Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 26
Laufey Elíasdóttir leikkona, og nú ljósmyndari, er mörgum kunn bæði af hvíta tjaldinu
og fjölum leikhúsanna í borginni.
Hún átti eftirminnilegan leik í
kvikmyndinni Brúðguminn (2008)
þar sem hún lék aðalhlutverk á móti
Hilmi Snæ Guðnasyni en nú síðast
gat hún sér gott orð með leikhópn-
um RaTaTam sem fjallaði um heim-
ilisofbeldi í verkinu Suss! Laufey
útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum
í janúar á þessu ári en útskriftar-
verkefni hennar „Heima er best“
fjallaði einnig um heimilisofbeldi og
var það unnið upp úr viðtölum sem
leikhópurinn hennar, RaTaTam, tók
við þolendur og gerendur ofbeldis.
Tilfinningar og átök í kringum
þær eru ljósmyndaranum áfram
hugleikin. Á Menningarnótt opnaði
hún einkasýningu á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, sýningu sem hefur
fengið yfirskriftina Melankólía. Þar
birtir Laufey áhrifamiklar portrett-
myndir sem hún tók af þekktum
Íslendingum. Sumt af þessu fólki
þekkti hún áður en öðrum kynntist
hún nokkuð vel í gegnum verkefnið.
„Þetta eru allt fallegar, brothættar
manneskjur með mismikið þol fyrir
umhverfi sínu,“ segir Laufey.
Vill skapa upplifun sem kallar á meira
en bara það sem augað sér
Spurð að því hvernig það kom til
að leikkonan gerðist ljósmyndari
segir Laufey það hafa orðið fyrir
tilstilli vinkonu sinnar sem starfar
bæði sem leikstjóri og ljósmyndari.
„Helga Rakel Rafnsdóttir, sú hin
sama og leikstýrði verðlauna-
myndinni um Kjötborg, fékk
mig stundum til að sitja fyrir hjá
sér þegar hún var að læra fagið.
Þannig kynntist ég fyrst þessu
umhverfi en mér hafði samt aldrei
dottið í hug að ég gæti sjálf orðið
ljósmyndari,“ segir Laufey sem
hyggst vinna jöfnum höndum að
leiklist og ljósmyndun í fram-
tíðinni. „Ég verð að gera það.
Allavega svona til að byrja með.
Ljósmyndun er líka bara miðill
eins og leiklistin. Leið til að segja
sögu. Miðla einhverju. Koma því á
framfæri. Ég var til dæmis að fjalla
um það sama í útskriftarverkinu
mínu úr Ljósmyndaskólanum og
í verkinu Suss! Þá setti ég myndir
sem tengjast viðfangsefninu upp
líkt og „stillur“ úr kvikmynd um
heimilisofbeldi.“
Upplifun sem kallar á meira
Laufey segist hafa mjög víðtækan
áhuga á ljósmyndun og í gegnum
námið og eftir það hefur hún tekist
á við fjölbreytt verkefni í faginu
þótt hún hafi ekki starfað í því
lengi. „Ég hef til dæmis unnið við
blaða- og fjölskylduljósmyndun
en mér finnst
skemmtilegast
að gera myndir
þar sem maður
er að fjalla um
eitthvað sérstakt
viðfangsefni. Búa
til heildstætt verk
úr myndunum.
Skapa upplifun sem kallar á meira
en bara það að virða fyrir sér
ljósmyndirnar. Meira en það sem
maður bara sér.“
Sá sorgina í eigin andliti
En hvernig kom það til að Laufey
vildi fanga depurðina á ljósmyndir?
„Þegar ég var í náminu tókum
við sérstakan kúrs í sjálfsmynd-
um. Þegar ég fór að virða fyrir
mér myndirnar af sjálfri mér sá
ég hvað ég var alltaf leið á svip og
mikill tregi eða melankólía í mér.
