Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 71
Helgarblað 8. september 2017
52. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Frændi minn,
forsetinn!
Gefur hatri
fingurinn
n Rithöfundurinn Óttar
M. Norðfjörð hefur búið í
Barcelona-borg um nokkurt
skeið. Hann er ekki hrifinn af
Römblunni, einni þekktustu
breiðgötu heims, og er ástæð-
an ofgnótt túrista og slæmra
veitingastaða sem rukka hátt
verð. Hann ákvað hins vegar að
ganga götuna endilanga þegar
þrjár vikur voru liðnar upp á
dag frá hinni hræðilegu hryðju-
verkarárás sem gerð var í ágúst.
„Kannski bjánalegt en þetta var
mín litla leið til að segja hryðju-
verkamönnum að þeir myndu
ekki vinna, hvorki þá né næst.
Ef eitthvað er, þá mun ég núna
fara oftar á Römbluna til að gefa
hatri fingurinn og
gleði og ást tí-
mann minn,“
segir Óttar á
Facebook-síðu
sinni.
Frændi forseta
slær í gegn
n Rapparinn JóiPé sló í gegn und-
ir lok sumars þegar hann gaf út
lagið „Ég vil það“ með kollega sín-
um Chase Anthony. Lagið hefur
tröllriðið vinsældalistum síðan
og frasinn „Slaggur, að njódda og
liffa“ mun sennilega lifa með þjóð-
inni um ókomna tíð. Á dögunum
gaf JóiPé út lagið B.O.B.A. ásamt
félaga sínum KRÓLA og er þegar
talað um slagarann sem lag ársins.
Færri vita að JóiPé, sem heitir réttu
nafni Jóhannes Damian, er sonur
Patreks Jóhannesson-
ar handboltakappa.
Föðurbróðir hans
er því Guðni Th.
Jóhannesson,
forseti lýðveld-
isins.
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐA DANSKAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
ÞITT ER VAlIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang
fyrir þá sem þess óska.
VIÐ HöNNUm OG TEIKNUm
Komdu með eða sendu okkur málin af
eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu,
anddyrinu eða svefnherberginu - og
við hönnum, teiknum og gerum þér
hagstætt tilboð í glæsilega danska inn-
réttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð
raftæki á vægu verði.
GOTT SKIPUlAG
Það getur verið mikil kúnst að nýta pláss á sem bestan máta.
Með fjölbreyttum skápalausnum frá Fríform á hver hlutur sinn stað.
Gott skipulag léttir þér lífið og sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
styrkur - ending - gæði
OPIÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Rósa óttast tíðari fregnir um skaðsemi plasts
P
lastagnir finnast í krana-
vatni um allan heim. Þetta
kom fram í kvöldfréttum
RÚV fyrr í vikunni. Sér-
fræðingur í örplastrannsóknum
segir hættu á að nanóagnir sem
komast inn í frumur og líffæri
fólks sé að finna í kranavatni. „Ég
veit ekki til þess að það hafi verið
gerðar rannsóknir á plastögnum í
vatni hérlendis þótt þar sé vissu-
lega þörf á,“ segir Rósa Guðbjarts-
dóttir, bókaútgefandi og formaður
bæjarráðs Hafnarfjarðar, í samtali
við DV. „Þetta er hins vegar enn
ein rannsóknin sem sýnir fram á
hvað áhrif plastsins eru víðtæk og
ég óttast að við eigum eftir að fá
tíðari fregnir af þessum toga. Nú
þegar plastagnir greinast í drykkj-
arvatni, og ýmsum afurðum sem
við leggjum okkur til munns, eig-
um við kannski eftir að lesa niður-
stöður rannsókna sem sýna fram
á að plastið sé ekki aðeins um-
hverfisvá heldur geti það einnig
ógnað heilsu og heilbrigði manna.“
Rósa þýddi nýlega bókina Betra líf
án plasts eftir Anneliese Bunk og
Nadine Schubert. Í henni er fjall-
að ýtarlega um skaðsemi plasts
og mikilvægi þess að hver og einn
leggi sitt af mörkum til að draga úr
notkun þessa skaðlega efnis. Rósa
leggur áherslu á að einstaklingar og
sveitarfélög sýni ábyrgð við með-
höndlun þessa úrgangs. „Það er
mismunandi hvar plastið endar en
því miður er það svo að um áttatíu
til níutíu prósent enda ekki í rétt-
um endurvinnslufarvegi. Ef því er
skilað í grenndargáma þá er það
endurnýtt og ný verðmæti sköpuð
úr því. Ef ekki þá endar það í urðun
eða einhvers staðar í umhverfinu.n
Vill að einstaklingar og sveitarfélög sýni ábyrgð við meðhöndlun plastúrgangs