Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 42
Galsi oG Gleði í GunG-Ho! Hlaupaþraut slær í gegn Gung-Ho!-hlaupið var haldið á Íslandi í fyrsta sinn laugardaginn 12. ágúst síðastliðinn og seldist upp í hlaupið, sem fór fram í Laugar- dalnum í brakandi blíðu. Gung- Ho! er ekkert venjulegt hlaup, heldur risavaxin og skemmtileg hlaupaþrautabraut fyrir alla, stóra sem smáa. „Við erum í skýjunum hvernig til tókst, það fóru allir brosandi heim, þá erum við glöð sem stönd- um að þessu,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson hjá BASIC sem sér um Gung-Ho!, en fyrirtækið hefur einnig staðið að The Color Run- litahlaupinu, síðustu þrjú ár. Gung-Ho!-hlaupabrautin er engin smásmíði, hún er er fimm kílómetra löng og samanstendur af tíu risavöxnum uppblásnum hindrunum. Það var því ljóst að finna þurfti góðan og stóran stað til að halda viðburðinn og var honum fundinn staður í Laugar- dalnum. „Við þurftum að komast í bæði mikið rafmagn og mikið pláss. Við þurfum gríðarlega stórt svæði, og sem dæmi þá er ein brautin 370 fermetrar, þetta voru því þúsundir fermetra sem okkur vantaði.“ Vertu með árið 2018 Vegna vinsælda The Color Run ákváðu Davíð Lúther og félagar hans að skoða fleiri hlaup og fundu Gung-Ho! í Bretlandi. „Það var prufukeyrt þar með nokkrum Íslendingum og niðurstaðan varð sú að þetta væri stórkost- leg skemmtun og óhefðbundin, þannig að við létum slag standa, sóttum um réttindin meðan við vorum enn úti og fengum réttinn til að halda hlaupið á Íslandi og í Skandinavíu,“ segir Davíð Lúther. Niðurstaðan varð sú sama hér heima, uppselt var í hlaupið og skemmtu allir sér konunglega, ungir sem aldnir, fjölskyldur sem einstaklingar og mun Gung-Ho! snúa aftur næsta sumar. Hvað þýðir Gung-Ho? Skilgreining á orðunum Gung-Ho er þríþætt. Upphaflega kemur hugtakið til hins vestræna heims frá Kína þar sem Gung-Ho stendur fyrir samvinnu. Gung-Ho er notað yfir aðila sem eru einbeittir og ætla að fara „alla leið“ í því sem þeir eru að gera. Gung-Ho er heitið á heræfingum þar sem þátttakendur klifra yfir timburveggi, skríða undir kaðla og hlaupa í gegnum dekkjaþrautir svo eitthvað sé nefnt. Kynnar GunG-Ho! Greta Salóme og Arnar Ragnarsson voru kynnar Gung-Ho! og sáu um að hita mannskapinn vel upp fyrir hlaup. Gaman í GunG- Ho! Þrautirnar eru af ýmsum toga og eitthvað sem allir aldurshópar geta tekið þátt í saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.