Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 26
2 Með allt á hreinu Helgarblað 18. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ
Þrif og ræstivörur: Fágæt
sérþekking og persónuleg
þjónusta
Þrif og ræstivörur er um
margt afar áhugavert fyrir
tæki með mikla sérstöðu.
Fyrir tækið er á Akureyri og
rekur annars vegar sér
verslun með efni og tæki til
hreingerninga og veitir hins
vegar víðtæka og fjölbreytta
ræstinga og hreingern
ingarþjónustu til fyrirtækja og
einstaklinga.
Verslunin er að Frostagötu
4C og er opin virka daga
milli kl. 8 og 16. Þar er meðal
annars að finna hinar þekktu
Evans hreinsivörur frá Bret
landi og margvísleg önnur
hreinsiefni. Þar eru einnig
margs konar áhöld, vélar
og tæki til ræstinga: tuskur,
svampar, sköft, skúringa
vagnar og skúringafötur með
vindum. Af öðrum vörum má
nefna pappír, pappírsstanda
og sápuskammtara frá hinum
virta merki Katrin.
Enn fremur er mikið úrval
af ryksugum, gólfþvottavélum
o.fl. undir hinu klassíska Nil
fiskmerki til sölu í versluninni,
sem og hreingerningarvélar
frá þýska framleiðandanum
Kärscher – en þar ber hæst
afar vinsæla vél til heimilis
nota sem bæði skúrar og
ryksugar.
„Helsta sérstaða verslun
arinnar er kannski sú að þar
starfar fólk sem er að vinna
með þessa hluti alla daga
þannig að viðskiptavinir frá
mjög sérhæfða ráðgjöf um
val og notkun á efnum og
tækjum. Þetta er eitthvað
sem fólk fær ekki annars
staðar, til dæmis í stórversl
unum. Mörg sterk hreinsiefni
eru ekki fyrir alla og þú getur
skemmt meira með þeim
en gert gagn. Það er
mikilvægt að velja
rétta vöru sem
hentar í viðkom
andi verkefni. Við
höfum alltaf lagt
mikið upp úr persónu
legri og góðri þjónustu,“ segir
Sveinn Rúnar, annar eigenda
fyrirtækisins, en hinn eig
andinn er eiginkona hans,
Birna Böðvarsdóttir.
Starfsemi Þrifa og ræsti
vara hefur vaxið mikið í
gegnum árin en fyrirtækið
sinnir daglegum ræstingum
og hreingerningum fyrir hina
ýmsu aðila, stóra og smáa,
fyrirtæki jafnt sem einstak
linga og heimili. Starfsmenn
eru nú um 120 talsins, allt í allt.
Starfsemin nær víða út fyrir
Akureyri: „Við veitum þjón
ustu alveg austur á firði og
vestur fyrir Blönduós. Við erum
með föst ræstingarverkefni
á Akureyri, Húsavík, Dalvík,
Ólafsfirði, Siglufirði, í Mývatns
sveit og víðar.“ Sveinn Rúnar
segir þörfina mikla og er lögð
mikil áhersla á faglega ráðgjöf
og persónulega þjónustu í
hreingerningum, viðhaldi gólf
efna og öðrum sérverkefnum.
Fyrirtækið sinnir margs konar
vandasömum sérverkefnum
en Sveinn Rúnar telur að sú
sérþekking sem fyrirtækið búi
yfir á þessu sviði sé fágæt.
Meðal stórra viðskipta
vina Þrifa og ræstivara
er Samkaup en fyrir
tækið hefur séð um
ræstingar fyrir
allar verslanir
Samkaupa á
Norðurlandi
í 12 ár.
Einnig má
nefna
Sam
herja,
Akureyrarbæ, Norðlenska,
Íslandsbanka, Sjúkrahúsið á
Akureyri, Mjólkursamsöluna og
Eimskip.
„Við höfum líka sérhæft
okkur mjög í tækjabúnaði til
að þjónusta tryggingafélög
í tjónamálum,“ segir Sveinn
Rúnar. „Við erum vel búnir
tækjum til að glíma við af
leiðingar vatnstjóns, erum t.d.
með rakabúnað, skilvindur,
blásara og fleira sem til þarf.
Einnig erum við sérhæfð í að
fást við brunatjón, t.d. með
búnaði og tækjum til að fást
við þrif eftir bruna og eyða
lykt.“
Að sögn Sveins Rúnars eru
verkefnin óþrjótandi en mikil
áhersla er lögð á að viðhalda
þeirri persónulegu þjónustu
með faglegri ráðgjöf við
viðskiptavini sem ávallt hefur
einkennt starfsemi fyrirtæk
isins þrátt fyrir að það stækki
og umsvifin aukist.
Nánari upplýsingar um
starfsemina veitir
Sveinn Rúnar í
síma 8652425
en einnig er að
finna upplýsingar á
Facebooksíðunni Þrif
og ræstivörur sem og á
heimasíðunni thrif.is.
Kärscher vélin sem bæði skúrar og
ryksugar hefur slegið í gegn hér á
landi
Nilfisk hefur staðist tímans tönn