Fréttablaðið - 18.10.2017, Qupperneq 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Hagtölur benda til þess að ungt fólk sé í verri stöðu nú á Íslandi en áður. Atvinnutækifærin eru færri, launin eru lægri, eignamyndunin er minni og
húsnæðisvandinn snertir öll heimili landsins. Hætta er
á að börnin okkar leiti tækifæranna annars staðar frekar
en hérlendis, ef ekkert er að gert. Húsnæðisvandinn er
grafalvarlegt mál sem við verðum að finna lausn á. Bæta
þarf aðgengi að fjármagni, fella niður afborganir náms-
lána og auka framboð af íbúðum víðsvegar um landið.
Svissneska leiðin
Framsókn vill að ungu fólki verði heimilt að taka út
iðgjald sem það hefur lagt í lífeyrissjóð og nýta sem
útborgun við íbúðarkaup. Í Sviss hefur þessi leið nýst vel
til að auðvelda fólki að eignast eigið húsnæði. Hægt er að
nýta hluta af lífeyrissjóði sem útborgun og þarf því ekki
að greiða vexti til bankanna inn á lán af þeirri fjárhæð.
Þegar íbúðin er seld er iðgjaldinu skilað aftur inn í líf-
eyrissjóðinn. Það er bein fjárfesting til þeirra sem nýta.
Lífeyrissjóðurinn er á fyrsta veðrétti og fær því allt
sitt til baka. Leiðin skaðar auk þess ekki þá sem nýta sér
ekki úrræðið. Þeirra iðgjald er enn inni í viðkomandi
lífeyrissjóði og hann sér um ávöxtun á þeim fjármunum.
Útfærsluatriði er hvenær lífeyrissjóðurinn fær sitt til
baka. Gæti verið við 50 ára aldur. Þá hefur eign í íbúðinni
aukist og viðkomandi getur ráðið hvort hann borgar það
sama til baka og var tekið út eða greiðir meira.
Þungur baggi
Á sama tíma og ungt fólk með börn er að reyna að
eignast heimili eru námslánin oftar en ekki þungur baggi
í heimilisrekstri. Framsókn vill að ungt fólk geti frestað
afborgunum á námslánum sínum í fimm ár við kaup á
fyrstu íbúð.
Jafnframt þarf að koma hreyfingu á húsnæðismarkað-
inn með því að auka framboðið af íbúðum. Framsókn
vill að í samstarfi við lífeyrissjóðina verði fjárfestir
minnst 10 milljarðar árlega til uppbyggingar á 300 hag-
kvæmum íbúðum og hjúkrunarrýmum fyrir eldra fólkið.
Klárum nú verkið og búum til stöðugleika í samfélag-
inu. Getum við ekki öll verið sammála um það?
Klárum verkið
Framsókn
vill að ungu
fólki verði
heimilt að
taka út
iðgjald sem
það hefur
lagt í lífeyris-
sjóð og nýta
sem út-
borgun við
íbúðarkaup.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
formaður Fram-
sóknarflokksins
2017
Lögbannið
leiðir til þess
að upplýs-
ingar fá ekki
að koma í
fram í dags-
ljósið og þar
með myndast
enn og aftur
gjá á milli
valds og
þjóðar.
Það sem er bannað
Lögbannið sem sett var á umfjöll-
un Stundarinnar sem byggð er á
gögnum úr gamla Glitni var mikið
á milli tannanna á fólki í gær,
skiljanlega. Lögmaður Stundar-
innar sagði til að mynda óheimilt
að banna umfjöllun sem eigi erindi
við almenning. Það hvað á erindi
við almenning er frekar óljóst.
Hins vegar verður umfjöllun um
forsætisráðherra að teljast eiga
erindi við almenning. Lengi hefur
tíðkast að fjölmiðlar fjalli um ráða-
menn út frá leknum gögnum, til
að mynda Panamaskjölunum, og
hefur slík umfjöllun jafnan verið
sanngjörn og þörf.
