Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 38
Með þann hæfileika að hljóma eins og dvergur læstur í tunnu Dalvíkingurinn Eyþór Ingi situr fyrir svörum Fæddur og uppalinn? Á Dalvík. Mér finnst gaman að … hanga í stúdíóvinnu , spila og hlusta á tónlist og fíflast með góðu fólki. Síðasta kvöldmáltíðin: Nautasteik, rauðvín, rauðvínssósa og gott meðlæti. Eða „deluxe“ góður hamborgari og ekkert bull. Brenndur eða grafinn? Brenndur. Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Úff, það er allur gangur á því en mér finnst svolítið týpískt að ég sé einhvers staðar staddur á rauðu ljósi í bíl. Samfélagsmiðlar eða dagblöðin? Samfélagsmiðlar eiga óhugnan- legan vinning. Hvað ertu með í vinstri vasanum? Gítarneglur, kortaveski, stundum krumpuð nóta. Bjór eða hvítvín? Bjór frekar en hvítvín. Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu heimili? Ég held að ég sjái um það oftast þegar ég og frúin veljum eitthvað, en annars eru allir nokk- uð jafnir, þegar krakkarnir eiga í hlut til dæmis. Hvernig var fyrsti kossinn? Hann var ógeðslegur, haha nei nei, hann var í snjókomu utandyra að nóttu til. Hver væri titill ævisögu þinnar? Hakuna Matana (Engar áhyggj- ur). Hver er draumabíllinn? Ég hef voða lítinn áhuga og vit á bílum, draumabíllinn er bara rafmagns- bíll sem ég þarf litlar sem engar áhyggjur að hafa af. Fyrsta starfið? Sjómaður á trillu hjá pabba var fyrsta alvöru starfið, en annars var ég búinn að vera skemmtikraftur af og til í óvissu- ferðum og alls kyns uppákomum á vegum Júlla Júll (Júlli Fiskidag- ur) frá sirka 10 ára aldri og fékk vasapening fyrir. Fallegasti staður á landinu? Svarf- aðardalurinn situr nálægt hjarta mínu. Hvaða ofurkraft værir þú til í að vera með? Verða ósýnilegur. Gist í fangaklefa? Nei. Sturta eða bað? Sturta. Húðflúr eða ekki? Ekki. Hvaða leynda hæfileika hefur þú? Get talað með lokaðan munn- inn og það hljómar eins og lítill dvergur læstur inni í tunnu. Hvað fékk þig til að tárast síð- ast? Útför hjá langafa mínum á Dalvík, sem ég söng í. Fyrirmynd í lífinu? Foreldrar mínir eru kannski einu alvöru fyrir- myndirnar, annað getur verið svo grunnhyggið. Hvaða sögu segja foreldrar þínir endurtekið af þér?Allar sögurnar þegar ég er með athyglisbrest, að gleyma einhverju eða er utan við mig. Ertu með einhverja fóbíu? Það má alls ekki snerta púlsinn á mér. Hver er besta ákvörðun sem þú hef- ur tekið? Að byrja með konunni minni. Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Það kemur ekkert upp í hugann í fljótu bragði. Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Ég lendi ítrekað í neyðar- legum atvikum sökum þess hvað ég er utan við mig. Klukkan hvað ferðu á fætur? Eins seint og ég kemst upp með. Leigirðu eða áttu? Ég á, ég er frekar mikill safnari. Hvaða bók er á náttborðinu? Les ekki bækur og fæ hroll við tilhugsunina um að hafa bók á náttborðinu. Ipad-inn er þar. Með hverjum lífs eða liðnum myndir þú vilja verja einni kvöldstund? Ég myndi vilja setjast niður með Thom Yorke. Hver er fyrsta endurminning þín? Að vera heima hjá ömmu og afa þegar systir mömmu kom heim með hvolp. Lífsmottó? Þetta reddast. Uppáhaldsútvarpsmaður/stöð? Rás 2, þar hafa þau átt hug minn Andrea Jóns , Matti og Óli þótt mér finnist reynd- ar Andri Freyr vera einn fyndnasti og skemmtilegasti útvarpsmaður sem ég veit um. Uppáhaldsmatur/drykkur? Ég er rosalegur hamborgaramað- ur, svo drekk ég vatn sem er frábær drykkur, gott rauðvín eða ofsalega reykt Islay-viskí. Uppáhaldstónlistarmaður/hljóm- sveit ? Get varla valið, Jeff Buckley og Radiohead hafa mótað mig svakalega, Josh Homme úr Queens of the Stone Age á líka ágætispart í því eins og David Bowie, Led Zeppelin, Queen, Deep Purple, og fleiri og fleiri. Uppáhaldskvikmynd/sjónvarps- þættir? Game of Thrones. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn. Fylgjast má með Eyþóri Inga á Facebook-síðu hans: eythoringi- music og á Snapchat: eythoringi. Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, lagahöfundur og leikari, hefur átt velgengni að fagna síðan hann kom fyrst fram á söngsviðið með sigri í Söngkeppni fram- haldsskólanna árið 2007 og Bandinu hans Bubba árið 2008. Hann hefur sungið og komið fram við hin ýmsu tækifæri, gefið út plötu með eigin lögum og sýnt góða frammistöðu í sýningum eins og Jesus Christ Superstar, Rocky Horror og Hárinu. Síðast kom hann fram á Fiskidagstónleikunum á Dalvík þann 12. ágúst síðastliðinn. Verkefnin framundan eru fjölmörg: Með Soul í Auga fönktónleikar í Andrews Theatre Keflavík, Gospeltónleikar á Eskifirði, Bat out of Hell í Hörpu, einsöngstónleikar í Hljómahöll og Bæjarbíó og Hallo ween Horror Show Rokktónleikasýning. Eyþór Ingi svarar spurningum vikunnar. Hryllingssýning Það er einvala lið s öngvara og listamanna sem stendur að Rokktónleikasýningu í lok október í Háskóla bíó. Félagar í leik og starFi Eyþór Ingi og gítarleikarinn Kristján Grétarsson hafa margoft unnið og komið fram saman. Mynd Gulli HæFileikaríkur og HárFagur Söngfuglinn frá Dalvík, Eyþór Ingi. Mynd Gulli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.