Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 32
Á tveimur árum hafa þau heimsótt 45 lönd, Ísland þar á meðal, en þau voru hér um miðjan júlí, flogið 150 flugferðir og upplifað einstök ævintýri og gefið af sér til mannúðarmála. Það sem upphaflega hófst sem ævintýralegt ferðalag um heiminn hefur þróast yfir í mannúðarstarf og þátttöku í góðgerðamálum, þar sem fjölskyldan hefur átt þess kost. Foreldrarnir gerðust sjálfboðaliðar sem kennarar á Balí, tóku þátt í að safna fötum og skóm fyrir munað- arlaus börn og hafa gefið blindum kost á leiseraugnaðgerð, svo fátt eitt sé nefnt. Fjölskyldan er efnuð; faðirinn seldi símasmáforrit til Snapchat árið 2016 fyrir 54 milljónir dollara eða um sex milljarða íslenskra króna. Ákváðu þau hjónin, Garrett og Jessica, að ávaxta peningana, selja eig- ur sínar og nota vextina til að merkja við ævintýrin á „fötulistanum“ með börnunum sínum, Dorothy, fjögurra ára, og Manilla, tveggja ára. Og næsta ævintýri er draumur allra barna, stórra sem smárra, Disney World. Þar ætlar fjölskyldan að verja heilum mánuði. Þar hyggjast þau prófa allt sem skemmtigarðurinn hefur upp á að bjóða: fjóra þemagarða, tvo vatnsskemmtigarða, heilsa upp á yfir 70 þúsund starfsmenn og gista á nýju hóteli hverja nótt. Fylgjast má með ævintýrum og ferða- lagi fjölskyldunnar, undir notandanafninu thebucketlistfamily, á heimasíðu þeirra, Instagram og Youtube, en fjölskyldan setur inn ný myndbönd þar alla sunnudaga. Gee-fjölskyldan, sem er þekkt á meðal fylgjenda sinna á samfélagsmiðlum sem „The Bucket List Family,“ seldi allar veraldlegar eigur sínar fyrir tveimur árum og hefur síðan ferðast um allan heim. HaFa FerðasT um aLLan Heim, ÍsLand meðTaLið Verja núna mánuði í Disney World Í Bláa lóninu Fjölskyldan var á Íslandi í júlí og heimsótti að sjálfsögðu lónið, eins og flestir aðrir ferðamenn. Við Skógafoss Íslensk náttúra Bústaðurinn sem leigður var á Airbnb. Ævintýrafjölskylda Gee-fjölskyldan lætur ævintýri rætast og gefur af sér á sama tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.