Fréttablaðið - 18.10.2017, Side 16
Vöðva eða
liðverkir?
Voltaren Gel er bæði
verkjastillandi og
bólgueyðandi
Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Voltaren_Gel 5x10.indd 1 31/03/2017 13:44
E-riðill
Maribor - Liverpool 0-7
0-1 Roberto Firmino (4.), 0-2 Philippe Cout-
inho (13.), 0-3 Mohamed Salah (19.), 0-4
Mohamed Salah (40.), 0-5 Roberto Firmino
(54.), 0-6 Alex Oxlade-Chamberlain (86.),
0-7 Trent Alexander-Arnold (90.).
Spartak M. - Sevilla 5-1
1-0 Quincy Promes (18.), 1-1 Simon Kjær
(30.), 2-1 Lorenzo Melgarejo (58.), 3-1 Denis
Glushakov (67.), 4-1 Luiz Adriano (74.), 5-1
Quincy Promes (90.).
F-riðill
Man. City - Napoli 2-1
1-0 Raheem Sterling (9.), 2-0 Gabriel Jesus
(13.), 2-1 Amadou Diawara, víti (73.).
Feyenoord - S. Donetsk 1-2
1-0 Steven Berghuis (8.), 1-1 Bernard (24.),
1-2 Bernard (54.).
G-riðill
RB Leipzig - Porto 3-2
1-0 Will Orban (8.), 1-1 Vincent Aboubakar
(18.), 2-1 Emil Forsberg (38.), 3-1 JK Augustin
(41.), 3-2 Ivan Marcano (44.).
Monaco - Besiktas 1-2
1-0 Radamel Falcao (30.), 1-1 Cenk Tosun
(34.), 1-2 Cenk Tosun (55.).
H-riðill
Real Madrid - Tottenham 1-1
0-1 Raphael Varane, sjm. (28.), 1-1 Cristiano
Ronaldo, víti (43.)
APOEL - Dortmund 1-1
1-0 Mickael Pote (62.), 1-1 Sokratis (67.).
Nýjast
Meistaradeild Evrópu
Valur - Fjölnir 36-14
Grótta - Stjarnan 25-35
Olís-deild kvenna í handbolta
handbolti Eftir tæpan áratug í
Þýskalandi hefur Rúnar Kárason,
landsliðsmaður í handbolta, ákveð-
ið að söðla um og ganga í raðir Ribe-
Esbjerg í Danmörku eftir tímabilið.
Skyttan skotfasta skrifaði undir
þriggja ára samning við danska
úrvalsdeildarfélagið.
Rúnar hefur leikið í Þýskalandi
frá árinu 2009; með Füchse Berlin,
Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-
Neckar Löwen og síðustu fjögur árin
með Hannover-Burgdorf. Rúnar seg-
ist hlakka til að breyta til eftir langa
dvöl í Þýskalandi.
Langaði í eitthvað nýtt
„Við konan vorum búin að ákveða
að okkur langaði ekki að halda
áfram í Þýskalandi. Okkur lang-
aði að prófa eitthvað nýtt og fara í
annað land. Við vorum með augum
á Danmörku því konan mín er
hjúkrunarfræðingur og stefnir á að
vinna þar. Það er eitthvað erfiðara
hérna. Hjúkrunarfræðingarnir
hérna eru með annan bakgrunn en
hún. Svo langaði okkur að komast
nær kúltúr sem við kunnum betur
við. Þýskaland er fínt og allt það en
það er fjær Íslandi í flestu,“ sagði
Rúnar í samtali við Fréttablaðið í
gær.
Ribe stefnir hátt
Ribe-Esbjerg er í neðri hluta dönsku
úrvalsdeildarinnar en Rúnar segir
að metnaðurinn þar á bæ sé mikill.
„Þeir eru rosalega metnaðarfullir
og eru að setja pening í þetta. Þeir
eru að breyta til í liðinu og fá stærri
nöfn inn. Þeir stefna hátt og það er
hrikalega spennandi verkefni að
fara í gang,“ sagði Rúnar.
Hann hefur fengið fá tækifæri
með Hannover á undanförnum
mánuðum, sama hvernig gengið
hefur hjá liðinu. Þrátt fyrir það
hefur Rúnar aldrei spilað betur fyrir
landsliðið en síðasta árið.
Svipað og með Hörð Björgvin
„Það hefur ekki verið alveg sann-
gjarnt, finnst mér. Það er sama
hvað hefur gengið á í liðinu. Í fyrra
var engu breytt. Það er svipað
dæmi með Hörð Björgvin [Magn-
ússon] hjá Bristol City sem er að
spila vel með landsliðinu en fær
ekkert að spila með félagsliðinu,“
sagði Rúnar og vísaði til landsliðs-
mannsins í fótbolta en þeir koma
báðir úr Fram.
