september í fyrra dóm hér-
aðsdóms þess efnis að umrædd
hlunnindi tilheyrðu nágranna-
jörðinni Haga. Þá féll í mars á
þessu ári dómur í Hæstarétti þess
efnis að veiðiréttur Staðastaðar í
Staðará væri sameiginlegur með
jörðinni Tröðum en ekki kom
fram í dómnum hvernig skipta
bæri þeim veiðirétti. Hlunnindi
af veiðiréttinum voru í fasteigna-
mati Staðastaðar talin 1,5 millj-
ónir króna.
Hofi fylgja verðmestu hlunnindin
Sem fyrr segir eru hlunnindi sem
fylgja jörðinni Hofi í Vopnafirði
metin langhæst allra jarða kirkj-
unnar, 83,5 milljónir króna. Næst
kemur jörðin Reynivellir sem fyrr
er nefnd en hlunnindi af veiðirétti
í Laxá í Kjós eru metin á tæpar 25
milljónir króna. Í flestum tilfellum
hafa jarðirnar hlunnindi af veiði-
rétti, alls 21 jörð, og er heildarfast-
eignamat þeirra hlunninda metið
ríflega 170 milljónir króna. Þar
á eftir koma hlunnindi af æðar-
varpi en tíu jarðir teljast njóta slíkra
hlunninda og er heildar fasteigna-
matið tæpar 48 milljónir. Æðarvarp
sem fylgir jörðinni Kolfreyjustöðum
í Fáskrúðsfirði er hæst metið, upp á
13,7 milljónir króna.
Rekinn ekki verðmikill
Jarðhiti fylgir þremur jörðum og er
metinn á tæpar tíu milljónir króna.
Réttur til að stunda selveiðar fylgir
einni jörð, Vatnsfirði við Djúp, og
er hann metinn á tæpar 300 þús-
und krónur. Rekaítök hafa fjórar
jarðir en verða fæstir líklega feitir
með nýtingu þeirra. Heildar fast-
eignamatið nemur 144 þúsund
krónum. Á jörðinni Skinnastöðum
í Öxarfirði stendur reki undir tvö
þúsund króna fasteignamati, hvorki
meira né minna. Þá er ótalið að
Kirkjumálasjóður á jörðina Hrút-
ey í Hrútafirði, sem lengst af fylgdi
raunar prestsetrinu Melstað í Mið-
firði. Í Hrútey er æðarvarp metið
til hlunninda en einnig óskilgreind
hlunnindi upp á 116 þúsund krón-
ur í fasteignamati. DV er ekki kunn-
ugt um hvaða hlunnindi þar um
ræðir.
Skiptingin ærið misjöfn
Af jörðunum 29 sem hlunnindi
fylgja eru 20 svokallaðar prest-
setursjarðir, það er setnar prest-
um. Þó er raunar prestlaust sem
stendur á Hofi og einnig á Staða-
stað en deilur standa milli fyrrver-
andi sóknarprests þar, séra Páls
Ágústs Ólafssonar, og kirkjunnar
um afhendingu prestsbústaðar-
ins og jarðarinnar. Sem fyrr segir
renna hlunnindatekjur jarðanna
Hofs og Reynivalla nú til Kirkju-
málasjóðs en hlunnindi annarra
jarða renna til prestanna sem þær
sitja, utan Staðastaðar þar sem
mál eru í óvissu. Af hinum jörðun-
um má ætla að presturinn á Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd, Kristinn
Jens Sigþórsson, hafi drýgstar tekj-
ur af hlunnindum. Í fasteignamati
jarðarinnar er veiðiréttur metin
á tæpar 20 milljónir króna. Í fast-
eignamati jarðarinnar Heydala
í Breiðdal, þar sem Gunnlaugur
Stefánsson, fyrrverandi þingmaður
Alþýðuflokksins, situr sem prestur,
er tiltekið að veiðiréttur og dún-
tekja séu virði rúmra 16 milljóna
króna.
