Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 16
Vöðva eða liðverkir? Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Voltaren_Gel 5x10.indd 1 31/03/2017 13:44 E-riðill Maribor - Liverpool 0-7 0-1 Roberto Firmino (4.), 0-2 Philippe Cout- inho (13.), 0-3 Mohamed Salah (19.), 0-4 Mohamed Salah (40.), 0-5 Roberto Firmino (54.), 0-6 Alex Oxlade-Chamberlain (86.), 0-7 Trent Alexander-Arnold (90.). Spartak M. - Sevilla 5-1 1-0 Quincy Promes (18.), 1-1 Simon Kjær (30.), 2-1 Lorenzo Melgarejo (58.), 3-1 Denis Glushakov (67.), 4-1 Luiz Adriano (74.), 5-1 Quincy Promes (90.). F-riðill Man. City - Napoli 2-1 1-0 Raheem Sterling (9.), 2-0 Gabriel Jesus (13.), 2-1 Amadou Diawara, víti (73.). Feyenoord - S. Donetsk 1-2 1-0 Steven Berghuis (8.), 1-1 Bernard (24.), 1-2 Bernard (54.). G-riðill RB Leipzig - Porto 3-2 1-0 Will Orban (8.), 1-1 Vincent Aboubakar (18.), 2-1 Emil Forsberg (38.), 3-1 JK Augustin (41.), 3-2 Ivan Marcano (44.). Monaco - Besiktas 1-2 1-0 Radamel Falcao (30.), 1-1 Cenk Tosun (34.), 1-2 Cenk Tosun (55.). H-riðill Real Madrid - Tottenham 1-1 0-1 Raphael Varane, sjm. (28.), 1-1 Cristiano Ronaldo, víti (43.) APOEL - Dortmund 1-1 1-0 Mickael Pote (62.), 1-1 Sokratis (67.). Nýjast Meistaradeild Evrópu Valur - Fjölnir 36-14 Grótta - Stjarnan 25-35 Olís-deild kvenna í handbolta handbolti Eftir tæpan áratug í Þýskalandi hefur Rúnar Kárason, landsliðsmaður í handbolta, ákveð- ið að söðla um og ganga í raðir Ribe- Esbjerg í Danmörku eftir tímabilið. Skyttan skotfasta skrifaði undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið. Rúnar hefur leikið í Þýskalandi frá árinu 2009; með Füchse Berlin, Bergischer, Grosswallstadt, Rhein- Neckar Löwen og síðustu fjögur árin með Hannover-Burgdorf. Rúnar seg- ist hlakka til að breyta til eftir langa dvöl í Þýskalandi. Langaði í eitthvað nýtt „Við konan vorum búin að ákveða að okkur langaði ekki að halda áfram í Þýskalandi. Okkur lang- aði að prófa eitthvað nýtt og fara í annað land. Við vorum með augum á Danmörku því konan mín er hjúkrunarfræðingur og stefnir á að vinna þar. Það er eitthvað erfiðara hérna. Hjúkrunarfræðingarnir hérna eru með annan bakgrunn en hún. Svo langaði okkur að komast nær kúltúr sem við kunnum betur við. Þýskaland er fínt og allt það en það er fjær Íslandi í flestu,“ sagði Rúnar í samtali við Fréttablaðið í gær. Ribe stefnir hátt Ribe-Esbjerg er í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar en Rúnar segir að metnaðurinn þar á bæ sé mikill. „Þeir eru rosalega metnaðarfullir og eru að setja pening í þetta. Þeir eru að breyta til í liðinu og fá stærri nöfn inn. Þeir stefna hátt og það er hrikalega spennandi verkefni að fara í gang,“ sagði Rúnar. Hann hefur fengið fá tækifæri með Hannover á undanförnum mánuðum, sama hvernig gengið hefur hjá liðinu. Þrátt fyrir það hefur Rúnar aldrei spilað betur fyrir landsliðið en síðasta árið. Svipað og með Hörð Björgvin „Það hefur ekki verið alveg sann- gjarnt, finnst mér. Það er sama hvað hefur gengið á í liðinu. Í fyrra var engu breytt. Það er svipað dæmi með Hörð Björgvin [Magn- ússon] hjá Bristol City sem er að spila vel með landsliðinu en fær ekkert að spila með félagsliðinu,“ sagði Rúnar og vísaði til landsliðs- mannsins í fótbolta en þeir koma báðir úr Fram. Rúnar segir að hann sé vissu- lega að fara í aðeins lakari deild en segir