Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 46
GirnileGur með Glassúr
Snúðurinn er bakaður og borinn
fram í gamaldags pönnu.
snúður í pönnu Þessi kanilsnúður mun slá í gegn
í drekkutímanum!
með ástríðu fyrir
falleGum kökum
Kökurnar hennar Auðar
seljast eins og heitar
lummur. Í lok september
hyggst hún opna útibú
Sautján sorta í Kringlunni.
súkkulaðisæla Kökurnar í Sautján sortum eru
sannkallaður draumur fyrir sælkera.
Uppskrift
Snúða-panna
DeiG
n 1 bolli mjólk
n 15 g þurrger
n 2 msk. sykur
n 1 eggjarauða
n 300 g hveiti
n 1 tsk. salt
n ½ tsk. nýmalaðar kardimommur
n 1 tsk. vanilla
fyllinG
n 75 g smjör
n 90 g ljós púðursykur
n 1 tsk. vanilla
n 1 msk. kanill
Allt brætt saman í potti og kælt
lítillega áður en því er smurt á deigið.
Hitið mjólkina þangað til hún nær
ca 38 gráðum og sáldrið þurrgerinu
yfir. Látið standa í 5 mínútur. Hrærið
eggjarauðunni og sykrinum ásamt
kardimommum og vanillu saman við.
Bætið við hveiti og salti og hnoðið
með deigkrók í hrærivél í 10 mínútur.
Deigið er frekar klístrað og blautt,
en það er nægilega vel hnoðað ef
hægt er að teygja það milli fingra
sér án þess að það rifni. Látið hefast
í 15 mínútur. Þá er fyllingin gerð og
kæld. Hitið ofninn í 180 gráður. Hellið
deiginu á hveitistráð borð og fletjið út
í ferhyrning sem er ca hálfs sentimetra
þykkur. Smyrjið fyllingunni á deigið
og skerið það í 5 sentimetra ræmur.
Rúllið upp fyrstu ræmunni til að
mynda miðjuna á snúðinum og komið
henni fyrir í pottjárnspönnu sem
smurð hefur verið með olíu. Restin af
ræmunum er sett utan um miðjuna til
að mynda þennan myndarlega snúð.
Látið hefast í 1 klukkustund.
Bakið í ofni í 30-35 mínútur þangað til
snúðurinn er gullinn. Kælið aðeins áður
en glassúrinn er settur ofaná. Þið getið
notað ykkur eigin uppskrift af glassúr
en sjálfri finnst mér best að nota vanillu-
rjómaostaglassúr á svona snúða.
Glassúr
n 100 g rjómaostur
n 1 bolli flórsykur
n 1 msk. sítrónusafi
n 1 tsk. möndludropar
n Vanillustöng
Hrærið allt saman í þykkan glassúr og
bætið innihaldinu úr einni vanillustöng
saman við.
Auður Ögn Árna-dóttir er mörgum kunn sem einn
helsti kökufagurkeri lands-
ins. Hún hefur einstakt
fegurðar- og bragðskyn
sem hún deilir með köku-
elskendum úr verslun sinni
Sautján sortum sem hefur
um nokkurt skeið verið starfandi
úti á Granda.
Í þessum mánuði ætlar Auður
að færa út kvíarnar og opna útibú
í Kringlunni. „Þetta er svona lítill,
hálfgerður þríhyrningur sem ég
fékk þarna beint á móti Hrað-
lestinni, hjá Útilífi og við stefnum á
að opna núna um miðjan septem-
ber,“ segir hún og bætir við að þótt
staðsetningin sé góð þá sé plássið
ekki nægilega mikið til að hægt
verði að taka við sérpöntunum.
„Þetta eru bara svona fjörtíu fer-
metrar sem við höfum þarna en við
gerum það besta úr því og bjóðum
ekki minna en sautján sortir. Við
verðum með gott úrval af tilbúnum
tertum en svo verður líka hægt að
kaupa kökur í sneiðum, kökur sem
hægt er að taka með í kaffiboð,
bollakökur, bitakökur og tart svo
fátt eitt sé nefnt. Við festum okkur
ekki endilega við ákveðnar tegund-
ir, erum alltaf að prófa eitthvað
nýtt og koma kökuelskendum á
óvart með alls konar þótt það megi
stóla á vinsælustu tegundirnar.“
Hvaðan kemur kökuástríðan hjá
Auði Ögn? „Það má segja að hún
hafi komið í kjölfarið á matará-
stríðunni sem hefur alltaf fylgt mér.
Ég var samt rosalega lélegur bakari
framan af, af því ég var svo vön því
úr eldamennskunni að vera alltaf
að slumpa, setja mitt mark á það
sem ég var að elda. Þetta virkar
hins vegar ekki þegar þú ætlar að
baka köku því bakstur er vísindi
á meðan eldamennskan er list. Ég
þurfti svolítið að aga sjálfa mig, lesa
mér til um efnið og læra að fylgja
uppskriftum áður en ég varð góður
bakari,“ segir Auður en skýtur því
svo inn að hún baki nú minnst sjálf
í dag. „Ég nýt aðstoðar lærðra bak-
ara og konditormeistara sem baka
undir minni listrænu stjórn.“
Útlenskur pönnusnúður
með íslensku ívafi
„Þennan snúð fann ég í einhverju
vafri á netinu. Mér fannst hug-
myndin bara svo góð, og flott að
bera snúðinn fram í pönnu þannig
að ég tók uppskriftina og heim-
færði hana upp á íslenska snúðinn.
Bætti við kardimommum, vanillu
og mjólk sem var ekki í uppruna-
legu uppskriftinni.“ Er það fyrir
hvern sem er að takast á við þenn-
an snúð eða er þetta fyrir lengra
komna? „Nei, nei, það geta allir
gert þetta. Ef þú hefur einhvern
tíma bakað brauð eða notað ger þá
getur þú alveg gert þennan snúð og
hann er vel þess virði. Slær alveg í
gegn í drekkutímanum.“
Bakstur er vísindi,
eldamennska er list
„Ef þú hefur
einhvern tíma
bakað brauð eða
notað ger þá getur
þú alveg gert þenn-
an snúð og hann
er vel þess virði.
Slær alveg í gegn í
drekkutímanum.
listaverk í kökuformi Kökurnar
gleðja ekki aðeins bragðlaukana. Þær
eru líka veisla fyrir augað!
auður ögn gefur
lesendum Birtu girnilega
uppskrift að snúð sem
er borinn fram í pönnu