Það er hins vegar ærið mis-
jafnt hversu mikil hlunnindi fylgja
jörðunum. Áður var minnst á
Skinnastaði þar sem reki er talin
tvö þúsund króna virði í fasteigna-
mati. Á Skeggjastöðum við Bakka-
fjörð er æðarvarp metið í heilar eitt
þúsund krónur og reki á 34 þúsund
krónur. Ekki er víst að séra Bryn-
hildur Óladóttir sem þar situr fylli
vasa sína með greiðslum af þeim
hlunnindum.
Sumir geta setið lengi enn
Hér fyrr í fréttinni var nefnt að ekki
væri hafið yfir vafa að það stæð-
ist lög að svipta sitjandi presta
hlunnindum þeirra jarða sem
þeir sitja. Því yrði slíkt ekki gert
fyrr en þeir segðu sig frá brauðinu
eða hættu fyrir aldurs sakir.
Mjög misjafnt er hversu langt er
eftir af skipunartíma prestanna,
það er þangað til þeir verða sjö-
tugir en þá þurfa þeir að láta af
prestsstörfum. Þannig á Elínborg
Sturludóttir, prestur að Stafholti
í Stafholtstungum, ríflega 21 ár í
sjötugt en hlunnindi jarðarinnar
samkvæmt fasteignamati nema
rúmum 16 milljónum króna fyrir
veiðirétt. Séra Gunnlaugur Stef-
ánsson, sem nefndur er hér að
framan, prestur í Heydölum, á
hins vegar aðeins rúm þrjú ár í
sjötugt. Má fastlega gera ráð fyrir
því að þegar Heydalur verði aug-
lýstur laus verði hlunnindi undan-
skilin, í það minnsta veiðiréttur. n
Hlunnindi kirkjujarða
230 milljóna króna virði
n Fylgja 29 jörðum kirkjunnar n Hafa runnið til presta en breytinga er að vænta
Kirkjan var árhundruðum saman helsti
jarðeigandi á Íslandi. Um siðaskiptin á
miðri 16. öld átti kaþólska kirkjan um
helming alls jarðnæðis á landinu. Eftir
siðaskipti jókst ásókn dönsku krúnunnar í
jarðeignir hér á landi en engu að síður var
kirkjan eftir sem áður stór jarðeigandi.
Árið 1907 tók íslenska ríkið til sín jarðir
kirkjunnar, aðrar en prestsetursjarðir,
gegn því að greiða úr ríkissjóði laun
presta. Nýta átti arð af sölu eða leigu
umræddra jarða í því skyni. Þeir fjármunir
entust þó ekki lengi og árið 1919 voru
prestar felldir undir lög um laun embætt-
ismanna og fengu upp frá því föst laun
greidd úr ríkissjóði.
Þjóðkirkjan gerði hins vegar athugasemdir
við með hvaða hætti samkomulaginu frá
1907 var framfylgt og lagði fram það álit
sitt að eignarréttur umræddra jarða lægi
enn hjá kirkjunni. Sú afstaða var staðfest
með kirkjujarðasamkomulaginu árið 1997
þar sem samið var um að ríkið fengi til
eignar um það bil 600 jarðir gegn því að
greiða laun sem samsvara 138 prests-
embættum.
Kirkjan lengi helsti jarðeigandinn
Framseldi jarðir til ríkis gegn launagreiðslum presta
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Mynd © EyþóR ÁRnASon
nýtur hlunninda Séra Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Heydölum í Breiðdal, nýtur hlunninda sem fylgja prestsetrinu. Bæði er um að
ræða æðarvarp og veiðirétt sem samtals er metið á 16 milljónir króna í fasteignamati. Mynd AuStuRfRétt/GunnAR
Heydalakirkja
Mynd AuStuRfRétt/GunnAR
Staðará Kirkjumálasjóður tapaði dómsmáli um veiðirétt prestsetursins Staðastaðar
í Staðará í fyrravor. Niðurstaðan varð að veiðirétturinn væri sameiginlegur með jörðinni
Tröðum. Áður hafði sjóðurinn tapað dómsmáli vegna æðarvarps sem gert var tilkall til.
freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is