Fréttablaðið - 18.10.2017, Page 28

Fréttablaðið - 18.10.2017, Page 28
Heildar auðlegðarskattur 1% 1,5% 2% 100 7.957.594 11.936.391 15.915.188 150 5.126.231 7.689.346 10.252.462 200 3.862.248 5.793.372 7.724.496 H re in e ig n Hverju gæti auðlegðarskattur skilað í ríkissjóð? Viðbótar auðlegðarskattur 1% 1,5% 2% 100 3.183.037 4.774.556 6.366.075 150 2.050.492 3.075.738 4.100.984 200 1.544.899 2.317.348 3.089.798 H re in e ig n Auðlegðarskattur 1% 1,5% 2% 100 4.774.556 7.161.834 9.549.113 150 3.075.738 4.613.607 6.151.477 200 2.317.348 3.476.023 4.634.697H re in e ig n Upptaka hátekju- og a u ð l e g ð a r s k a t t a myndi einungis fjár-magna á bilinu fjögur til átján prósent af þeim sjötíu milljarða króna útgjaldaloforðum sem sumir stjórnmálaflokkar hafa gefið fyrir komandi þingkosningar. Útreikningar sem byggðir eru á sérvinnslu gagna frá Hagstofu Íslands út frá skattframtölum fyrir árið 2016 leiða í ljós að 48 til 76 pró- senta hátekjuskattur á þá sem hafa meira en 25 milljónir króna í árslaun myndi auka skatttekjur ríkissjóðs um 159 milljónir til 2,7 milljarða króna á ársgrundvelli. Þá myndi auðlegðar- skattur sem lagður yrði á hreina eign að virði yfir 150 milljónir króna skila 5,1 milljarði upp í 10,2 milljarða króna aukalega til ríkissjóðs á ári, eftir því við hvaða skatthlutfall miðað er við. Til samanburðar hafa sumir stjórnmálaflokkar heitið því að auka ríkisútgjöld árlega um 50 til 75 millj- arða króna komist þeir til valda að loknum kosningum. Hafa þeir heitið því að sækja ekki þá fjármuni með því að hækka skatta á almenning. „Tuga milljarða kosningaloforð verða ekki eingöngu fjármögnuð með hátekju- og auðlegðarskatti. Þessir útreikningar sýna að miðað við tekju- og eignadreifingu landsmanna er einungis hægt að fjármagna brota- brot af þeim loforðum með slíkri skattheimtu. Það er því ljóst að ef farið verður í þá vegferð sem boðuð hefur verið mun þurfa að sækja tekjur annars staðar frá, með skattahækkun á heimilin í landinu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efna- hagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Ari Skúlason, hagfræðingur í hag- fræðideild Landsbankans, segir að setning laga um opinber fjármál og sú fjármálastefna sem sett hefur verið á grundvelli hennar setji fjárreiðum ríkissjóðs tiltölulega þröngan ramma. Það geri það að verkum að erfitt sé að „láta skipið taka mjög snöggar beygjur“. Ekki sé mögulegt að auka ríkisútgjöldin verulega án þess að afla tekna á móti. Lögin veiti ekki svigrúm til þess. „Ramminn er tiltölu- lega þröngur. Þetta er ekki eins og hér áður fyrr þegar allt var látið gossa og tekið á afleiðingunum síðar meir.“ Aukist um 334 milljarða Í útreikningunum, sem eru byggðir á gögnum frá Hagstofunni, er gengið út frá þeirri forsendu að ríkisútgjöld aukist árlega um 70 milljarða króna. Er það í nokkru samræmi við tillögur að minnsta kosti tveggja stjórnmála- flokka, Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, eins og þær birtust síðasta vor í nefndarálitum fulltrúa flokkanna við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2018 til 2022. Í áliti Bjark- eyjar Olsen Gunnarsdóttur, full- trúa Vinstri grænna í fjárlaganefnd, var lagt til að tekjur ríkissjóðs yrðu auknar um 334 milljarða króna á næstu fimm árum. Aukningin yrði 53 milljarðar króna strax á næsta ári og færi stighækkandi upp í 75 milljarða árið 2022. Oddný G. Harðardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni, lagði hins vegar til að tekjur ríkissjóðs yrðu auknar um 236 