Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 62
38 menning Helgarblað 25. ágúst 2017 V andalismi og veggjakrot á fornminjum fékk lengi vel ekki mikla jákvæða vigt í hinni hefðbundnu listasögu. Veggjakrot og önnur sjálfsprottin tjáning almennings – skapandi jafnt sem eyðileggj- andi – getur þó gefið ýmsar vís- bendingar um drifkrafta manns- sálarinnar, undirliggjandi hugmyndaheim menningarsam- félaga og þróun fagurfræðilegra stíla. Einn þeirra sem höfðu mikla trú á mikilvægi óheflaðrar tján- ingar var danski myndlistar- maðurinn Asger Jorn en hann ferðaðist um Evrópu á sjötta og sjöunda áratugnum og ljósmynd- aði bæði hefðbundnar kirkju- höggmyndir frá miðöldum sem fornt veggjakrot í þeim tilgangi að greina formrænar tengingar og táknræna þræði þar á milli og setja fram sína eigin óhefð- bundnu listasögu: „10 þúsund ár af norrænni alþýðulist.“ Þessar listrænar rannsókn- ir Jorns ögruðu hefðbundinni fræðilegri menningarsagnfræði með óvenjulegum kenningum sínum en umfram allt með óhefð- bundinni listrænni aðferðafræði við rannsóknarstörfin. Nálgun Jorns, sem hann kallaði „saman- burðar-vandalisma,“ er megin- viðfangsefni nýrrar sýningar í Listasafni Íslands, en þar verða sýnd kontakt-prent mikils fjölda ljósmynda sem hann lét taka á sænsku eyjunni Gotlandi árið 1964. „Þetta er ekki sýning á lista- verkum heldur sýning á aðferð,“ segir sænski ljósmyndarinn og sýningarstjórinn Henrik Anders- sen, en hann og Birta Guðjóns- dóttir, deildarstjóri sýninga- deildar Listasafnsins og sérstök áhugakona um Asger Jorn, spjöll- uðu við blaðamann DV um Jorn og hið risavaxna ókláraða verk- efni hans. Jöfnuður, frelsi og listsköpun Daninn Asger Jorn fæddist árið 1914 og var einn allra þekktasti myndlistarmaður Norðurlanda á 20. öldinni. Hann er hvað þekkt- astur fyrir abstrakt expressjón- ísk málverk sín og þátttöku sína í evrópsku framúrstefnuhreyf- ingunni á eftirstríðsárunum. Hann var einn stofnenda COBRA- hreyfingarinnar – en meðal með- limanna var Svavar Guðnason – en er ekki síður minnst í dag sem eins stofnenda alþjóðlegr- ar hreyfingar Situationista. Það var hreyfing pólitískra listamanna (eða listrænna byltingarsinna) sem hafði mikil áhrif á stúdenta- uppreisnina í París 1968, jafnt með hugmyndum sínum og nálg- un á heiminn. Slagorð þeirra voru krotuð á veggi og prýddu kröfu- spjöld margra mótmælenda. Alla tíð síðan hefur hreyfingin verið listamönnum jafnt sem aktívist- um stöðugur innblástur. Á ferli sínum prófaði Jorn sig áfram með hverja þá listmiðla sem hann rakst á, hvort sem það voru málverk, skúlptúrar, kera- mík, ljósmyndir, kvikmyndir, per- formansar, skrif eða hvað eina – en list hans var alltaf bund- in pólitískum markmiðum hans órofa böndum, gagnrýni á það samfélag sjónarspils og leiðinda sem hafði þróast í borgaralegu samfélagi kapítalismans og von eftir betra samfélagi eftir hug- sjónum jöfnuðar og frelsis, leiks og listsköpunar. Eins og svo margir samferða- manna hans skrifaði Jorn einnig heimspekilega og fræðilega texta og fór að velta fyrir sér hvort það mætti einnig nota list- og menn- ingarsöguna sem skapandi tæki á sama hátt og hina listmiðlana. Menningarsagnfræði sem listmiðill „Ég held að Asger Jorn hafi alltaf verið að velta fyrir sér frelsi og takmörkunum listarinnar,“ út- skýrir Henrik. „Hann fann það sem abstrakt expressjónískur málari að hann fékk frelsi innan ákveðins ramma – en það var hins vegar alltaf rammi og veggur sem einhver annar hafði ákveðið. Jorn var stöðugt að ýta í þess veggi, prófaði sig því áfram með aðra listmiðla og reyndi að finna veggi þeirra. En þegar hann prófaði að nota listsagnfræði sem miðil þá skall hann virkilega á vegg.“ Hið tröllaukna listasöguverk- efni sitt nefndi Jorn „10.000 ár af norrænni alþýðulist“ og var hug- myndin að gefa út 32 binda al- fræðirit uppfullt af ljósmyndum og fræðilegum textum. Hann ferð- aðist um Evrópu með ljósmynd- urum og myndaði hinar ýmsu minjar frá miðöldum, arkitektúr, tákn, hefðbundnar kirkjuhögg- myndir og óþekkt veggjakrot. Með því að rýna í þær 26 þúsund myndir sem teknar höfðu verið, raða þeim upp, stækka og skeyta saman kvaðst hann geta fund- ið tengingar sem öðrum hafði yfir sést – ómeðvitaðan fagur- og hugmyndafræðilegan skyldleika sem hann rakti til forn-norrænna menningarheima. „Að minnsta kosti á einum tímapunkti hélt hann því fram að það væri eitthvað sérstaklega skandinavískt sem hann sæi í þessum miðaldalistaverkum – og það væri beinskeyttara og lýð- ræðislegra, eða innihéldi öllu heldur minna stigveldi en við eig- um að þekkja í dag. Það verður þó að viðurkennast að eftir því sem kenningin sjálf verður nákvæm- ari því meira lítur hún út eins og áhugamannasagnfræði,“ segir Henrik. Áhrif vandalanna „Jorn var þekktur listamaður á „Þetta gat verið höggmynd af púka utan á kirkjubyggingu eða eitthvert krot á vegg inni í kirkjunni „ það gat verið ný- legt, hundrað ára eða frá miðöldum, en í hans huga var það allt jafn áhugavert. Listræn rannsókn á vandalisma n Danski listamaðurinn Asger Jorn nálgaðist listasöguna á óhefðbundinn hátt n Ný sýning í Listasafni Íslands skoðar aðferðir Jorns Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Púkar og skemmdarverkAsger Jorn lét taka myndir af ýmsu minjum frá miðöldum, arkitektúr, táknum, hefðbundnum kirkjuhöggmyndum jafnt sem óþekktu veggjakroti. Mynd UlriK ross / AsGer Jorn Danski listamaðurinn Asger Jorn nálgaðist listasöguna á óhefðbundinn hátt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.