Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Síða 42
Galsi oG Gleði í GunG-Ho!
Hlaupaþraut slær í gegn
Gung-Ho!-hlaupið var haldið á Íslandi í fyrsta sinn laugardaginn 12.
ágúst síðastliðinn og seldist upp
í hlaupið, sem fór fram í Laugar-
dalnum í brakandi blíðu. Gung-
Ho! er ekkert venjulegt hlaup,
heldur risavaxin og skemmtileg
hlaupaþrautabraut fyrir alla, stóra
sem smáa.
„Við erum í skýjunum hvernig
til tókst, það fóru allir brosandi
heim, þá erum við glöð sem stönd-
um að þessu,“ segir Davíð Lúther
Sigurðarson hjá BASIC sem sér
um Gung-Ho!, en fyrirtækið hefur
einnig staðið að The Color Run-
litahlaupinu, síðustu þrjú ár.
Gung-Ho!-hlaupabrautin er
engin smásmíði, hún er er fimm
kílómetra löng og samanstendur
af tíu risavöxnum uppblásnum
hindrunum. Það var því ljóst að
finna þurfti góðan og stóran stað
til að halda viðburðinn og var
honum fundinn staður í Laugar-
dalnum.
„Við þurftum að komast í bæði
mikið rafmagn og mikið pláss. Við
þurfum gríðarlega stórt svæði, og
sem dæmi þá er ein brautin 370
fermetrar, þetta voru því þúsundir
fermetra sem okkur vantaði.“
Vertu með árið 2018
Vegna vinsælda The Color Run
ákváðu Davíð Lúther og félagar
hans að skoða fleiri hlaup og fundu
Gung-Ho! í Bretlandi. „Það var
prufukeyrt þar með nokkrum
Íslendingum og niðurstaðan
varð sú að þetta væri stórkost-
leg skemmtun og óhefðbundin,
þannig að við létum slag standa,
sóttum um réttindin meðan við
vorum enn úti og fengum réttinn
til að halda hlaupið á Íslandi og í
Skandinavíu,“ segir Davíð Lúther.
Niðurstaðan varð sú sama hér
heima, uppselt var í hlaupið og
skemmtu allir sér konunglega,
ungir sem aldnir, fjölskyldur sem
einstaklingar og mun Gung-Ho!
snúa aftur næsta sumar.
Hvað þýðir Gung-Ho?
Skilgreining á orðunum Gung-Ho er þríþætt.
Upphaflega kemur hugtakið til hins vestræna heims frá Kína
þar sem Gung-Ho stendur fyrir samvinnu.
Gung-Ho er notað yfir aðila sem eru einbeittir og ætla að
fara „alla leið“ í því sem þeir eru að gera.
Gung-Ho er heitið á heræfingum þar sem þátttakendur klifra
yfir timburveggi, skríða undir kaðla og hlaupa í gegnum
dekkjaþrautir svo eitthvað sé nefnt.
Kynnar GunG-Ho! Greta Salóme og Arnar Ragnarsson
voru kynnar Gung-Ho! og sáu um að hita mannskapinn vel upp
fyrir hlaup.
Gaman í GunG-
Ho! Þrautirnar eru af
ýmsum toga og eitthvað
sem allir aldurshópar
geta tekið þátt í saman.