Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 65
Helgarblað 18. ágúst 2017 KYNNING
Glæsileg íslensk hönnun
frá Gilbert úrsmið
JS Watch co. ReYKJavIK
JS Watch co. Reykja-vik úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru
hönnuð á teikniborði JS hér
heima á Íslandi. allir íhlutir
úrsins eru síðan sérfram-
leiddir eftir þeirra hönnun í
mörgum, sérhæfðum verk-
smiðjum í Þýskalandi og Sviss
og settir saman hér á landi
undir ströngu gæðaeftirliti
Gilberts Ó. Guðjónssonar
úrsmiðameistara sem nýtir
áralanga þekkingu og reynslu
sína af úrsmíði til að tryggja
að hvert og eitt úr standist
ströngustu kröfur.
Frá upphafi framleiðslunn-
ar hefur verið leitast við að
sameina, glæsilega hönnun,
gæði, fyrsta flokks úrverk og
falleg armbönd. vönduð úr
eru munaðarvara og fylgi-
hlutir sem bæði karlmenn og
konur njóta þess að velja, bera
og eiga. en úr er ekki bara
skartgripur. Það er nytjahlutur
sem hjálpar okkur að gegna
skyldum okkar, halda loforð og
skapa góðar minningar.
Sérstaða úranna á ís-
lenskum markaði ásamt
persónulegri þjónustu og
árangursríku markaðs- og
kynningarstarfi hefur leitt
til þess að úrin hafa orðið
eftirsótt meðal heimsfrægra
einstaklinga sem koma til
landsins. Meðal þekktra
einstaklinga má til gamans
nefna Ben Stiller, tom cruise,
Quentin tarantino, Jude Law,
viggo Mortensen, Mads Mikk-
elsen, tobey Maguire, Dennis
Quaid, elvis costello, Ian
anderson, Yoko ono, Sean
Lennon, Dalai Lama, Katie
couric, vinnie Jones og con-
stantine Grikklandskonung.
Fágæti úranna ásamt því
að vera framleidd í hæsta
gæðaflokki er það sem gerir
þau eftirsóknarverð, en á skífu
allra úranna stendur Reykja-
vík. Það ásamt, vönduðu verki,
framleiðslu og sígildu útliti
gerir úrin fágæt og einstök.
Gilbert úrsmiður hefur lagt
sitt af mörkum við að hvetja
til bættrar verslunar og
þjónustu við ferðamenn efst
á Laugaveginum og hefur
ásamt fleirum tekið ríkan þátt
þátt í að byggja upp verslun
í vitahverfinu. Persónuleg
þjónusta og góð vöruþekking
er aðalsmerki verslunarinnar
og þjónustustig verslun-
arinnar er til fyrirmyndar.
viðskiptavinir eiga kost á að
hitta framleiðendur, fá að sjá
úrsmiði að störfum og koma
með ábendingar varðandi
samsetningu og útlit þeirra
úra sem þeir hyggjast kaupa.
Ferðamenn geta óskað eftir
einkaheimsókn komist þeir
ekki í verslunina á hefð-
bundnum opnunartíma og
eru þeir þá jafnan sóttir á
hótel sitt og ekið til baka að
lokinni heimsókn. heildstæð
áferð og framúrstefnuleg
ásýnd markaðs- og kynn-
ingarmála JS Watch co.
Reykjavík hefur vakið athygli
bæði innanlands og utan.
Úrvalið hefur aldrei verið
meira en nánari upplýsingar
um úrin og hönnunina má
finna á vefsíðunni www.
gilbert.is.
Gilbert úrsmiður, Lauga-
vegi 62, sími: 551-4100.