Fréttablaðið - 18.10.2017, Side 24
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Verkefnisstjórnin, sem var fyrr á
árinu falið að endurskoða peninga-
stefnu Íslands til framtíðar, heldur
sínu striki þrátt fyrir stjórnarslit og
boðaðar þingkosningar, að sögn
Ásgeirs Jónssonar, lektors í hag-
fræði við Háskóla Íslands, sem á
sæti í stjórninni.
Vinnu verkefnisstjórnarinnar,
sem tók til starfa í mars síðast-
liðnum, miðar ágætlega en ekki
liggur þó fyrir hvenær henni mun
ljúka. Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra skipaði stjórnina
en auk Ásgeirs eiga þar sæti hag-
fræðingarnir Ásdís Kristjánsdóttir
og Illugi Gunnarsson.
Markmið endurskoðunarinnar,
Heldur sínu striki þrátt fyrir kosningar
Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði við
Háskóla Íslands.
Eignarhaldsfélag Einars Sveinssonar,
fjárfestis og föðurbróður Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra,
skilaði 375 milljóna króna hagnaði í
fyrra, að því er fram kemur í ársreikn-
ingi félagsins. Jókst hagnaðurinn um
liðlega 60 milljónir króna eða um 23
prósent á milli ára.
Eigið fé félagsins, sem ber heitið
P 126 ehf., nam tæplega 1.620 millj-
ónum króna í lok síðasta árs og jókst
um 310 milljónir á milli ára. Var
eigin fjárhlutfall félagsins 98,8 pró-
sent í lok árs 2016.
P 126 ehf. er í eigu félagsins
Charamino Holdings sem er skráð
í Lúxemborg, en Einar Sveinsson
er eigandi þess félags. Hagnaður
félagsins í fyrra stafaði að mestu af
afkomu dótturfélagsins Pei ehf.
Dótturfélagið á meðal annars
rúmlega 22 prósenta hlut í
Eignarhaldsfélaginu Borgun slf., sem
keypti, eins og frægt er orðið, um 25
prósenta hlut af Landsbankanum
í Borgun í lokuðu söluferli í
nóvember 2014. Í dag nemur
hlutur Eignarhaldsfélags Borgunar
32,4 prósentum. Landsbankinn
hefur stefnt meðal annars
Eignarhaldsfélaginu Borgun slf.
vegna sölunnar. Er það mat bankans
að félagið hafi leynt upplýsingum
sem það, og aðrir stefndu, bjuggu yfir
um að Borgun ætti rétt á hlutdeild í
söluhagnaði Visa Europe.
Bókfært virði Pei ehf. var 314,8
milljónir í árslok 2016, að því er fram
kemur í ársreikningi móðurfélagsins.
P 126 ehf. á auk þess hlut í meðal
annars ISS á Íslandi, Kynnisferðum
og Kviku banka.
Lögmaðurinn Benedikt Einarsson,
sonur Einars, er skráður eini stjórnar-
maður og framkvæmdastjóri P 126
ehf. – kij
Félag Einars Sveinssonar
hagnast um 375 milljónir
Einar Sveinsson fjárfestir.
REYÐARFJÖRÐUR
Eski örður
ÍSAFJÖRÐUR
AKUREYRI
Húsavík
REYKJAVÍK
Sauðárkrókur
Borgarnes
Helguvík
Grundar örður
Bíldudalur
Patreks örður
Blönduós
Ólafs örður
Siglu örður
Dalvík
Grindavík
Selfoss
Hvammstangi
Hólmavík
Stykkishólmur
Ólafsvík Búðardalur
Skagaströnd
Raufarhöfn
Kópasker
Þórshöfn
GRUNDARTANGI
Neskaupstaður
Djúpivogur
Fáskrúðs örður
Höfn
Vopna örður
Egilsstaðir
Vík
Vestmannaeyjar
Hvolsvöllur
Flúðir
Reykjanesbær
öflugt flutninganet
um land allt
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
að því er sagði í fréttatilkynningu
frá forsætisráðuneytinu, er að
finna þann ramma peningastefnu
sem til lengri tíma litið er heppi-
legastur til að styðja við efnahags-
legan og fjármálalegan stöðugleika
hér á landi.
Í sumar var nokkrum erlendum
sérfræðingum falið að veita stjórn-
inni ráðgjöf, en í þeim hópi eru
meðal annars Patrick Honohan,
fyrrverandi seðlabankastjóri
Írlands, og Athanasios Orphan ides,
prófessor við MIT-háskóla og fyrr-
verandi seðlabankastjóri Kýpurs.
Gert er ráð fyrir að erlendu sér-
fræðingarnir ljúki sinni vinnu um
áramót. – kij
Ef gististaðir á landsbyggð-inni þyrftu að taka á sig alla hækkun virðisaukaskatts úr 11 prósentum í 22,5 pró-sent, eins og ríkisstjórnin
lagði til í fjármálaáætlun sinni til
næstu fimm ára, myndi það leiða
til mikils taprekstrar. Afkoma hót-
ela á höfuðborgarsvæðinu myndi
auk þess verða nálægt núlli. Þetta
er á meðal þess sem fram kemur í
úttekt ráðgjafarfyrirtækisins KPMG
um áhrif boðaðra hækkana á virðis-
aukaskatti á afkomu fyrirtækja í
ferðaþjónustu sem kynnt verður á
fundi Samtaka ferðaþjónustunnar í
dag.
