Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 26
2 Með allt á hreinu Helgarblað 18. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ Þrif og ræstivörur: Fágæt sérþekking og persónuleg þjónusta Þrif og ræstivörur er um margt afar áhugavert fyrir­ tæki með mikla sérstöðu. Fyrir tækið er á Akureyri og rekur annars vegar sér­ verslun með efni og tæki til hreingerninga og veitir hins vegar víðtæka og fjölbreytta ræstinga­ og hreingern­ ingarþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga. Verslunin er að Frostagötu 4C og er opin virka daga milli kl. 8 og 16. Þar er meðal annars að finna hinar þekktu Evans hreinsivörur frá Bret­ landi og margvísleg önnur hreinsiefni. Þar eru einnig margs konar áhöld, vélar og tæki til ræstinga: tuskur, svampar, sköft, skúringa­ vagnar og skúringafötur með vindum. Af öðrum vörum má nefna pappír, pappírsstanda og sápuskammtara frá hinum virta merki Katrin. Enn fremur er mikið úrval af ryksugum, gólfþvottavélum o.fl. undir hinu klassíska Nil­ fisk­merki til sölu í versluninni, sem og hreingerningarvélar frá þýska framleiðandanum Kärscher – en þar ber hæst afar vinsæla vél til heimilis­ nota sem bæði skúrar og ryksugar. „Helsta sérstaða verslun­ arinnar er kannski sú að þar starfar fólk sem er að vinna með þessa hluti alla daga þannig að viðskiptavinir frá mjög sérhæfða ráðgjöf um val og notkun á efnum og tækjum. Þetta er eitthvað sem fólk fær ekki annars staðar, til dæmis í stórversl­ unum. Mörg sterk hreinsiefni eru ekki fyrir alla og þú getur skemmt meira með þeim en gert gagn. Það er mikilvægt að velja rétta vöru sem hentar í viðkom­ andi verkefni. Við höfum alltaf lagt mikið upp úr persónu­ legri og góðri þjónustu,“ segir Sveinn Rúnar, annar eigenda fyrirtækisins, en hinn eig­ andinn er eiginkona hans, Birna Böðvarsdóttir. Starfsemi Þrifa og ræsti­ vara hefur vaxið mikið í gegnum árin en fyrirtækið sinnir daglegum ræstingum og hreingerningum fyrir hina ýmsu aðila, stóra og smáa, fyrirtæki jafnt sem einstak­ linga og heimili. Starfsmenn eru nú um 120 talsins, allt í allt. Starfsemin nær víða út fyrir Akureyri: „Við veitum þjón­ ustu alveg austur á firði og vestur fyrir Blönduós. Við erum með föst ræstingarverkefni á Akureyri, Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, í Mývatns­ sveit og víðar.“ Sveinn Rúnar segir þörfina mikla og er lögð mikil áhersla á faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu í hreingerningum, viðhaldi gólf­ efna og öðrum sérverkefnum. Fyrirtækið sinnir margs konar vandasömum sérverkefnum en Sveinn Rúnar telur að sú sérþekking sem fyrirtækið búi yfir á þessu sviði sé fágæt. Meðal stórra viðskipta­ vina Þrifa og ræstivara er Samkaup en fyrir­ tækið hefur séð um ræstingar fyrir allar verslanir Samkaupa á Norðurlandi í 12 ár. Einnig má nefna Sam­ herja, Akureyrarbæ, Norðlenska, Íslandsbanka, Sjúkrahúsið á Akureyri, Mjólkursamsöluna og Eimskip. „Við höfum líka sérhæft okkur mjög í tækjabúnaði til að þjónusta tryggingafélög í tjónamálum,“ segir Sveinn Rúnar. „Við erum vel búnir tækjum til að glíma við af­ leiðingar vatnstjóns, erum t.d. með rakabúnað, skilvindur, blásara og fleira sem til þarf. Einnig erum við sérhæfð í að fást við brunatjón, t.d. með búnaði og tækjum til að fást við þrif eftir bruna og eyða lykt.“ Að sögn Sveins Rúnars eru verkefnin óþrjótandi en mikil áhersla er lögð á að viðhalda þeirri persónulegu þjónustu með faglegri ráðgjöf við viðskiptavini sem ávallt hefur einkennt starfsemi fyrirtæk­ isins þrátt fyrir að það stækki og umsvifin aukist. Nánari upplýsingar um starfsemina veitir Sveinn Rúnar í síma 865­2425 en einnig er að finna upplýsingar á Facebook­síðunni Þrif og ræstivörur sem og á heimasíðunni thrif.is. Kärscher vélin sem bæði skúrar og ryksugar ­ hefur slegið í gegn hér á landi Nilfisk hefur staðist tímans tönn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.