Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 38
Með þann hæfileika að hljóma eins og
dvergur læstur í tunnu
Dalvíkingurinn Eyþór Ingi situr fyrir svörum
Fæddur og uppalinn? Á Dalvík.
Mér finnst gaman að … hanga í
stúdíóvinnu , spila og hlusta á
tónlist og fíflast með góðu fólki.
Síðasta kvöldmáltíðin: Nautasteik,
rauðvín, rauðvínssósa og gott
meðlæti. Eða „deluxe“ góður
hamborgari og ekkert bull.
Brenndur eða grafinn? Brenndur.
Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Úff,
það er allur gangur á því en mér
finnst svolítið týpískt að ég sé
einhvers staðar staddur á rauðu
ljósi í bíl.
Samfélagsmiðlar eða dagblöðin?
Samfélagsmiðlar eiga óhugnan-
legan vinning.
Hvað ertu með í vinstri vasanum?
Gítarneglur, kortaveski, stundum
krumpuð nóta.
Bjór eða hvítvín? Bjór frekar en
hvítvín.
Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu
heimili? Ég held að ég sjái um það
oftast þegar ég og frúin veljum
eitthvað, en annars eru allir nokk-
uð jafnir, þegar krakkarnir eiga í
hlut til dæmis.
Hvernig var fyrsti kossinn? Hann
var ógeðslegur, haha nei nei, hann
var í snjókomu utandyra að nóttu
til.
Hver væri titill ævisögu þinnar?
Hakuna Matana (Engar áhyggj-
ur).
Hver er draumabíllinn? Ég hef
voða lítinn áhuga og vit á bílum,
draumabíllinn er bara rafmagns-
bíll sem ég þarf litlar sem engar
áhyggjur að hafa af.
Fyrsta starfið? Sjómaður á trillu
hjá pabba var fyrsta alvöru starfið,
en annars var ég búinn að vera
skemmtikraftur af og til í óvissu-
ferðum og alls kyns uppákomum
á vegum Júlla Júll (Júlli Fiskidag-
ur) frá sirka 10 ára aldri og fékk
vasapening fyrir.
Fallegasti staður á landinu? Svarf-
aðardalurinn situr nálægt hjarta
mínu.
Hvaða ofurkraft værir þú til í að
vera með? Verða ósýnilegur.
Gist í fangaklefa? Nei.
Sturta eða bað? Sturta.
Húðflúr eða ekki? Ekki.
Hvaða leynda hæfileika hefur þú?
Get talað með lokaðan munn-
inn og það hljómar eins og lítill
dvergur læstur inni í tunnu.
Hvað fékk þig til að tárast síð-
ast? Útför hjá langafa mínum á
Dalvík, sem ég söng í.
Fyrirmynd í lífinu? Foreldrar mínir
eru kannski einu alvöru fyrir-
myndirnar, annað getur verið svo
grunnhyggið.
Hvaða sögu segja foreldrar þínir
endurtekið af þér?Allar sögurnar
þegar ég er með athyglisbrest, að
gleyma einhverju eða er utan við
mig.
Ertu með einhverja fóbíu? Það má
alls ekki snerta púlsinn á mér.
Hver er besta ákvörðun sem þú hef-
ur tekið? Að byrja með konunni
minni.
Furðulegasti matur sem þú hefur
borðað? Það kemur ekkert upp í
hugann í fljótu bragði.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur
lent í? Ég lendi ítrekað í neyðar-
legum atvikum sökum þess hvað
ég er utan við mig.
Klukkan hvað ferðu á fætur? Eins
seint og ég kemst upp með.
Leigirðu eða áttu? Ég á, ég er
frekar mikill safnari.
Hvaða bók er á náttborðinu?
Les ekki bækur og fæ hroll við
tilhugsunina um að hafa bók á
náttborðinu. Ipad-inn er þar.
Með hverjum lífs eða liðnum myndir
þú vilja verja einni kvöldstund? Ég
myndi vilja setjast niður með
Thom Yorke.
Hver er fyrsta endurminning þín?
Að vera heima hjá ömmu og afa
þegar systir mömmu kom heim
með hvolp.
Lífsmottó? Þetta reddast.
Uppáhaldsútvarpsmaður/stöð?
Rás 2, þar hafa þau átt hug
minn Andrea Jóns , Matti og
Óli þótt mér finnist reynd-
ar Andri Freyr vera einn
fyndnasti og skemmtilegasti
útvarpsmaður sem ég veit
um.
Uppáhaldsmatur/drykkur? Ég
er rosalegur hamborgaramað-
ur, svo drekk ég vatn sem er
frábær drykkur, gott rauðvín
eða ofsalega reykt Islay-viskí.
Uppáhaldstónlistarmaður/hljóm-
sveit ?
Get varla valið, Jeff Buckley
og Radiohead hafa mótað mig
svakalega, Josh Homme úr
Queens of the Stone Age á líka
ágætispart í því eins og David
Bowie, Led Zeppelin, Queen,
Deep Purple, og fleiri og fleiri.
Uppáhaldskvikmynd/sjónvarps-
þættir?
Game of Thrones.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Enginn.
Fylgjast má með Eyþóri Inga á
Facebook-síðu hans: eythoringi-
music og á Snapchat: eythoringi.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, lagahöfundur og
leikari, hefur átt velgengni að fagna síðan hann kom
fyrst fram á söngsviðið með sigri í Söngkeppni fram-
haldsskólanna árið 2007 og Bandinu hans Bubba
árið 2008. Hann hefur sungið og komið fram við
hin ýmsu tækifæri, gefið út plötu með eigin lögum
og sýnt góða frammistöðu í sýningum eins og Jesus
Christ Superstar, Rocky Horror og Hárinu. Síðast kom
hann fram á Fiskidagstónleikunum á Dalvík þann 12.
ágúst síðastliðinn. Verkefnin framundan eru fjölmörg:
Með Soul í Auga fönktónleikar í Andrews Theatre
Keflavík, Gospeltónleikar á Eskifirði, Bat out of Hell í
Hörpu, einsöngstónleikar í Hljómahöll og Bæjarbíó og
Hallo ween Horror Show Rokktónleikasýning. Eyþór
Ingi svarar spurningum vikunnar.
Hryllingssýning Það er einvala lið s
öngvara og listamanna sem stendur að
Rokktónleikasýningu í lok október í Háskóla
bíó.
Félagar í leik og starFi
Eyþór Ingi og gítarleikarinn
Kristján Grétarsson hafa margoft unnið og komið fram saman.
Mynd Gulli
HæFileikaríkur og
HárFagur Söngfuglinn frá
Dalvík, Eyþór Ingi.
Mynd Gulli