Þetta fékk mig til að langa að snúa
vélinni við og skoða annað fólk,
kanna hvort það væri svona líka.“
Og fannstu þetta í andlitunum eða
varstu að leita sérstaklega eftir því?
„Þetta er jú þannig að við mann-
fólkið glímum öll við einhverja
erfiðleika, bara í mismiklum mæli.
Ég var ekkert að biðja fólk sérstak-
lega um að vera melankólískt þegar
ég var að taka myndirnar en hún
skín samt alveg í gegn. Ég sagði
þeim frá konseptinu og upp úr því
fórum við að spjalla um depurðina
og mál sem tengjast tilfinningum.
Meðan á myndatökunni stóð, og
kannski eftir hana, þá lentum við í
klukkutíma, kannski tveggja tíma
spjalli sem mér þótti mjög gefandi.
Þetta skilar sér á myndunum.“
Hætti að tala, horfði og hlustaði
Ef þú myndir taka sjálfsmyndir
núna, heldurðu að það væri jafn
mikil depurð í andlitinu? „Ég veit
það ekki. Þetta er misjafnt. Ég hef
gengið í gegnum ýmislegt um æv-
ina. Þegar ég var svona þriggja ára
þá dró ég mig inn í skel þar sem
ég bara hætti eiginlega að tala og
horfði og hlustaði á umhverfið. Ég
er kannski svolítið að brjótast út
úr þessu ástandi og aðeins farinn
að láta heyrast meira í mér. Þar á
meðal í gegnum þennan miðil. Er
öruggari með mig á einhvern hátt.
Maður er alltaf voðalega duglegur
að brjóta sig niður og finnast mað-
ur ekki vera nóg,“ segir hún og
bætir við að hún hafi líklega fyrst
tekið almennilega eftir þessu þegar
hún skoðaði myndirnar sem hún
tók af sjálfri sér.
Vegur salt á milli gleði og sorgar
„Ég er náttúrlega bara manneskja
sem sveiflast upp og niður. En ég
er orðin mikið meðvitaðri um
sjálfa mig, tilfinningar mínar og
jafnvægið eða jafnvægisskortinn
á milli þeirra núna,“ segir Laufey
sem vitnaði meðal annars í kafla
úr Spámanninum þegar hún hélt
opnunarræðu á sýningunni sinni
en þar segir að sorgin sé gríma
gleðinnar. „Sorgin og gleðin
ferðast saman að húsinu þínu
og þegar önnur situr við borðið
þitt, sefur hin í rúminu þínu,“ les
Laufey. „Þetta helst allt í hendur og
maður vegur alltaf salt milli gleði
og sorgar. Þessar ólíku tilfinningar
tengjast órjúfanlegum böndum,“
segir Laufey Elíasdóttir að lokum.
Sýningin Melankólía
stendur til 10. október.
Kári StefánSSon Kári Stefánsson er meðal þeirra sem Laufey myndaði fyrir sýninguna.
HeimiliSofbeldi Útskriftarsýning Laufeyjar úr Ljósmyndaskólanum bar yfirskriftina Heima er best. Þar
vann hún með sögur þolenda heimilisofbeldis en RaTaTam, leikhópurinn sem hún starfar með, fékk mikið
lof fyrir verkið Suss! sem fjallar um sömu mál.
melanKólíSKur megaS
„Ef enginn þér sýnir samúð neina, en sorgirnar hlaðast að fyrir því. Og ef engin hræða til þín tekur tillti
né sýnir viðmót hlý. Þá vappa skaltu' inn í Víðihlíð Víðihlíð og Víðihlíð og vera þar síðan alla tíð, alla þína
tíð.“ söng Megas í heilræðavísum sínum hér um árið.
KriStín ómarSdóttir SKáldKona „Meðan á myndatökunni stóð, og kannski eftir hana, þá
lentum við í klukkutíma, kannski tveggja tíma spjalli sem mér þótti mjög gefandi. Þetta skilar sér á mynd-
unum.“