Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 36
„Breytingar eru tækifæri til
að gera eitthvað skemmtilegt“
Stefán Örn safnar bifreiðum
til varðveislu
Stefán Örn Stefánsson er
meistari í bifreiðasmíði,
hann heillast af eldri bílum
og hefur aldrei langað að
eiga nýja bíla. Fornbíla-
flotinn sem hann safnar
til varðveislu er í geymslu
í Bolungarvík, meðan
eigandinn vinnur við smíð-
ar í Grindavík. Hann er
óhræddur við að breyta
til þegar tækifærin banka
upp á og prófa eitthvað
nýtt, hvort sem það er
starf eða búseta.
Þegar ég var þriggja ára þá byrjaði ég að fara yfir götuna í bílskúr nágrannans
að forvitnast,“ segir Stefán Örn,
sem hékk sem krakki og lék sér í
þremur bílskúrum í götunni sem
hann bjó við ásamt foreldrum sín-
um í Kópavogi. Þar fylgdist hann
með körlunum gera við og dytta
að bílum og áhuginn á bílum og
bílaviðgerðum kviknaði.
Á unglingsárunum rúntaði
hann með vinunum um iðnaðar-
og íbúðahverfi og skoðaði bilaða
bíla og þegar bilaðir bílar í inn-
keyrslum íbúðarhúsa vöktu áhuga
þeirra, var bankað upp á og falast
eftir bílnum. „Iðulega fékkst svarið
frá eigandanum að hann væri nú
alveg að fara að gera við bílinn,
mörgum árum seinna var bíllinn
enn á sama stað, óuppgerður og
orðinn ónýtur.“
Flestir bekkjarbræðra hans fóru
í Menntaskólann í Kópavogi, en
hann fór í grunndeild málmiðna í
Iðnskólanum. Þegar námi þar lauk
valdi hann bifreiðasmíðina, „ein-
faldlega vegna þess að mig langaði
að kunna hana fagmannlega, ekki
af því ég ætlaði að vinna við hana.“
Samningur var hluti af nám-
inu og eftir tveggja ára vinnu á
verkstæði eftir sveinsnámið þá var
Stefán Örn orðinn hundleiður á
vinnunni og vildi breyta til. „Ég var
kominn
með vinnu í Noregi árið 2004,
en bauðst þá vinna á verkstæði
á Ísafirði og ég hugsaði að þetta
gæti verið það sem mig vantaði:
tilbreyting, annað umhverfi. Ég
þurfti samt að byrja á að fletta
upp hvar Ísafjörður er,“ segir
Stefán Örn, sem ákvað síðan að
taka eitt ár á þetta og flytja til
Ísafjarðar. Hann fór þangað einn
og óstuddur, og þekkti engan
fyrir vestan. Eftir árið var hann
búinn að kynnast konu, eign-
aðist síðan dótturina Þórunni
Hafdísi þremur árum seinna,
árið 2008, og gekk í hjónaband
árið 2010.
Þegar réttingarverkstæðið
á Ísafirði fór á hausinn ákvað
Stefán Örn aftur að breyta til og
fékk vinnu í stálsmíði. „Þar fór
ég að vinna við eitthvað sem
skildi eitthvað eftir sig og var
gefandi,“ segir Stefán Örn.
„Til dæmis í hvert skipti sem
ég geng inn í Edinborgarhúsið
á Ísafirði, þá sé ég fyrsta hand-
verkið sem ég sauð í ryðfrítt stál,
aðalhandriðið þar, það er fyrsti
hluturinn sem ég smíðaði.“
Aftur stóð Stefán Örn á tíma-
mótum þegar samdráttur leiddi
til uppsagnar í stálsmíðinni. Þá
ákvað hann að prófa að vera eigin
herra og opnaði verkstæði á Ísafirði
árið 2010, sem þróaðist í að verða
almennt bílaverkstæði.
„Svo fékk ég algjörlega leiða á
því, bílar hafa alltaf verið áhuga-
mál, en að vinna við þá frá morgni
til kvölds og ætla svo að fara í
skúrinn og vinna við mína eigin
bíla á kvöldin, það einfaldlega
virkaði ekki. Ég vildi fara að vinna
við eitthvað allt annað, svo þurfti
maður bara að ákveða hvað þetta
„allt annað“ ætti að vera.“
Slæptist um í fyrsta
sumarfríinu í sjö ár
Í byrjun sumars 2017 lokaði Stefán
Örn verkstæðinu, fór á puttanum
til Akureyrar og sótti gamlan Buick,
fór á rúntinn um Norðurlandið og
hluta af Austfjörðum, heimsótti
bílakirkjugarða og tók fyrsta sumar-
fríið í sjö ár. Hann var duglegur að
deila ferðalaginu á Snapchat, en
þar er hann undir notandanafninu
Ztebbi og er duglegur að deila dag-
lega lífinu þar, hvort sem það felst í
smíðunum, bílabröltinu eða öðru.
„Vinur minn vinnur við smíðar
í Grindavík og bauð mér íbúð þar
og mér bauðst vinna með honum,
þannig að ég ákvað bara að slá til.
Búinn að vera í mánuð og bara
mjög gaman,“ segir Stefán Örn.
„Smíðavinnan er svo fjölbreytt,
einn dag er ég að hengja upp speg-
il, næsta dag er ég að gera við leka í
húsi, þann þriðja að setja klæðn-
ingu á hús. Það er enginn dagur
eins, við gerum við allt sem þarf að
gera við. Vinnan er svo fjölbreytt
og miðað við fyrri reynslu ætla ég
að vera í eitt ár,“ segir Stefán Örn
og hlær. Þegar vinnudeginum lýkur
bregður hann sér í kjallarann hjá
NúveraNdi fararskjóti
Oldsmobile F85 árgerð 1962
sem Stefán Örn keyrir um á í
dag.
BóNuð glæsiBif-
reið Stefán Örn undir
stýri á Mercury Monterey
árgerð 1965.
skiptiNemi í BaNdaríkjuNum Stef
án Örn var skiptinemi í Bandaríkjunum í ei
tt ár eftir grunnskóla. Bílaáhuginn minnkað
i ekkert
vestanhafs. „Þegar ég var 17 ára skiptinem
i í Bandaríkjunum þá gerði ég upp þennan
Ford Galaxie árgerð 1963.“