Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 62
38 menning Helgarblað 18. ágúst 2017
N
ú í vikunni voru frum-
sýnd lokaverkefni fyrsta
útskriftarárgangsins í
nýju framhaldsnámi við
Listaháskóla Íslands, alþjóðlegu
meistaranámi í samtíma sviðslist-
um.
Útskriftarverkin sex eru jafn
ólík og þau eru mörg: leiklestur,
raunveruleikagjörningur, hljóð-
innsetning, bókaútgáfa og svo
framvegis.
Fjölbreytnin er ekki tilviljun
heldur afleiðing af þeim hug-
myndum sem liggja náminu til
grundvallar – enda er það óvenju-
legt og allrar athygli vert.
Blaðamaður DV forvitnaðist
um þetta nýja nám hjá fagstjóra
þess og einum af hugmynda-
smiðunum, breska sviðslista-
fræðingnum og listræna stjórn-
andanum Alexander Roberts.
Annars konar rými
„Þegar þetta nám var búið til og
staðan auglýst fannst mér hún
ríma fullkomlega við allt það
sem ég hafði áður tekið mér fyrir
hendur,“ segir Alexander sem hóf
listferilinn í pönkhljómsveitum
en færði sig smám saman yfir í
sviðslistir og sviðslistafræði.
Hann kom upphaflega hingað
til lands árið 2008 þegar hann tók
þátt í sviðslistaverki á listahátíð-
inni Art Fart. Síðan þá hefur hann
verið viðloðandi landið og búið
hér síðan 2012. Undanfarin ár hef-
ur hann verið virkur þátttakandi í
sviðslistalífi Reykjavíkur, verið list-
rænn stjórnandi og ein aðalspraut-
an á bak við Reykjavík Dance
Festival ásamt samstarfskonu
sinni Ásgerði G. Gunnarsdóttur.
„Grunnhugmyndin með þessu
nýja námi er að skapa vettvang
fyrir starfandi listamenn – hvort
sem þeir hafa verið virkir í tvö eða
tuttugu ár – þar sem þeir geta próf-
að sig áfram og gert rannsókn-
ir sem þeir gætu líklega ekki leyft
sér í hinum harða heimi atvinnu-
lífsins. Listiðnaðurinn er drifinn
áfram af stöðugri þörf fyrir afurðir,
en hugmyndin er að bjóða upp
á annars konar rými fyrir lista-
mennina,“ segir Alexander um
nýju námsleiðina, tólf mánaða al-
þjóðlegt framhaldsnám í sviðs-
listum samtímans þar sem sex til
átta listamenn vinna náið með
fjölbreyttum hópi gestakennara,
þekktum sviðslistamönnum alls
staðar að úr heiminum. Ein ástæð-
an fyrir því að námið er aðeins eitt
ár er að það er hugsað fyrir lista-
menn sem eru nú þegar starfandi
og oftar en ekki virkir í listasenum
í öðrum löndum. Alexander segir
hættuna hafa verið að með lengra
námi tækist ekki að halda sama
ákafa og athygli og vonast var eftir.
Uppbygging námsins var skipu-
lögð af Unu Þorleifsdóttur, Ragn-
heiði Skúladóttur og Karli Ágústi
Þorbergssyni í samvinnu við
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is „Þetta er ekki nám
endanlegra afurða,
ekki nám fullkomnunar.
Útskriftarverkefnin
Savage Scenes
Saga Sigurðardóttir
Performans og sýningar á teikningum og
ljósmyndum í Skugganum og Tunglinu
við Lækjargötu.
Pillow Talk
Sonja Kovacevic
Hljóðinnsetning þar sem gestum gefst
færi á að hlusta á sögur flóttamanna liggj-
andi í rúmum Rauða krossins víða um borg.
The necromancy
ofSocrates
Guðrún Heiður Ísaksdóttir
Lifandi gjörningur í Myndlistardeild LHÍ
þar sem Sókrates er vakinn til lífsins með
höggmynd og heimspeki.
Systems of Movement
Lisa Homburger
Útgáfa bókar þar sem nýtt leiðbeininga-
mál fyrir dansara er þróað og samhang-
andi gagnvirk sýning á Sölvhólsgötu 13.
My House
Hrefna Lind Lárusdóttir
40 daga raunveruleikagjörningur sem
fer meðal annars fram á Karolina Fund,
Youtube, í fjölmiðlum og Sólvallagötu.
Svarthol
Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Leiklestur á nýju leikverki í Tjarnarbíói
en verkið hverfist um mörk ímyndunar
og raunveruleika og allar þær víddir sem
hugur okkar heimsækir á ævinni.
Læra að spyrja
frekar en svara
Alexander Roberts stýrir nýju alþjóðlegu framhaldsnámi í sviðslistum við LHÍ
Alexander Roberts
Fagstjóri alþjóðlegs
meistaranáms í samtíma
sviðslistum við Listaháskóla
Íslands ásamt Sókratesi,
sem er hluti af útskriftar-
verkefni Guðrúnar Heiðar
Ísaksdóttur. mynd dAvíð þóR
Metsölulisti
Eymundsson
22.–28. júní 2017
Allar bækur
1 AfæturJussi Adler-Olsen
2 NorninCamilla Läckberg
3 Independent People Halldór Laxness
4 Iceland In a Bag Ýmsir höfundar
5 Með lífið að veðiYeonmi Park
6 Iceland Small World – lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
7 Sagas Of The Icelanders
Ýmsir höfundar
8 Essential Academic Vocabulary
Huntley Helen Kalkstein
9 Hús tveggja fjöl-skyldna
Lynda Cohen Loigman
10 Njals saga
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 Con Dios - Ferm-ingarfræðsla
Ýmsir höfundar
3 Konan í dalnum og dæturnar sjö
Guðmundur G. Hagalín
4 10 ráð til betra og lengra lífs
Bertil Marklund
5 Kirkjulykill – Messubók
6 Svo veistu að þú varst ekki
Ýmsir höfundar
7 Færeyjar út úr þokunni
Þorgrímur Gestsson
8 Volcano Sudoku Ýmsir höfundar
9 StofuhitiBergur Ebbi Benediktsson
10 Ferðaatlas