Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 55
32 lífsstíll Helgarblað 8. september 2017 K olvetni eru mikilvægur hluti af fæðunni. Þau eru nauðsynleg til að orku- efnaskipti líkamans gangi eðlilega fyrir sig. Kolvetni eru til í ýmsu formi og er þeim oft skipt í flokka eftir stærð, þ.e. einsykrur, tvísykrur og fjölsykrur. Ekki er þó til siðs í daglegu tali að kenna syk- ur við stærð eða fjölda sykursam- einda. Oftar tölum við um sykur eftir því hvernig hann er notað- ur og hvaðan hann kemur. Til dæmis borðsykur, ávaxtasykur, mjólkursykur og þrúgusykur. En eru hinar ýmsu gerðir kolvetna allar jafnhollar? Er til dæmis hægt að bæta sér upp skort á ein- sykrum úr ávöxtum og fjölsykrum úr grænmeti með sykri úr sælgæti ef maður bara gætir þess að taka inn vítamín og steinefni með? Er ekki sama hver sykurinn er? Strásykur er sá sykur sem við notum mest. Hann er unninn úr hreinsuðum sykurreyr og er því mjög hreinn. Þó getur þurft að hreinsa sykurinn enn frekar til sumra nota og er það gert, en slík- ur sykur er ekki hafður til daglegra nota. Annan sykur í daglegu fæði fáum við úr ávöxtum og mjólk- urvörum. Í ávöxtum er mismikið af sykri. Sumir ávextir eru mjög sætir og innihalda mikinn sykur – frúktósa – en aðrir ávextir eru minna sætir. Úr mjólkur vörum fáum við tvísykruna laktósa (mjólkursykur) og úr brauði og grænmeti fáum við fjölsykrur (sterkju), en svo nefnast sykrur sem eru samsettar af mörgum einsykrusameindum. Upptaka kolvetna og blóðsykurstjórnun Skipta má kolvetnum í fæðu í tvo stóra hópa eftir stærð; fjölsykrur (sterkja og trefjar) og sykrur (ein- sykrur og tvísykrur). Það skiptir máli hve langar keðjur sykursam- eindirnar mynda, því lengdin hefur áhrif á það hversu greiðlega þarmarnir taka sykurinn upp og hve hratt hann berst til blóðsins (blóðsykur). Stuttar keðjur (ein- sykrur) eru yfirleitt auðveldari í upptöku en langar (sterkja) og upptakan gengur hraðar fyrir sig. Fleiri þættir, svo sem vinnsla hráefna, eðli hráefnis og með- ferð, geta einnig haft áhrif á hversu hratt líkaminn tekur upp sterkjurík matvæli. Kolvetni hafa mismikil áhrif á hækkun blóðsykurs Hversu hratt (eða hægt) líkam- inn tekur upp mismunandi gerð- ir kolvetna má ráða af hækk- un blóðsykurs eftir að við höfum borðað eitthvað sem inniheldur kolvetni. Hinar ýmsu tegundir kol- vetna valda mismikilli hækkun blóðsykurs og má gefa matvæl- um ákveðinn stuðul (glýkemísk- an stuðul) eftir því hversu hratt það gerist. Því hærri sem sú tala er þeim mun hraðar hækkar blóð- sykurinn; því lægri sem hún er þeim mun hægar tekur blóðið upp sykurinn úr fæðunni. Hæg upp- taka veldur því að styrkur blóð- sykurs er stöðugri en þegar um hraða upptöku er að ræða. Ef allt er eðlilegt sér líkaminn sjálfur um að nýta sykurinn á þann hátt sem nauðsynlegt er og að frumur lík- amans taki hann upp. Hæg kolvetni í samhengi við sykursýki Hormónið insúlín, sem losnar út í blóðið fyrir áhrif sykurs, er nauðsynlegt til þess að ekki verði röskun á þessu ferli. Sá sykur sem ekki nýtist strax safnast upp í lifr- inni sem forðasykur (glýkógen). Önnur stýrikerfi sjá um að losa sykur úr sykurforðanum í lifrinni (glýkogen) ef með þarf, þ.e.a.s. ef lítill sykur fæst úr fæðunni og blóðsykurinn fellur meira en æskilegt er. Fyrir fólk með sykur- sýki getur verið ráðlegt að nota kolvetni með hæga upptöku (fjöl- sykrur). Ástæða þess er sú að margir sykursjúklingar mynda lítið insúlín eða hafa minnkað næmi fyrir eðlilegum áhrifum þess. Þeir eiga því erfitt með að losna við aukið sykurmagn úr blóðinu. Blóðsykurinn hækkar þannig óeðlilega mikið og verð- ur of mikill. Neysla kolvetna með hæga upptöku getur stuðlað að því að halda styrk blóðsykurs stöðugri. Er einhver munur á sykri í sæl- gæti og sykri í ávöxtum og öðrum mat? Þótt maður sé ekki haldinn sykur- sýki er mikilvægt að líkaminn fái ekki kolvetni einvörðungu úr sæl- gæti. Sælgæti veitir kolvetni (strá- sykur), en inniheldur mjög lítið af lífsnauðsynlegum næringar- efnum. Það er því æskilegra að fá kolvetni úr öðrum matvælum með betra næringargildi. Þar að auki gefur sælgæti ekki saðningu á sama hátt og venjulegur matur. Þá er hugsanlegt að í sælgæti séu ýmis aukefni (gervisæta) sem notuð eru í stað sykurs. Forðumst hvíta sykurinn Allir ættu að forðast að borða of mikið af hvítum sykri, þar sem hann veitir orku án þess að með fylgi lífsnauðsynleg nær- ingarefni. Geti líkaminn ekki nýtt þau kolvetni sem neytt er til beinnar orkuframleiðslu með því að brenna sykrinum eða safna sykurforða, getur það sem um- fram er breyst í fitu (þríglýser- íð). Það að umbreyta kolvetn- um yfir í fitu kostar þó líkamann orku. Ef kolvetnaneysla er meiri en kolvetnaþörf, grípur líkaminn því frekar til þess ráðs að minnka fitubruna og brenna kolvetnun- um í stað fitu meðan þau eru fyrir hendi. Fitan úr fæðunni er þá ekki notuð til orkumyndunar, en þess í stað er hún geymd sem forðafita í fituvef. Við mikla sykurneyslu er því hætt við að fitusöfnun í líkam- anum verði of mikil. n Frekari fróðleik um mataræðið og annað tengt heilsunni má finna á vefnum doktor.is „Ef kolvetnaneysla er meiri en kol- vetnaþörf, grípur líkam- inn því frekar til þess ráðs að minnka fitubruna og brenna kolvetnunum í stað fitu meðan þau eru fyrir hendi. Fitan úr fæð- unni er þá ekki notuð til orkumyndunar, en þess í stað er hún geymd sem forðafita í fituvef. Við mikla sykurneyslu er því hætt við að fitusöfnun í líkamanum verði of mikil. Frá ósætu upp í dísætt n Allt um kolvetni og áhrif þeirra á starfsemi líkamans n Kolvetni eru af ýmsu tagi Kaffi og með því Þótt maður sé ekki haldinn sykursýki er mikilvægt að líkaminn fái ekki kolvetni einvörðungu úr sælgæti. Sælgæti veitir kolvetni en inniheldur mjög lítið af lífsnauðsynlegum næringarefnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.