Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Síða 47
Með allt á hreinu 3Helgarblað 18. ágúst 2017 KYNNINGARBLAÐ
Lauflétt garðaþjón-usta er nú ekki gam-algróið fyrirtæki en
allt frá stofnun þess, árið
2016, hefur starfsemin
farið ört vaxandi. Lauflétt
hóf rekstur 2013 og sér um
allt sem viðkemur garðin-
um og býður upp á alhliða
garðaþjónustu hvort sem
um er að ræða viðhald eða
nýsmíði garða. „Við sérhæf-
um okkur í að helluleggja,
smíða sólpalla og skjólveggi.
Einnig sjáum við um alla
almenna garðvinnu svo
sem trjáklippingu, garðslátt,
beðahreinsun og fleira,“
segir Einar Kristinn Ívarsson,
annar stofnenda Lauflétt
garðaþjónustu.
Lauflétt áskrift
Lauflétt sér um alla garð-
vinnu og hægt er að fá
þjónustu nær allan ársins
hring. „Við bjóðum upp á
áskrift að garðaþjónustu og
leggjum upp með að þetta
sé ódýr leið fyrir fólk til þess
að hafa stöðugt viðhald á
garðinum. Þá komum við
og sláum blettinn, klippum
tré og runna, hreinsum beð
og margt fleira. Við mælum
með að þetta sé gert
minnst sex til átta sinnum
að sumri. Þá komum við
á þriggja til fjögurra vikna
fresti. Það margborgar sig
að slá grasblettinn reglu-
lega. Það kemur í veg fyrir
mosamyndun, skallabletti
í sverðinum og útbreiðslu
skriðsóleyjar. Grasið verður
líka grænna og heilbrigðara
með stöðugu viðhaldi og
svo sakar ekki að bera á
það inni á milli,“ segir Einar.
Að sögn Einars er sérlega
mikilvægt að sjá til þess að
grasið sé vel klippt áður en
byrjar að frysta. „Það kemur
í veg fyrir sinumyndum sem
eru þessir hvimleiðu gulu
blettir sem getur verið erfitt
að losna við,“ segir Einar.
Hanna garða frá grunni
Lauflétt býður einnig upp á
stórsniðuga þjónustu fyrir
þá sem eru að endurskipu-
leggja garðinn sinn eða
eru að flytja í nýtt húsnæði
og vilja láta hanna fyrir sig
flottan garð. „Við mætum
þá á staðinn og tökum út
lóðina. Það borgar sig að
fá fagmenn í verkið þar
sem við höfum þekkingu
á öllu því sem viðkemur
heilbrigðum og fallegum
garði,“ segir Einar.
Dýrt spaug að hreinsa
ekki laufið
Að sögn Einars er sérlega
mikilvægt að hreinsa allt
lauf frá niðurföllum og úr
þakrennum fyrir veturinn því
það getur auðveldlega stífl-
að niðurföll. Íslensk haust
geta verið ansi vætusöm
og ef laufið er ekki hreinsað
getur farið svo að leki inn
í kjallara. „Það getur verið
dýrt spaug. Við sjáum um
allt svona fyrir viðskipta-
vininn og vitum hvaða verk
þarf að vinna hverju sinni.
Þetta er svo árstíðabundið,“
segir Einar.
Lauflétt garðaþjónusta
er til húsa að Dofrabergi 11,
220 Hafnarfirði.
Opnunartími er á milli
08.00–20.00 frá mánudegi
til laugardags.
Sími: 788-8388.
Nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðu Lauflétt,
lauflett.is og á Facebook-
síðunni.
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
Lauflétt þjónusta í áskrift
Hlúðu að garðinum.
Láttu LAuFLétt Sjá um GArðiNN Fyrir ÞiG
Sérhæfa sig í hellulögn.