að sú danska sé samt sem áður mjög sterk. „Það er þekkt stærð að þýska deildin er sú sterkasta í heimi, þannig að þetta er ekki skref upp á við hvað deildirnar varðar. En danska deildin er sterk. Þessi lið í toppbaráttunni eru mjög góð og standa sig vel í Evrópukeppnum. Það er mikið af góðum leikmönn- um í Danmörku,“ sagði Rúnar. Spenntur fyrir næsta skrefi „Það spilar líka inn í að síðustu þrjú sumar hef ég fengið þriggja vikna frí. Maður er varla búinn að gleyma síðasta landsleiknum þegar maður byrjar að æfa aftur fyrir næsta tímabil. Það er hrika- lega lýjandi. Við byrjum snemma að æfa í Þýskalandi, endum seint og spilum líka um jólin. Þetta er þannig séð skref niður á við en ég verð enn í topp handbolta og maður er ekkert að kasta inn handklæðinu á handboltaferl- inum. Þetta er bara næsta skref og ég er spenntur fyrir því.“ Loksins í stærra hlutverki Eins og áður sagði hefur Rúnar spil- að vel fyrir landsliðið síðasta árið. Hann nýtur sín í stærra hlutverki sem hann þurfti að bíða lengi eftir. „Það er ótrúlega mikilvægt fyrir mig, eftir að hafa verið í kringum landsliðið síðan 2008, að vera loksins kominn í stærra hlutverk. Þetta er eitthvað sem maður er búinn að bíða lengi eftir,“ sagði Rúnar. Undir lok mánaðarins leikur Ísland tvo vináttulandsleiki við Svíþjóð í Laugardalshöllinni. Geir Sveinsson landsliðsþjálfari valdi mjög ungan hóp fyrir leikina en helmingur leikmannanna er fæddur 1995 eða síðar. Rúnar er sjálfur fæddur 1988 og er einn af elstu leikmönnum í íslenska hópn- um. Hann hlakkar til að spila með ungum mönnum í landsliðinu. „Þessi kjarni í landsliðinu er búinn að haldast mjög lengi saman og þótt það hafi aðeins kvarnast úr honum er hann enn til staðar. Því lengur sem svona kjarni helst saman, því erfiðari verður skipt- ingin. Það er mikið af ungum og góðum strákum að koma upp. Þeir hafa staðið sig vel heima og eru væntanlega á leið í stærri lið hvað úr hverju. Ég er bara spenntur að spila með þeim,“ sagði Rúnar að lokum. ingvithor@365.is Ekki að kasta inn handklæðinu Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason færir sig um set til danska félagsins Ribe-Esbjerg eftir tímabilið. Hann hefur fengið fá tækifæri með Hannover-Burgdorf en segir að það sé ekki eina ástæðan fyrir vistaskiptunum. Rúnar nýtur sín í stærra hlutverki hjá íslenska landsliðinu og bíður spenntur eftir næstu verkefnum. Rúnar hefur tekið að sér stærra hlutverk með landsliðinu sem honum líkar vel. Hann segir að það sé skref niður á við að fara til Danmerkur en hann verði þó enn í topphandbolta. FRéTTABLAðið/AFP 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M i Ð V i k U d a G U r16 S p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð sport DREGið Í UMSpiLiNU Ítalir mæta Svíum í umspili um sæti á HM í Rússlandi á næsta ári. Dregið var í Zürich í Sviss í gær. Ítalía hefur verið með á öllum heimsmeistaramótum síðan 1962 á meðan Svíþjóð hefur ekki verið með á HM síðan 2006. Hin Norðurlandaþjóðin í pott- inum, Danmörk, mætir Írlandi í áhugaverðri viðureign. Þá mætir Króatía Grikklandi og Sviss og N-Írland eigast við. Fyrri leikirnir fara fram 9.-11. nóvember og þeir seinni 12.-14. nóvember. 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 0 -C 8 6 0 1 E 0 0 -C 7 2 4 1 E 0 0 -C 5 E 8 1 E 0 0 -C 4 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.