milljarða króna á næstu fimm árum eða sem nemur liðlega 50 milljörðum á ári. Flokkarnir hafa verið nokkuð sam- stiga um að ekki standi til að hækka skatta á almenning, heldur að auknir fjármunir verði sóttir með sérstakri skattlagningu á ríkasta og tekjuhæsta hópinn í samfélaginu. „Við ætlum ekki að hækka skatta á almenning á Íslandi. Hins vegar ætlum við að hliðra til innan skattkerfisins til að gera það réttlátara. Kjör almenn- ings verða sett í forgang og um leið stöðvuð sú þróun að þeir ríku verði áfram ríkari á sama tíma og aðrir sitja eftir,“ segir til að mynda í stefnuskrá Vinstri grænna. Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins, hefur ítrekað sagt að skattar verði ekki hækkaðir á almenning fái flokkurinn ein- hverju ráðið eftir kosningar. Þess í stað hefur hún meðal annars lagt til að skattar verði hækkaðir á þá sem hafa 25 milljónir króna eða meira í árstekjur og „ofurbónusa“ í fjármálageiranum og að jafnframt verði tekinn upp 1,5 prósenta auð- legðarskattur á „miklar eignir með háu frítekjumarki“. Auk þess hefur flokkurinn meðal annars viðrað hugmyndir um að taka upp komu- gjöld af farseðlum ferðamanna og afkomutengd auðlindagjöld af útgerðarfélögum, svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar hefur flokkurinn ekki sagst vilja hækka virðisauka- skatt á ferðaþjónustu úr 11 í 24 pró- sent, eins og gert var ráð fyrir í fjár- málaáætlun ríkisstjórnarinnar, en sú hækkun myndi skila um 18 millj- örðum í auknar tekjur til ríkissjóðs. Eftir litlu að slægjast Til þess að leggja mat á hversu raun- hæft það er að auka ríkisútgjöldin svo umtalsvert sem lagt hefur verið til í yfirstandandi kosningabaráttu, án þess að leggja aukna skatta á almenn- ing, hefur Markaðurinn áætlað mögu- legar skatttekjur af upptöku hátekju- og auðlegðarskatta. Gert er  ráð fyrir að nýju þriðja þrepi verði bætt inn í tekjuskatts- kerfið og að allir þeir Íslendingar sem hafi 25 milljónir króna eða meira í árslaun, en þeir eru 946 manns sam- kvæmt gögnum frá Hagstofunni, verði í því skattþrepi. Þess má geta að umræddur hópur greiðir nú 46,24 prósenta tekjuskatt. Niðurstaðan er sú að verði hér sett- ur á 48 til 76 prósenta hátekjuskattur munu áætlaðar skatttekjur aukast um 159 milljónir til 2,7 milljarða króna á ársgrundvelli. Hátekjuskattur myndi því einungis fjármagna í besta falli á bilinu 0,2 til 3,8 prósent af þeim 70 milljarða króna útgjaldaloforðum sem hafa verið gefin og útreikning- arnir miða við. Taka skal fram að í útreikning- unum er ekki gert ráð fyrir að fólk bregðist með einhverjum hætti við skattheimtunni, svo sem með því að draga úr vinnuframlagi, greiða lægri Standa undir brotabroti af loforðunum Upptaka hátekju- og auðlegðarskatta gæti skilað 5 til 13 milljörðum. Forstöðumaður hjá SA segir tugmilljarða kosningaloforð ekki fjármögnuð nema með hækkun skatta á almenning. Lektor við HR segir fjármögnun útgjaldahækkana þurfa að liggja skýrt fyrir. Tuga milljarða kosningaloforð verða ekki eingöngu fjár- mögnuð með hátekju- og auðlegðarskatti. Ásdís Kristjáns- dóttir, forstöðu- maður efnahags- sviðs Samtaka atvinnulífsins Flestir stjórnmálaflokkar landsins hafa heitið því að efna ekki loforð sín fyrir komandi Alþingiskosningar með því að hækka skatta á almenning. FréttAblAðið/Anton brink Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r6 markaðurinn 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 0 -F E B 0 1 E 0 0 -F D 7 4 1 E 0 0 -F C 3 8 1 E 0 0 -F A F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.