Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 41
Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu og
stuðning,“ segir Erna Magnús-
dóttir, forstöðumaður og stofn-
andi Ljóssins. Hjá Ljósinu starfar
fagfólk sem aðstoðar krabba-
meinssjúklinga við að byggja upp
líkamlegt, andlegt og félagslegt
þrek. Einnig er stuðningur í boði
bæði fyrir krabbameinsgreinda
og aðstandendur, auk fjölbreyttrar
dagskrár eins og viðtala, líkam-
legrar endurhæfingar og jafn-
ingjastuðnings, svo fátt eitt sé
nefnt. Hluti af líkamlegri endur-
hæfingu er hlaupahópur og munu
nokkrir taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu, auk aðstandenda og
safna áheitum til Ljóssins.
Miðvikudaginn 16. ágúst síð-
astliðinn var opið hús hjá Ljósinu
þar sem öllum sem hlaupa munu
til styrktar Ljósinu var boðið í
pastaveislu og á fyrirlestur, sem
Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir
sjúkraþjálfari, næringarfræðingur
og margreyndur maraþonhlaup-
ari, hélt. Sjálf hleypur hún heilt
maraþon til styrktar Ljósinu.
Bolir merktir Ljósinu voru gefnir,
auk merkis til að bera á bakinu.
Ljósið var einstaklingsframtak í
upphafi
Upphaf Ljóssins má rekja til
ársins 2002, þegar Erna starfaði
sem iðjuþjálfi á endurhæfingar-
deild fyrir krabbameinsgreinda á
Landspítalanum. Eftir að deildin
var flutt inn á Borgarspítalann
fór Erna að vinna að því að láta
draum sinn um iðjuþjálfun og
endurhæfingu fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur utan
sjúkrahúss verða að veruleika.
Starfsemin var smá í sniðum til
að byrja með, tvo eftirmiðdaga í
viku í safnaðarheimili Neskirkju.
Í dag er starfsemin í björtu og
fallegu húsnæði að Langholtsvegi
43, sem félagið á og þar er starf-
semi í gangi alla virka daga, allan
ársins hring.
„Við erum þakklát öllum þeim
sem hlaupa fyrir Ljósið og þeim
sem styrkja okkur með áheitum,“
segir Erna. „Framlag þeirra er
mjög mikilvægt fyrir starfsemi
okkar, en til okkar koma um 400
manns á mánuði og nýta sér þá
þjónustu sem hér er í boði.
Allar upplýsingar um Ljós-
ið má finna á heimasíðunni
ljosid.is og heita má á hlaupara
í Reykjavíkurmaraþoninu á
hlaupastyrkur.is.
Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem
hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra, varð
til árið 2005 fyrir tilstilli nokkurra einstaklinga. Starfsemin
hefur vaxið með árunum, og skjólstæðingum og verk-
efnum fjölgað. Í ár hlaupa 206 einstaklingar fyrir Ljósið
í Reykjavíkurmaraþoninu og hafa þegar safnast tæpar
sex milljónir króna.
Fjöldi einstaklinga hleypur til styrktar Ljósinu
Ljósið í lífi margra
Hlaupa til styrktar ljósinu
Hluti þeirra einstaklinga sem hlaupa fyrir
Ljósið í maraþoninu í ár.
Góður Hópur Gott starfsfólk á fjölmörgum sviðum starfar hjá Ljósinu. Erna Magnúsdóttir forstöðumaður er önnur frá vinstri.
Merki ljóssins Hönnuðurinn Anna
Þóra Árnadóttir hannaði merki Ljóssins
og gaf Ljósinu merkið og fyrsta upplag af
bréfsefni og umslögum.
Bolur að Gjöf Allir fengu bol merktan Ljósinu
að gjöf og merki til að hengja á bakið.
Góður undirBúninGur er nauðsynleGur
Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari og næringar-
fræðingur, hélt fyrirlestur um undirbúning, klæðnað og
hlaupaleið í maraþoninu. Sjálf hleypur hún heilt maraþon
til styrktar Ljósinu.