Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 32
Á tveimur árum hafa þau heimsótt 45 lönd, Ísland þar á meðal, en þau voru hér um
miðjan júlí, flogið 150 flugferðir og
upplifað einstök ævintýri og gefið af
sér til mannúðarmála.
Það sem upphaflega hófst sem
ævintýralegt ferðalag um heiminn
hefur þróast yfir í mannúðarstarf
og þátttöku í góðgerðamálum, þar
sem fjölskyldan hefur átt þess kost.
Foreldrarnir gerðust sjálfboðaliðar
sem kennarar á Balí, tóku þátt í að
safna fötum og skóm fyrir munað-
arlaus börn og hafa gefið blindum
kost á leiseraugnaðgerð, svo fátt eitt
sé nefnt.
Fjölskyldan er efnuð; faðirinn
seldi símasmáforrit til Snapchat árið
2016 fyrir 54 milljónir dollara eða
um sex milljarða íslenskra króna.
Ákváðu þau hjónin, Garrett og
Jessica, að ávaxta peningana, selja eig-
ur sínar og nota vextina til að merkja
við ævintýrin á „fötulistanum“ með
börnunum sínum, Dorothy, fjögurra
ára, og Manilla, tveggja ára. Og næsta
ævintýri er draumur allra barna,
stórra sem smárra, Disney World.
Þar ætlar fjölskyldan að verja heilum
mánuði. Þar hyggjast þau prófa allt
sem skemmtigarðurinn hefur upp
á að bjóða: fjóra þemagarða, tvo
vatnsskemmtigarða, heilsa upp á yfir
70 þúsund starfsmenn og gista á nýju
hóteli hverja nótt.
Fylgjast má með
ævintýrum og ferða-
lagi fjölskyldunnar,
undir notandanafninu
thebucketlistfamily,
á heimasíðu þeirra,
Instagram og Youtube,
en fjölskyldan setur inn
ný myndbönd þar alla
sunnudaga.
Gee-fjölskyldan, sem er þekkt á meðal fylgjenda
sinna á samfélagsmiðlum sem „The Bucket List
Family,“ seldi allar veraldlegar eigur sínar fyrir
tveimur árum og hefur síðan ferðast um allan
heim.
HaFa FerðasT um aLLan
Heim, ÍsLand meðTaLið
Verja núna mánuði í Disney World
Í Bláa lóninu Fjölskyldan var á
Íslandi í júlí og heimsótti að sjálfsögðu
lónið, eins og flestir aðrir ferðamenn.
Við Skógafoss
Íslensk náttúra Bústaðurinn sem
leigður var á Airbnb.
Ævintýrafjölskylda Gee-fjölskyldan lætur ævintýri rætast
og gefur af sér á sama tíma.