Rúnar segir að hann sé vissu-
lega að fara í aðeins lakari deild en
segir að sú danska sé samt sem áður
mjög sterk.
„Það er þekkt stærð að þýska
deildin er sú sterkasta í heimi,
þannig að þetta er ekki skref upp
á við hvað deildirnar varðar. En
danska deildin er sterk. Þessi lið í
toppbaráttunni eru mjög góð og
standa sig vel í Evrópukeppnum.
Það er mikið af góðum leikmönn-
um í Danmörku,“ sagði Rúnar.
Spenntur fyrir næsta skrefi
„Það spilar líka inn í að síðustu
þrjú sumar hef ég fengið þriggja
vikna frí. Maður er varla búinn
að gleyma síðasta landsleiknum
þegar maður byrjar að æfa aftur
fyrir næsta tímabil. Það er hrika-
lega lýjandi. Við byrjum snemma
að æfa í Þýskalandi, endum seint
og spilum líka um jólin. Þetta
er þannig séð skref niður á við
en ég verð enn í topp handbolta
og maður er ekkert að kasta inn
handklæðinu á handboltaferl-
inum. Þetta er bara næsta skref og
ég er spenntur fyrir því.“
Loksins í stærra hlutverki
Eins og áður sagði hefur Rúnar spil-
að vel fyrir landsliðið síðasta árið.
Hann nýtur sín í stærra hlutverki
sem hann þurfti að bíða lengi eftir.
„Það er ótrúlega mikilvægt fyrir
mig, eftir að hafa verið í kringum
landsliðið síðan 2008, að vera
loksins kominn í stærra hlutverk.
Þetta er eitthvað sem maður er
búinn að bíða lengi eftir,“ sagði
Rúnar.
Undir lok mánaðarins leikur
Ísland tvo vináttulandsleiki við
Svíþjóð í Laugardalshöllinni. Geir
Sveinsson landsliðsþjálfari valdi
mjög ungan hóp fyrir leikina
en helmingur leikmannanna er
fæddur 1995 eða síðar. Rúnar er
sjálfur fæddur 1988 og er einn af
elstu leikmönnum í íslenska hópn-
um. Hann hlakkar til að spila með
ungum mönnum í landsliðinu.
„Þessi kjarni í landsliðinu er
búinn að haldast mjög lengi saman
og þótt það hafi aðeins kvarnast
úr honum er hann enn til staðar.
Því lengur sem svona kjarni helst
saman, því erfiðari verður skipt-
ingin. Það er mikið af ungum og
góðum strákum að koma upp. Þeir
hafa staðið sig vel heima og eru
væntanlega á leið í stærri lið hvað
úr hverju. Ég er bara spenntur að
spila með þeim,“ sagði Rúnar að
lokum. ingvithor@365.is
Ekki að kasta inn handklæðinu
Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason færir sig um set til danska félagsins Ribe-Esbjerg eftir tímabilið. Hann
hefur fengið fá tækifæri með Hannover-Burgdorf en segir að það sé ekki eina ástæðan fyrir vistaskiptunum.
Rúnar nýtur sín í stærra hlutverki hjá íslenska landsliðinu og bíður spenntur eftir næstu verkefnum.
Rúnar hefur tekið að sér stærra hlutverk með landsliðinu sem honum líkar vel. Hann segir að það sé skref niður á við
að fara til Danmerkur en hann verði þó enn í topphandbolta. FRéTTABLAðið/AFP
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M i Ð V i k U d a G U r16 S p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
DREGið Í UMSpiLiNU
Ítalir mæta Svíum í umspili um
sæti á HM í Rússlandi á næsta ári.
Dregið var í Zürich í Sviss í gær.
Ítalía hefur verið með á öllum
heimsmeistaramótum síðan 1962
á meðan Svíþjóð hefur ekki verið
með á HM síðan 2006.
Hin Norðurlandaþjóðin í pott-
inum, Danmörk, mætir Írlandi í
áhugaverðri viðureign.
Þá mætir Króatía Grikklandi og
Sviss og N-Írland eigast við.
Fyrri leikirnir fara fram 9.-11.
nóvember og þeir seinni 12.-14.
nóvember.
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-C
8
6
0
1
E
0
0
-C
7
2
4
1
E
0
0
-C
5
E
8
1
E
0
0
-C
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K