Í úttektinni kemur meðal annars
fram að ef hækkun virðisaukaskatts
úr 11 prósentum í 22,5 prósent
hefði komið til í byrjun síðasta árs,
þá hefðu tekjur hótela lækkað um
1.858 milljónir króna og framlegð
þeirra lækkað um sömu fjárhæð, að
því gefnu að hótelin hefðu tekið á sig
hækkunina að öllu leyti. Það hefði
þýtt að afkoma hótelanna yrði sem
næst núlli.
Skattahækkunin hefði þó komið
hvað harðast niður á gististöðum
á landsbyggðinni, sér í lagi á Norð-
austurlandi, og leitt til þess að þeir
hefðu verið reknir með miklu tapi.
„Það er því varla valkostur fyrir
félögin að taka á sig alla hækkun
virðisaukaskatts, samhliða því
sem þau takast á við kjarasamn-
ingsbundnar launahækkanir, þar
sem verðlagning þjónustunnar er
þegar komin að sársaukamörkum
í alþjóðlegum samanburði,“ segir í
úttektinni.
Ef áhrif hækkunar virðisauka-
skatts eru metin út frá rekstri hótela
á fyrstu sex mánuðum þessa árs, þá
hefðu tekjur þeirra lækkað um 865
milljónir króna og framlegðin lækk-
að um sömu fjárhæð, að því er segir
í úttektinni. EBIDTA-framlegð hótela
á höfuðborgarsvæðinu hefði þann-
ig lækkað niður í 95 milljónir króna
og á landsbyggðinni hefði hún orðið
neikvæð um 242 milljónir króna.
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir úttekt KPMG að mörgu leyti
sláandi.
„Mér sýnist úttektin styðja við
það sem við vöruðum við í vor þegar
umræður um áætlaðar hækkanir á
virðisaukaskatti stóðu sem hæst.
Við bentum á að rekstrarumhverfi
fyrirtækja í ferðaþjónustu hefði
þegar versnað, meðal annars vegna
mikillar gengisstyrkingar krónunnar
og tuttugu prósenta launahækkana á
árunum 2015 og 2016, og að boðaðar
hækkanir á virðisaukaskatti myndu
skaða samkeppnishæfni greinarinn-
ar enn frekar.
Við sjáum nú þegar að ferðamenn
virðast hafa brugðist við gengisstyrk-
ingunni með breyttu neyslumynstri.
Þeir ferðast til að mynda minna um
landið og neyta ekki í sama mæli og
áður. Meðaldvalartími þeirra hefur
auk þess styst.
Það má því segja að þær áhyggjur
sem við höfðum í vor hafi raungerst
í sumar. Staða margra fyrirtækja
er verulega veik, sér í lagi á lands-
byggðinni, eins og fram kemur í
skýrslunni.“
Í úttekt KPMG kemur auk þess
fram að rekstrarskilyrði fyrirtækja í
ferðaþjónustu, sem verðleggja þjón-
ustu sína í erlendri mynt, hafi breyst
verulega til hins verra á undanförn-
um tveimur árum.
Er einnig tekið fram að svo virðist
sem verðlagning gististaða sé komin
að sársaukamörkum í alþjóðlegum
samanburði. Því sé líklegt að frekari
hækkun verðs muni hafa neikvæð
áhrif á fjölda ferðamanna og leiða
til þess að þeir muni dvelja í styttri
tíma en áður.
„Slíkar breytingar munu koma sér-
staklega illa við gististaði úti á landi
þar sem ferðamenn munu ferðast
minna um landið vegna færri dvalar-
daga. Greinilegt er af nýjustu tölum
um fjölda ferðamanna nú í sumar og
fjölda gistinátta eftir landshlutum að
þessi þróun er byrjuð,“ segir í úttekt-
inni. kristinningi@frettabladid.is
Skattahækkun myndi
leiða til taprekstrar
Hækkun á virðisaukaskatti myndi ógna afkomu gististaða samkvæmt nýrri út-
tekt KPMG. Gististaðir á landsbyggðinni yrðu reknir með miklu tapi en afkoma
hótela á höfuðborgarsvæðinu yrði nálægt núlli. Rekstrarskilyrðin hafa versnað.
KPMG telur að frekari hækkun verðs á gistiþjónustu muni hafa neikvæð áhrif á fjölda ferðamanna og stytta dvalartíma
þeirra. Mikil gengisstyrking og launahækkanir hafa leikið mörg ferðaþjónustufyrirtæki grátt. Fréttablaðið/anton brinK
Staða margra
fyrirtækja er veru-
lega veik, sér í lagi á lands-
byggðinni, eins og fram
kemur í skýrslunni.
Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar
1 8 . o K t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-D
7
3
0
1
E
0
0
-D
5
F
4
1
E
0
0
-D
4
B
8
1
E
0
0
-D
3
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K