Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Síða 48
4 Með allt á hreinu Helgarblað 18. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ
Ekkert verk of stórt eða of lítið
Garðaþjónusta Íslands
Bræðurnir Hjörleifur Björnsson og róbert Bjargarson reka garð
yrkjufyrirtækið Garðaþjón
usta Íslands, sem er í dag eitt
stærsta garðaþjónustufyrir
tækið hér á landi. Bræðurnir
stofnuðu fyrirtækið árið 2007
og hefur það verið í örum vexti
síðan. þeir einbeita sér að
einstaklingsmarkaðinum, en
þjónusta jafnframt húsfélög
og fyrirtæki. þjónustan er ekki
bundin við höfuðborgarsvæð
ið, þeir sinna einnig sumar
bústaðalóðum, hafa unnið
verk á suðurnesjum, Hellu og
selfossi. „Við höfum fengið fyrir
spurnir frá öllum landshlutum
og skoðum allt,“ segir Hjörleifur.
Bræðurnir eru vel tækjum
búnir fyrir öll verkefni, bæði stór
og smá. „Við höfum fjárfest í
verkfærum og tækjum, sem
gera okkur kleift að klára verkin
hratt og vel. það er ekkert verk
of lítið eða of stórt fyrir okkur,“
segir Hjörleifur. þeir taka að
sér eitt verkefni í einu, vinna
fram eftir og klára það. „lóða
breytingar eru stór hluti af
vinnu okkar. Við vinnum í sam
starfi við landslagsarkitekta og
iðnaðarmenn. lóðabreytingar
eru skemmtilegustu verkefnin
og það kemur fólki alltaf mikið á
óvart hvað við erum fljótir. Við
erum í góðu samstarfi við aðra
iðnaðarmenn sem hjálpa okkur
að klára málin frá a til Ö, svo
fólk þarf ekki að leita til margra
iðnaðarmanna til þess að klára
dæmið.“
Hjörleifur segir að við
skiptavinurinn fái alltaf fast
verðtilboð eftir fyrsta fund,
fólk veit því strax hver endan
legur kostnaður er og að engir
aukareikningar fylgi, nema sé
sérstaklega samið um það.
„Við leggjum mikla áherslu
á að afhenda alla reikninga
persónulega og að allt standi
sem samið var um.“
Garðaþjónusta Íslands
starfar allan ársins hring,
eftirspurnin er þó mest á vorin
og yfir sumarið. „það er því
best að panta sem fyrst,“ segir
Hjörleifur. snemma á vorin og á
haustin er verið að klippa og þá
má einnig fara í lóðabreytingar.
„það er margt hægt að gera í
garðinum á veturna, svo lengi
sem ekki frystir í jörð,“ segir
Hjörleifur. „Við erum einnig að
þjónusta fjölda húsfélaga hvað
varðar garðslátt, beðahreins
anir og almenna umhirðu.
Einnig eru margir einstaklingar
sem nýta sér þá þjónustu, enda
sumarið stutt og fólk vill kannski
hugsa um annað en arfa og
slátt á sumrin.
Við bjóðum upp á snjó
mokstur í áskrift og það borgar
sig að panta sem fyrst. þegar
allt fór skyndilega á kaf í snjó í
fyrravetur voru margir sem ekki
komust að en þurftu sárlega á
snjómokstri að halda. rétt er
að hafa í huga að þó að fólk sé
hjá okkur í áskrift þá vinnum við
ekki verk ef þess þarf ekki og þá
er heldur ekkert rukkað,“ segir
Hjörleifur.
Hjörleifur vill jafnframt
láta þess getið að fyrirtækið
getur bætt við sig verkefnum
inn í haustið þar sem Garða
þjónusta Íslands leggur ávallt
áherslu á að bóka sig ekki of
mikið fram í tímann. „Við erum
vel búnir tækjum og sinnum
stærri lóðabreytingum, hellu
lögn og alls konar smíði út
sumarið og langt fram á haust,“
segir Hjörleifur að lokum.
Til að panta verk eða fá
nánari upplýsingar er best að
hafa samband símleiðis við
Hjörleif eða Róbert eða senda
þeim tölvupóst: Hjörleifur
Björnsson hjorleifur@garda.
is – Sími: 844-6547 Róbert
Bjargarson robert@garda.is –
Sími: 866-9767.