Fórnarlambið
Þótt umfjöllunin um Bjarna Bene-
diktsson, sama hvað hverjum
finnst um það sem kom fram í
henni, hafi ef til vill haft slæm
áhrif á Sjálfstæðisflokkinn hefur
umræðan um téð lögbann ekki
síður slæm áhrif. Á því áttar
áhrifafólk flokksins sig. Til að
mynda sagði starfandi varafor-
maður ljóst að lögbannið og tíma-
setningin hjálpuðu flokknum
ekki. Utanríkisráðherra tók í
sama streng og sagði Sjálfstæðis-
flokkinn ekki hafa komið að
banninu á neinn hátt. Þingmað-
urinn Bryndís Haraldsdóttir lítur
svo á að bannið sé hrein aðför að
flokknum. Spurning er því hvert
raunverulega fórnarlambið í
málinu er. Sjálfstæðisflokkurinn
eða fjölmiðlar og frelsi þeirra?
thorgnyr@frettabladid.is
– gerum betur
Atburðir síðastliðins mánudags þegar sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu úrskurðaði um lögbann á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media eru áfall og afturför fyrir íslenska fjölmiðlun. Atlaga að opinni, lýðræðislegri og lífsnauð-
synlegri fjölmiðlun og tjáningarfrelsi í landi þar sem
hvert spillingarmálið virðist reka annað. Takmörkun
á möguleikum kjósenda til þess að fá upplýsingar sem
eiga erindi við almenning. Takmörkun á lýðræðislegum
réttindum almennings. Lýðræði þar sem fjölmiðlar
eru múlbundnir og þeim gert ómögulegt að fjalla um
hagsmunatengsl ráðamanna við fjármálaöflin stendur á
brauðfótum.
Einhverjum kann að þykja þetta stór orð en eftir-
leikur atburða mánudagsins sýnir svo ekki verður um
villst að svo er ekki. Á undanförnum árum hefur íslenskt
samfélag mátt horfa upp á hvert málið á fætur öðru þar
sem hagsmunir starfandi stjórnmálamanna og fjármála
skarast með óeðlilegum hætti. Án ábyrgra fjölmiðla sem
treysta á stjórnarskrárbundið málfrelsi er viðbúið að
ekkert þessara mála hefði litið dagsins ljós. Við getum
rétt reynt að gera okkur það í hugarlund hver staðan væri
í íslenskum stjórnmálum í dag ef lögbann hefði verið sett
á umfjallanir fjölmiðla sem byggðu á Panamaskjölunum
svo dæmi sé tekið. Það er í það minnsta óhætt að segja að
hún væri vægast sagt önnur en hún er í dag vegna þess að
upplýsingar eru grundarvallarforsenda almennings fyrir
ákvarðanatöku, afstöðu og trausti til valdsins.
Vald sem hefur eitthvað að fela og vill þannig stjórna
fortíðinni er varasamt og ekki traustsins vert. Þetta vita
fjölmiðlar og þetta veit almenningur enda var það fyrst
og fremst leyndarhyggja sem varð tveimur síðustu ríkis-
stjórnum að falli. En nú vandast málið, ekki vegna þess
að núverandi ríkisstjórn er þegar fallin, heldur vegna
þess að nú er ekki lengur þjóðkjörið vald á ferð heldur
skipað.
Það eru lögfræðingar á fullnustusviði sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu sem meðhöndla lögbannsbeiðnina
frá Glitni HoldCo. Embættinu sjálfu gegnir Þórólfur Hall-
dórsson, hann var skipaður af Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, þáverandi innanríkisráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins, og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sama
flokk. Stundin hefur flutt fréttir af fjármálaumsvifum
Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu hans í aðdraganda
þess að bankarnir féllu og öllum er okkur kunnugt um
óánægju stuðningsmanna hans með þennan frétta-
flutning.
Vandinn er að með embættisvæðingu þöggunarinnar
gengur almenningur á vegg. Lögbannið leiðir til þess að
upplýsingar fá ekki að koma í fram í dagsljósið og enn
myndast gjá á milli valds og þjóðar. Þjóðar sem hefur
þroskast og lætur ekki lengur bjóða sér heimatilbúinn
hálfsannleik eða þögn þar til málið er gengið yfir. Eitt-
hvað sem stjórnmálunum og embættismannakerfinu á
Íslandi gengur óendanlega illa að átta sig á eins og allt
of mörg dæmi sanna. Við slíkt verður ekki lengur búið
og því hlýtur það að vera skýlaus krafa allra sem láta sig
varða tjáningarfrelsi og lýðræði þjóðarinnar að þetta
glórulausa lögbann verði afturkallað strax.
Gengið á vegg
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-E
F
E
0
1
E
0
0
-E
E
A
4
1
E
0
0
-E
D
6
8
1
E
0
0
-E
C
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K